Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.10.1931, Side 9

Dýraverndarinn - 01.10.1931, Side 9
DÝRAVERNDARINN 5i kollhúfulegri eftir en áöur. En þaö getur alt af viljaö til, aö hringhyrndir hrútar krækist saman og farizt af þeim sökum. Og slikur dauÖdagi hlýtur ávalt aö vera kvalafullur. — Menn ætti því aö gera sér aö reglu, að hornskella alla hringhyrnda og stórhyrnda hrúta.“ Kettir gera vart við eldsvoða. Allir þekkja sögur um ótal marga hunda, senr hjargaÖ hafa með ýmsu móti fjölda mannslífa, en fáar sögur munu vera til urn ketti, sem leyst hafa slíkt afrek. Þó kom nýlega fyrir atvik i Kaup- mannahöfn, er sýnir að kettir geta stundum verið nógu skynsamir og fræknir. Fjölskykla, sem býr í Baggesensgade, gekk mjög snemma til rekkju kveld eitt, en ljós brann á lampa. Skyndilega vaknaði húsbóndinn vi'S ]jað, að heim- iliskötturinn lá á brjósti hans og klóraði hann í andlitið. Húsbóndinn vissi ekki í fyrstu hverju þetta sætti, en þótti framferði kattarins næsta einkenni- legt. Alt í einu barst revkjarsvæla að vitum hans, og er hann aðgætti betur, sá hann að lamp- inn hafði sprungið, og eldur kominn í gluggatjöld og ábreiður. Húsbóndinn vakti síðan konu sina og börn og björguðust öll út. Hefði kötturinn ekki vakið húsbóndann, þykir mjög sennilegt að öll fjölskyldan hefði kafnað og brunnið innni. (Alþýðubl.) í Skógum á Skildinganesi bjuggu veturinn 1930 tvær fjölskyldur. Þriðjudaginn 18. marz, laust fyrir kl. 10 árdegis, kom önnur húsfreyjan út i eldhús sitt. Tók hún þá eftir þvi, að þangað var köttur kominn; stóð hann uppi á stól, en horfði á dyra- þröskuldinn ygldur á svip og eitthvað undarlega órólegur. Varð húsfreyja þá þegar vör við að ofur- lítinn reykjareim lagði undan dyraþröskuldinum og hugði því að þar mundi eldur laus orðinn. Gerði hún þá þegar aðvart og flyktist fólk að, en hús- ið, sem var gamall timburhjallur, fuðraði upp á tæpri klukkustund og var fallið kl. rúmlega 11. Þarna var það kisa, sem fyrst varð eldsins vör. Kisa að flytja ketling sinn. Sýntð dýrunum meirl niannúð. Frá alda öðli hafa mennirnir tamið dýrin og not- að þau á ýmsan hátt til þess að létta undir með sér i baráttunni fyrir lífinu. Að visu hafa dýrin verið misjafnlega nj'tsöm og gagnleg, bæði dýra- tegundirnar og einstaklingar þeirra. En kjörin, sem þau hafa átt við að búa, bafa ekki síður verið mis- jöfn. Hesturinn er vafalaust einhver nytsamasta skepna, sem mennirnir hafa haft yfir að ráða. I flestum löndum, og ekki sízt á íslandi, hafa hestarnir verið til ómetanlegs gagns fyrir þjóðina, vegna hinna erfiðu samgangna, þegar striða þarf við stórviðri og stór- vötn, þvi að hestarnir eru flestum dýrum skynugri að velja sér færan veg og vöð yíir vegleysur og ár. Þó er eins og menn hafi hvorki skilið, eða kunnað að meta að verðleikum, hve mikil stoð og stytta hesturinn hefir verið íbúum ]iessa erfiða, öfga- og andstæðulands. Frá öndverðu hafa hestarnir verið íslendingum mjög samhentir, og traust þeirra i baráttunni við hin ótryggu náttúruöfl. Þess vegna hefði mátt ætla að þjóðin launaði vel slíka þjónustu. En, því mið- ur, hefir ekki verið siíku að heilsa, og hestarnir orð- ið að sæta verri meðferð og aðbúð, en flestar aðr- ar skepnur. Þeir hafa verið látnir ganga fyrir sér á vetrum og ekki hugsað um að liafa hús yfir þá, enda hefir hvorki verið hirt um að hýsa þá eða

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.