Dýraverndarinn - 01.04.1938, Blaðsíða 12
DÝRAVERNDARINN
M
DÝRAVERNDARINN
kemur aÖ minsta kosti á 11 a s i n n u m út á ári.
Dýraverndarinn er ódýrasta blaðið, sem nú er
gefið út hér á landi. Árgangur hans kostar að eins
j krónur.
Ætlunarverk Dýraverndarans er aÖ vinna að upp-
eldis- og menningarmáli allra þjóöa, en þaö er sú
siðbót, sem fram kemur í verndun málleysingja og
miskunnsemi við munaðarlausa.
Dýraverndarinn er oft prýddur myndum, og í
honum munu verða ritgerðir og sögur eftir ritfæra
menn og merka.
Dýraverndarinn vill vinna sér traust og hylli allra
góðra manna, ungra og gamalla. Og er eigi sizt
ieitað liðsinnis kennara og ungmennafélaga um að
kynna blaðið.
Þeir, sem útvega 5 kaupendur að Dýraverndar-
anum, eða fleiri, fá 20°/o i sölulaun.
Dýraverndunarfélag íslands.
kostað dýra dóma, en gagna lítið eða ekki neitt.
Það þarf bæði höfuð og heila til þess að grynna
í öllum þessum lögum, og enn skarpari gáfur til
að vita, hvað í lögunum sjálfum stendur. — En
þá er loks að fara eftir lögunum, og það reynist
oft þyngsta þrautin.
* * * *
Um Englendinga, hina menntuðu, þrautseigu
þjóð, er vitað, að myndazt hafa ýmsar áhrifamikl-
ar venjur er hæfa sæmd mikillar þjóðar, en þær
eru svo ríkar i meðvitund hennar, að fáir dirfast
að in-jóta í bág við þær. Hjá þessari miklu þjóð
hafa orðið til lög, sem hvergi eru skráð nema í
meðvitund hennar sjálfrar. Þessi lög ýms hafa gilt
um langan tíma og gilda enn. Eru meðal annars
slík óskráð lög vottur um þroska þjóðarinnar og
einn hennar jafnvel fremsti meginstyrkur um leið.
Sem allra flest slík óskráð lög þyrfti að vera til
meðal vor íslendinga. Ein hin helzta og fremsta
grein i óskráðum íslenzkum búnaðarbálki þyrfti að
vera þessi: „Slátturinn er stundaglöggur“.
Ef rækilega væri eftir slíku lagaboði farið, þá
getum vér sofið er haustar að og látið oss dreyma
um veturinn, ekki um heyleysi né harðindi, held-
ur um skepnur í góðum holdum og um sæmilegan
arð af bústofninum, ef engin ófyrirsjáanleg og ó-
viðráðanleg óhöpp vilja til.
Þess vegna finst mér brýn nauðsyn bera til þess
fyrir bænd'ur alla og búalið, að 'muna það sem eitt
hið helzta og fremsta, að „slátturinn er stunda
glöggur".
Raunar má því bæta við, að eigi verður annað
séð, en að sjálf mannsæfin, þetta augnaldik í út-
sæ eilífðarinnar, sé stundaglcigg. Sumir vinna undra
mikið, aðrir vinna undra lítið. Hvorir þeirra skyldi
leggja meira inn á tekjudálk þjóðanna?
Lífið, mannsæfin, er stundaglöggt. En í þessu
sambandi skulum vér festa oss svo í nlinni, að eng-
inn framar gleymi, ,,að slátturinn er stundaglögg-
ur“. — (Erh.)
Vorið.
Nú er krían komin enn,
kát og létt i spori;
fagna’ af hjarta frjálsir menn
frúnni, á hverju vori.
Hún er alveg ófeimin,
eins og vanalega,
heim i tjarnarhólmann sinn
hélt ’ún tignarlega.
Krían ein af öðrum ber
í ástarhætti finum;
allra fugla unga ver
eftir mætti sínum.
Óvinur á enginn grið
undir vængjum þínum ;
aðrir lifa i ást og frið
i unga-bólum sínum,
Verlu, kría, velkomin,
vel úr reisu sloppin;
hallaðu þér í hólmann þinn
og hvíldu lúna kroppinn.
G. P.
Afgreiðslu „Dýraverndarans" annast Hjörtur
Hansson, Aðalstræti 18 (Uppsölum), 2. hæð. Póst-
hólf 566, Reykjavík.
Munið að gjalddagi blaðsins er 1. júlí.
Ritstj.: Símon Jóh. Ágústsson, Njálsgötu 92.
L’lgefandi: Dýraverndunarfélag Islands.
Félaesprentsmiðj an.