Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.09.1938, Page 9

Dýraverndarinn - 01.09.1938, Page 9
DYRAVERNDARINN 37 hana, en einn morguninn, þegar viö komum á fætur, fundum viö Völu hvergi, hvernig sem viö kölluöum á hana; viö leitu'Sum hennar alstaöar sem okkur datt í hug en árangurslaust. Svo liöu tveir dagar, og ekki kom Vala, en aö morgni hins ]möja dags kom hún loksins og var þá auösjáanlega Dúin að gjóta. Viö fórum nú strax aö gefa henni, og húu var svo svöng, aö alt stóö á botni i henni. Þegar hún loks haföi étið nægju sina, hljóp hún á stað. Viö ætluöum aö veita henni eftirför, en strax og húu varö þess vör, stanzaði hún. Þaö var auöséö, aö hún vildi ek'ki að við eltum sig. Viö snérum nú heim viö svo búiö. Næsta morgun kom Vala aftur heim, en strax þegar búiö var aö gefa henni, fór hún aítur. í ]jetta sinn eltum viö hana ekki en fórum upp á bæ, til þess að sjá livert hún færi. Þetta grun- aði hana ekki, og nú sáum viö hana hverfa hjá tóftarbroti í túninu. Viö fórum nú þangaö og sáum þá, aö þarna var lnin búin að grafa sér langa og blykkjótta holu inn, i vegglrrotiö. Holan var þannig gerö, aö ómögulegt var aö komast aö hvolpunum. Við kölluöum nú á Völu, og kom hún þá út, en þaö var áuöséö, að henni þótti miöur, aö viö skyldum vera búin að finna fylgsni sitt, cn ótti hennar hvarf fljótlega ])egar hún sá, aö cngin tilraun var gerö til að ná í hvolpana. , En nú ætlaöi forvitnin alveg aö drepa okkur. Viö vorum altaf aö hugsa um ráö til að ná hvolpunum, svo aö viö gætum skoöaö þá. Seinast datt okkur það ráð í hug, að grafa gegnum vegginn, þar sem viö hugöum að holan mundi enda. Þetta gerðum viö, og þannig náöum við hvolpunum út. Þeir voru ekki nema fjórir, og tveir þeirra dauöir, en tveir voru lifandi, og var annar þeirra hvítur, en hinn mó- rauöur meö hvitan kraga um hálsinn og hvítar fætur. Við létúm þá sem lifandi voru svo i holuna sína aftur, og nú sá Vala, aö hún haföi ekki framar ástæÖu til að vera hrædd um líf barnanna sinna. Nokkru síöar fluttum við hvolpana og Völu heim í bæ, og það var ánægjulegt að sjá, meö hvílikri nákvæmni hún annaðist þá. 'Hvíta hvolpinn nefndum viö Skrítlu, en þann mórauöa Smala. Þegar Skrítla var hálfs árs, var hún látin í burtu, en Smali var kyr heima, hann var svo skemtilegur, aö enginn vildi missa hann. — Svo héldu árin áfram aö liöa. Það var farið að tala um, aö Vala væri oröin gömul og löt, en Smali var fremur góður fjárhundur. Við máttum aldrei heyra á ]>aö minst, að hún yröi drepin. Það þótti líka óþarfi, aö hafa tvo hunda, en við vildum held- ur ekki missa Srnala. En svo var okkur sagt það einn dag, aö nú væri búiö að skjóta Völu. Þannig enduðu þá lífdagar hennar. En það er víst, aö yfir dauöá hennar voru feld mörg falslaus tár, enda átti hún þaö fyllilega skilið, aö hennar væri saknaö. Hún hafði sýnt það oftar en einu sinni, aö hún haföi mikla skynsemi (meiri en alment gerist með hunda), og þó að hún sé nú horfin héðan, þá efast cg ekki um þaö, aö ’hún heldur áfram að lifa á ein- hverjum æöri staö. Góöir lesendur. Takiö eftir dýrunum og' læriö af ])eim. Þaö er mitt álit, aö hver móðir mætti vera upp með sér, sem sýndi barni sínu jafn óeigingjarna og falslausa ást og Vala litla sýndi hvolpunum sín- um. — Hér endar þá sagan hennar Völu. Ingibjörg Jónsdóttir. Vansæmandi meðferð á dýruni. Þaö veröur ekki i vafa dregiö, aö eitt merki menningarinnar er fólgiö í því, að fara sæmilega meö dýrin. Harka manna við dýrin, málleysingj- ana, er skoðaö meðal allra sæmilegra manna og sið- aðra, sem ljóst dænii lélegs uppeldis, eöa grimm- úöar i hugarfari. Og þetta á sér ekki einungis staö gagnvart þeim dýrum, sem vér ölum oss til lífs- uppeldis, og höfurn i þjónustu vorri, heldur á ])aíS að ná einnig til þeirra dýra, sem vilt eru talin, og mennirnir veiöa, hafa i haldi, og á annan hátt komast i samband við. Það olli ])ví nokkurri gremju og reiöi meöal dýravina, aö sjá þá dónalegu og illu meðferö á ske])num, er átti sér stað meö síðustu ferö E.s. Nova nú fyrripart júlímánaðar. Skipið kom sem venju- lcga upp aö austurlandinu til Austfjarða. Á Reyö- arfiröi tók ski])iö átján tih tuttugu kassa með refa- yrölingum, sem þaö átti aö fara meö til Dýra- fjarðar. Sagt var aö allir þessir yrölingar væru vilt- ir teknir í grenjum á ýmsum stöðum, en hvort sem þaö hefir veriö eða ekki, ]>á voru þetta lifandi dýr. En hvernig var svo búiö um þessi grey ? Þeim er hrúgaö saman í litla kassa, sem síðan eru slegnir

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.