Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.05.1929, Blaðsíða 11

Dýraverndarinn - 01.05.1929, Blaðsíða 11
DÝRAVERNDARINN 37 Ólafur væri gæddur þeirri gjöf, að vera líkamlegt karlmenni og andlegt, og menn telja víst, að enn fari hann meö skyggðan skjöld andans ogheilabrynju, skyggðari og heilli, en margir þeir, sem eru honum Síra Ólafur Olafsson. áratugum yngri og aldrei hafa komizt í þær mann- raunir, líkamlegar eða andlegar, sem hann, eða borið, eins og hann, með sjúkum og sorgmæddum þrautir og áhyggjur, og þá eigi sízt flutt erindi Krists af geiglausum skörungsskap um hálfa öld og aldrei lát- ið undan slá i brimróðri þeim, er þreyta verður í þágu sannleikans móti iðuköstum og skakkaföllum vafaseminnar og hvarfa í kenningu heilagra fræða. Dýraverndarinn á þess ekki kost, að skýra svo frá ævistarfi sira Ólafs, sem vera bæri. Verður því að nægja að þessu sinni, að benda á þá staði, þar sem nokkuð er frá honum sagt, og skal þar til nefna Óðin 1922 og 1927, og víðar. En fram hjá því má ekki fara, að síra Ólafur hef- ir, seint og snemma, verið málssvari smælingja, lítil- magna og sjúkra og særðra olnbogabarna. Má, auk margs annars, í því sambandi nefna, hversu sköru- lega og drengilega hann lióf umræður um bætur á lífskjörum holdsveikra manna. Munu fæstir kunna full skil á því, hve miklu góðu hann hefir af stað hrundið með því, að beitast í öndverðu fyrir hjálpar- ráðum til handa þessum olnbogabörnum, holdsveiku sjúklingunum.*) Og jafnframt er skylt að minnast þess, hve óhvikull vinur og vörður hann hefir verið i garð málleysingjanna, og mun verða æ héðan, til síðasta andartaks. Dýraverndarinn vottar sira Ólafi jiakkir fyrir öll störf hans i þágu munaðarlausra og málleysingja og flytur honum hamingjuóskir í kyrrð ævikvöldsins. Frú Ingunn Einarsdóttir er fædd 27. ágúsl 1850 á Urriðafossi. Foreldrar hennar voru Einar bóndi Einarsson, s. st., og hús- freyja hans, Guðrún Ófeigsdóttir, frá Fjalli á Skeið- um, Vigfússonar. Hún giftist 1877 Jóhanni Friðriki Jónssyni, trésmiði á Eyrarbakka. Þeim varð 8 barna auðið, 4 sona og 4 dætra. Lifðu þau saman í hjóna- bandi tæp 10 ár, og lézt Jóhann Friðrik öndverðlega á ári 1887. Þegar frú Ingunn varð ekkja, hafði hún misst 5 af börnum sínum, en eftir lifði sonur, er lézt rúmlega tvítugur, frábær efnismaður, og tvær dætur, þær Þóra, húsfreyja Guðmundar Sigurðsson- ar á Sólbakka, fyrveranda skipstjóra, og Jóhanna, húsfreyja Emils bónda Rokstads á Bjarmalandi. Öðru sinni giftist frú Ingunn 1894 Þórði bónda Þórðar- syni. Þau fluttust að Laugarnesi 1900. Þar l)juggu þau 15 ár, eða til þess, er þau fluttust 1915 að Bjármalandi, og þar hafa þau búi'ð síðan. Þeim hefir ekki orðið barna auðið. Þó að þetta sé tekið fram, þá er það ótalið, sem gert hefir ævistarf frú Ingunnar merkilegt, gagnlegt og lærdómsríkt, og skal nú nokkuð á það minnzt. Flestum þeim, sem heyrt hafa frú Ingunni Einars- dóttur á Bjarmalandi nefnda, mun kunnugt, að hún hefir um langa ævi varið sínu mikla starfsþreki, áhuga og ósérplægni í þarfir mannúðarmála, en þó mest og merkjanlegast í þarfir dýraverndunarmáls- ins. Að því hefir snúizt allur hennar mikli dugnað- ur, útsjón og fórnfýsi, fyrst og siðast. Dýravernd- unarmálið hefir hún borið fyrir brjósti alla ævi, og sætir furðu, hve hugkvæmdarsöm, framgjörn og þol- góð hún hefir reynzt því máli, og reynist enn, með hverjum þeim hætti, er hún fær við komið. Og þótt *) Dr. Beyer, höfuðmaður Oddfellowa, lét þau orð falla uin síra Ólaf, að hann væri „manden som rejste hele bevægelsen" (Óðinn XVIII., 50).

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.