Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.11.1931, Síða 3

Dýraverndarinn - 01.11.1931, Síða 3
Fyrirmyndar hjónaband. Iíæða fyrir minni brúðhjóna. Eftir Steingrím Matthíasson, héraðslækni. Frá því Adam og Eva hófu hjúskap sinn, hafa farið misjafnar sögur af hjónabandinu. Þa'ð hefir viljað gefast misjafnlega, ýmist þótt of þrælbundið og þreytandi, eða laust og léttúðugt. Ef eg, sem er orðinn all-gamall, ætti að segja álit mitt úm hjónabandi-ð —- svona frá almennu sjónarmiði — þá rnundi eg segja: Hjónaband er alvarlegt fyrirtœki (business) — en hitt held eg þó miklu álvarlegra fyrirtæki, að lifa ógiftur, jafnt fyrir karla sem konur. Nú langar mig til, við ;þetta tækifæri, að segja ykkur — kæru brúðhjón, heimamenn og gestir — frá hjónum, sem eg nýlega hefi kynzt. Þau fluttu hingað til Akureyrar fyrir nokkurum vikum, og hafa á þessum stutta tírna kynt sig svo vel, fyrir sinn fyrirmyndar hjúskap, að þau hafa öðlast mik- inn vinahóp. Þau settust að uppi í brekkunni í grend við mig, eða réttara sagt í trjágarðinum sunnan við spítal- ann. Þar bygðu þau sér hreiður; þvi þetta vóru þrastarlijón. En skógarþrestir eru yndislegir fugl- ar, eins og margir vorboðarnir hugljúfu, er heim- sækja okkur á vorin og sem faðir minn kvað um: „Fljúga sunnap með sumargeislum líkir ljúflingum, léttir fuglar, beinir vorhugur bjarta vængi, en Lofn kyndir i litlu brjósti." Þrestirnir okkar tyltu hreiðrinu sínu ofan á horn- stólpa í garðinum, í hlé við reyniviðarhríslu, en þó svo augljóst, að allir, sem framhjá gengu, sáu það. Þeir höfðu tylt því svo tæpt, að drengirnir, sem fundu það, sáu nauðsyn á að festa það við stólp- ann með snæri. Fimm egg komu í hreiðrið, en ungar aðeins úr fjórum. Fimta eggið hvarf, án þess nokkur vissi hvernig. Liklega hefir það verið geldegg, og fugl- arnir sjálfir komið þvi burt, en engar menjar sáust, ekki einu sinni vottur af skurninu. Reyndar sáum við heldur ekki neitt skurnrusl eftir hin eggin, eftir að þeim var ungað út. Yíirleitt var hreiðrið allan timann svo þokkalegt, að þar var sannarlega óflekk- uð hjónasæng. Það var garnan, að fylgjast með búskapnum; öll- um þeim önnum og þeirri umhyggju, sem fylgdi, og hugnæmt var að hlusta á söng makans, þar sem hann sat uppi á símaþræðinum rétt hjá og hélt vörð. Ungarnir vóru loðnir og ljótir í fyrstu, en fríkk- uðu dag frá degi. Og gráðugir vóru þeir, eins og ungar eru vanir að vera, svo að foreldrarnir höfðu ekki við að færa þeim maðk í svanginn. En börnin úr húsunum í grendinni komu þeirn til hjálpar á degi hverjum og var furða hvað ungarnir gátu torg- að stórum dólpungum af ánamöðkum, án þess að verða bumbult af, og án þess þörf yrði á læknis- hjálp vegna kveisu eða botnlangabólgu. Eg vil ímynda mér að foreldrarnir hafa dregið af skamti handa þeim, þegar þeir sáu hvað börnin færðu þeim mikið,

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.