Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.05.1929, Qupperneq 12

Dýraverndarinn - 01.05.1929, Qupperneq 12
38 DÝRAVERNDARINN hún sé nú 79 ára, þá er hún enn frábærlega ern, ung í anda og framsækin um hjartans áhugamál sitt, verndun dýra. Störf hennar aÖ þessu máli hafa verið og eru svo Frú Ingunn Einarsdóttir. mikil og margþætt, aÖ vart er þess kostur, aÖ rekja þau í skömmu máli. Hún hefir hvergi setið sig þar úr færi og ekkert til sparað, hvorki fyrirhöfn né fé, til þess að vinna dýraverndunarmálinu JiaÖ til þrifa og þroska, er hún gat með nokkuru móti. En drepið skal þó á sumt af því, sem hún hefir aðhafzt í þessu efni. Þegar konur voru fyrst kosnar í bæjarstjórn í Reykjavik, gekk frá Ingunn fram fyrir skjöldu og flutti erindi um dýraverndun og skoraði á fyrstu konurnar í bæjastjórninni, að beita sér fyrir hana. Og til frekari áréttingar flutti hún málið við þáverandi bæjarfógeta, Jón Magnússon, og ræddi það við borg- arstjóra. Veturinn 19x4 var haldið Árnesinga- og Rangæ- ingamót. Frú Ingunn kom því til leiðar, að Sigurð- ur skólastjóri Jónsson flutti á mótinu erindi um dýraverdun, og hvatti til að hafizt yrði handa í þarfir þess máls. Afleiðingin af því varð sú, að komið var af stað tveim listum, til þess að þeir menn, sem vildi gangast fyrir stofnun dýraverndunarfélags, skrifuðu nöfn sín á þá — en þá var dýraverndunarfélag það, sem stofnað var skömmu eftir aldamótin, orðið óstarf- andi. Á listana söfnuðust 40 manns. Stofnfundur var haldinn um vorið. Á næsta fundi kaus félagið sér stjórn, og varð Tryggvi Gunnarsson formaður þess. Er þarna að finna upphaf núverandi Dýravérndunar- félags íslands. Þegar félagið var komið á stofn, urðu hlutverk þess margvísleg. Því var sagt til vanhirtra skepna, og mörgu fleiru var til þess beint. Varð ])ví brátt ljóst, að félagið skorti tilfinnanlega fé. En átak- anlegast var þó, aS það hafði engu húsnæði yfir að ráða, til að hýsa skepnur og geyma þær, hversu sem á stæði. á f'undi Dýraverndunarfélagsins 1915 1)ar frú Ing- unn fram tillögu um að stofna sjóS, til þess að koma upp húsi i þarfir félagsins. Hún talaði rækilega fyrir málinu, og undirtektir urðu góðar. Emil Rokstad gaf þegar i sjóðinn 500 kr., Jóhann Ögm. Oddsson 100 kr. og frú Ingunn 100 kr. Nefnd var kosin til að vinna fyrir málinu. Frú Ingunn varð íormaður nefnd- arinnar og Samúel Ólafsson gjaldkeri. 1918 hafði nefndin safnað 12000 kr. í hússjóð. Var sjóði þess- um variö til að kaupa Tungu. á fundi Dýraverndunarfélagsins 21. febrúar 1917 gerði frú Ingunn uppástungu um, að stofna sjóð, til að koma upp sérstöku húsi til fundarhalda o. fl., en fyrst 1922 fékk hún samþykki formanns félags- ins, Tóns Þórarinssonar, að mega fyrir hönd félags- ins safna í sérstakan hússjóð. Nú er sá sjóður orð- inn 2700 kr., og er undir umsjón frú Ingunnar. Enn mætti telja fjölmargt. Frú Ingunn hefir flutt allmörg erindi um dýraverndunarmálið, fyrr og síð- ar, á útbreiðsluíundum ýmissa félaga og víðar, og gert sér í því skyni fimm ferðir að Þjórsártúni, nokkrar á Eyrarbakka og aðra staði. Þá hefir hún verið óþreytandi að skrifa einstökum mönnum og félögum um rnálið, innan lands og utan, — all t A sinn kostnað. Og sjálf kann hún enga tölu á öll- um þeim bréfaskriftum. En geta má þess, að 1922 skrifaði hún 50 þjónandi prestum hér á landi og 40 skipstjórum, og leitaði hjá þeim stuðnings við dýraverndunarmálið. Enginn prestanna svaraði einu

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.