Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.10.1929, Qupperneq 10

Dýraverndarinn - 01.10.1929, Qupperneq 10
64 DÝRAVERNDARINN DÝRAVERNDARINN kemur aö minnsta kosti átta sinnum út á ári. Dýraverndarinn er ódýrasta blaðið, sem nú er gefiö út hér á landi- Árgangur hans kostar að eins 3 krónur. Ætlunarverk Dýraverndarans er að vinna að upp- eldis- og menningarmáli allra þjóða, en þaö er sú siSbót, sem fram kemur í verndun málleysingja og miskunnsemi við munaðarlausa. Dýraverndarinn er oft prýddur myndum, og í honum munu verSa ritgerðir og sögur eftir ritfæra menn og merka. Dýraverndarinn vill vinna sér traust og hylli allra góSra manna, ungra og gamalla. Og er eigi sízt leitað liðsinnis kennara og ungmennafélaga um að kynna blaSiö. Þeir, sem útvega 5 kaupendur að Dýraverndar- anum, eða fleiri, fá 20% í sölulaun. Þeir kaupendur Dýraverndarans, sem enn eiga ógreitt andvirSi hans, eru vinsamlega beðnir að gera skil sem allra fyrst. Afgreiðslumaður ÞORLEIFUR GUNNARSSON, form. Dýravemdunarfél. íslands. Félagsbókbandið. Reykjavík. væri jafn-auðsæir í háttum sumra manna, þeirra, er mikið þykjast að sér eiga, sem þarna voru berir af háttum Kópa. Auðvelt væri að segja fleira af Kópa, en þaö yrði of langt mál að þessu sinni. í september 1929. Þorfinnur Jónsson í Baldurshaga. Móíurást. í Ameríku var bóndabær nokkur í skógarjaðri ein- um. Eldur kom upp í skóginum, og bærinn brann til kaldra kola. Heimamenn flýðu í ofboði á síðustu stundu og fengu engu bjargað. Þegar slokknaður var eldurinn, fóru heimamenn jiangað, sem bærinn hafði staðið, til að gæta þess, hvort Surtur gamli hefði engu eirt. Skammt frá því, sem eldurinn hafði ekki fylli- lega náð sér niðri, sáu menn hænu liggja með þönd- um vængjum. Var hún dauð og mikið brunnin. Hending ein olli ])ví, að einhver kom við hænuna, svo að hún færðist úr stað. Og kom þá i ljós hópur af litlum ungum. Eldurinn hafði iæst sig um hænuna, þar sem hún var með ungum sínum. Og þegar ekki voru önnur ráð til að bjarga þeim, þá hafði hún þanið væng- ina og skipaS þeim undir þá. Eldurinn hafði um hana sviðrað, steikt hana og pínt og brennt fiður, húð og vöðva. En — hún hreyfði sig hvergi. Lifið fjaraði út með ómælilegum þjáningum. Þó lá hún kyrr — hvikaði ekki frá skyldu sinni. Móðirin fórnaði lifi sínu, síðustu blóðdropum sín- um, með kvalafyllsta hætti, til þess eins að reyna að bjarga lífi unganna sinna. Bergsv. Skúlason þýddi lauslega. Djravinátta. Nýtt gufuskip, 17 þúsund smálesta, „Aniericano Sud“ að nafni, var fyrir skömmu á leið yfir Atlants- hafið. Á þvi var kettlingur. Svo vildi til einn dag. er kisa var að klifra og leika sér, að henni varð fóta- skortur, og féll hún útbyrðis. Skipstjóri lét þegar stöðva skipið. Björgunarbáti var þegar komið á flot, og í hann fór fyrsti stýrimaður og nokkurir hásetar. til að bjarga kisu. Stormur var á og sjór úfinn. Mátti því eigi tæpara standa, er þeir loks fengu borgið henni. Þessi frábæra og drengilega björgun, sem lýsir ótvírætt hjartagæzku og dýravináttu þeirra manna, sem að henni stóðu, hefir hvarvetna vakið lof og aðdáun góðra manna. (Ægir XXII. ár, 8. tölubl.) Ritstjóri Einar Þorkelsson, Hafnarfiröi. Útgefandi Dýraverndunarfélag íslands. Félagsprentsmiðjan.

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.