Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.10.1931, Blaðsíða 8

Dýraverndarinn - 01.10.1931, Blaðsíða 8
50 DÝRAVERNDARINN og róiÖ til lands. Kom þá i ljós, er hesturinn var athugaður, aÖ þar var kominn folinn minn. HafÖi folans fyrst orðið vart á hæ þeim, er Ham- ar heitir og stendur í miðið af fimm bæjum, sem eru á Múlanesi. Var það að kveldi dags, að menn sáu rauðan hest koma hlaupandi neðan mýrarnar, og virtist eins og hann hefði orðið viðskila við aðra hesta, og mundi vera að leita ]>eirra. Var ekkert frekar um þetta fengizt, en talið vist, að þar færi rauður foli frá Múla, sem þangað sótti mjög. Ekki kom hesturinn svo nærri, að greina mætti, hvort hann væri votur, og ]>ví síður var athugað að setja á sig mánaðardaginn, enda var það ekki fyrr en löngu síðar að vitnaðist, að hér væri um ókendan hest að ræða, en ekki Múla-folann. Og sizt gat nokkurn grunað að hér væri um flóa-farartæki að ræða! Ekki verður sagt með neinni vissu, hvað Rauður kann að hafa verið lengi á leiðinni, og því síður hvað sundið kann að hafa verið langt. En eins og áður er tekið fram, er styzta leiðin til lands ekki undir 5—6 enskum mílum. Þá má og geta þess, að folinn lagði á flóann í byrjun stórstraums aðfalls, en til þess að ná landi þangað sem styzt er, hefði hann alt af orðið að synda töluvert á strauminn, þvi að hann þversker alveg leiðina. En hvað sem straumurinn bar af leið, lengdist sundið. Næði nú folinn þessu styzta sundi yfir flóann, vóru ])ó mörg smá sund eftir til fastalands. Það mundum við með vissu, að þá mundi hafa verið nálægt nóni, er Rauður hvarf úr Heimalönd- um og lagði á flóann og hafi það svo verið sam- dægurs, sem hann sást frá Hamri, mun láta nærri að 5—7 klukkustundir hafi liðið frá því hann fór að heiman, og ]iar til að eftir honum var tekið á Hamri. Þegar á Múlanesið var komið virtist allur strok- hugur úr Rauð. Undi hann sér ])ar hið bezta, alt fram um veturnætur, að hann var sóttur. Síðan hefir hann verið alinn með folaldi í allan vetur og virðist una vistinni vel. Ritað á föstudaginn langa 1931. Valdimar Ólafsson. Ovenjulegur atburður.,I,) Úr Kolbeinsstaöahreppi er nýlega skrifað hér um bil á þessa leið: — „Þann 16. ágúst í sumar átti Guðmundur í Kross- holti erindi á næstu bæi. ReiS hann þá fram hjá tveim hrútum tveggia vetra þar í heimahögun- um og átti hann sjálfur annan hrútinn. Þrem vik- um síðar átti hann lei'ð um sömu slóðir, og sá hann þá skamt frá sér kind, sem honum virtist eitt- hvað undarleg og einkennileg útlits. Vildi hann forvitnast um þetta og reið þangað. Sá hann þá, að þetta var hrútur og bar haus af öðruni hrút á hornum sér. Vóru þetta sömu hrútanir, sem hann hafði séð fyrir þremur vikum, eða réttara sagt: annar hrúturinn og hausinn af hinum. Það var hausinn af hans eigin hrút, sem hinn var að dingla með á hornunum. Eins og að líkum lætur, átti Guð- mundur all-örðugt með að ná hausnum úr „krækj- unni“, enda vill oft verða svo, að ógerningur sé að ná „kræktum" hrútum sundur með öðru móti en ])ví, að hornskella annan eða báða. Sigurvegarinn í þessu hrútastríði var mjög illa leikinn, hungraður, kviðdreginn og magur. Hann var og einsýnn orðinn. Hrútum þessum hefir senni- lega lent saman í bardaga, þó að svo þurfi ekki að hafa verið. Hrútar geta krækst saman án þess. Þarf ekki annað, en að þeir núi hausunum saman af rælni og í góðu. En líklegra þykir mér samt, að ])essir hafi verið að berjast, og sigurvegarinn rotað andstæðinginn eða snúið hann úr hálsliðun- um, er þeir vóru orðnir kræktir. Sumum kann nú að þykja undarlegt, að hausinn skyldi vera slitn- aður af hinum dauða, en hitar miklir vóru í veðri um þessar mundir og hefir það flýtt fyrir rotn- uninni, svo að hausinn hefir slitnað af búknum fyr- ir átök þess, sem eftir lifði og þunga hins dauða. Aðrir hafa giskað á, að íerðamenn hafi skorið hausinn af hinum dauða, en ekki getað ráðið við „krækjuna“ og ekki hirt um að segja frá fundi sinum. En hvað sem um það er, þá er hitt víst, að hrútarnir kræktust saman á hornunum og að annar beið bana. Mörgum þykir óprýði að þvi, að hornskella hrúta og þvi verður ekki neitað, að þeir verða * Eftirfarandi greinarkorn birtist nýlega í dagbl. „Vísi.‘

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.