Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.10.1929, Page 4

Dýraverndarinn - 01.10.1929, Page 4
58 DÝRAVERNDARTNtf tugur, að vísu nokkuð slitinn eftir m’kið starf og dáðríkt fyrir stórum barnahópi og mannvænlegum. En hitt er mál þeirra, er vit hafa á að meta, að eigi séu slævð andans vopn hans. Máttur orða og máls sé skkur sem áður var hann, nema betur væri nú. Hugsveiflur og ílugdirfð hafi í engu mornað og víðsýni og snilli hvergi korpnað. Munu ljóðmæli þau eftir hann, sem út koma á sextugsafmæli hans, bera þess ærin vott. Dýraverndarinn biður sextuga skáldinu á Sandi blíðra morgna, bjartra daga, kvölda hlýrra og kyrr- látra nátta og treystir því, að enn fái skáldið lifað marga vetur, heill og hamingjusamur. P. Nlelsen. Dýraverndarinn vill leiða athygli lesenda sinna að öldungnum á Eyrarbakka. Fyrir tugum ára var Pétur Nielsen orðinn þjóðkunnur fyrir prúðmensku, gest- risni og höfðingsskap, og fyrir skyldurækni, vand- virkni, staðfestu og áreiðanlegheit í verzlunarstjóra- stöðu sinni á Eyrarbakka 25 ár (1887—1909). ITér verður ])ó ekki rætt um starfsvið öldungsins, eða rak- inn æfiferill hans. Geymt er það sögunni og öðrum t'marit- um; má og benda á gott ágrip i Óðni í apríl 1910, eftir Br. J. Er ])ví ekki annars að vænta hér en lauslegs álits, og aðeins á þá blaðs'.ðu i dagbók P. N., sem lýtur að náttúrufræði og dýraverndun. Utanlands er P. N. þektur sem fuglafræðingur, af ritgerö- um sínum i fuglafræðiritun- um „Ornis“ og „Dansk orni- thol. For. Tidskr.“ Innanlands má hann og vera nokkuð kunn- ur öllum almenningi, fyrir ekki færri en 25 greinar í helztu blöðum höfuðstaðarins. í nærri 20 af greinum þessum ræðir P. N. áhugamál s'n um fuglana, — þar á meðal hrafninn í Dýra- vernd. 1927, 2. tbl. Þrátt fyrir háa elli, — 85 ára 27. febr. s.l. — er hann enn yngri en áður í anda, sem dýravinur og dýraverndari, og þrátt fyrir máttleysi á vinstri hlið í 20 ár, ritar hann enn af kappi um örnina, — í „Morgunbl.“ 24. sept. sl., og fróðlega grein um geirfuglana síðustu, í „Vísi“ 12. s. m. Vill hann ekki að örninni (eða erninum*) * í daglcgu tali hefi eg jalnan heyrt prnina kvennkenda, sé útrýmt hér, svo sem í Danmörku, og því síður, að örlög hennar verði svo ömurleg sem geirfuglsins fyr- ir 85 árurn.' Meðan nóg var til af geirfuglinum í Vesturheimi, var hann gripinn til ekliviðar, og matárbita og skild- inga fengu banamenn síðustu fuglanna þar og hér. En nú mun vera meira en metfjárvirði, ef fynd- ist, þó ekki væri nema beinagrind af fugli þessum, eða brot af eggi hans. Já, geirfuglinn var nú meinlaus og gagnlítill, kunna menn að segja, en örnin er betur fleyg og hefir það til, að vera skað- ræðisgripur: spillir æðar- varpi og drepur saklaus lömb- in, á því hvorki skilið vægð né vernd. Satt er það, að hún hefir ekki íremur en aðrir fuglar eða dýr, lært að virða eignarrétt manna. Og nokkur vorkunn er þeim að v'.su, er hún kann að taka frá lömh. eða baka annað tjón. En er þaö ekki fágætt? Eða, hvort nefir örnin hrifsað lömbin frá fleiri ám, en eigendur ánna? Hvorir eru meiri „ntorð- vargar“ og kjötætur: menn- írnir eða rándýrin ? Með eitrun og ofsóknum rnanna, getur örnin orðið svo fágæt, að einn fugl eða eitt egg verði ekki reiknað í lambsverðum, heldur talið í tugum kúgilda. Auðskilið er það á greinum P. N., sem flestar eru um örnina, að hann metur ekki í lambsverðum, tign og þor og náttúruprýöi „konungs fuglanna". Stafróf dýraverndunar og íuglafriðunar: dýra- og- fylgi því hér, enda þó lcarlkenning virSist frumlegri. P. Nielscn.

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.