Dýraverndarinn - 01.09.1938, Síða 11
DÝRAVERNDARINN
39
Farid' vcl mcð kindurn-
ar í rcUimum.
Um meðferð á skepnum.
Eitt af ]?ví, sem heyrir til góðrar meðferðar sau'ð-
fjár, er smalamenskan og innrekstur fjárins og meö-
ferð þess í réttinni. Hefi eg verið sjónarvottur að
því, að þessu er nokkuð áfátt, t. d. hvaða lag menn
hafa á því, að ná kindinni, svo sem að) hanga ekki
i ullinni, heldur reyna að ná í hornin og yfir höfuð
gæta þess, að sýna kindinni svo mikla lipurð i um-
gengni, sem auöið er. Hefi eg séð mann berja í
hakið á kind, er var óþæg að rekast inn í hús; er
slíkt ótækt og vítavert. Einnig ]rarf að varast að
Ireita hundum við smölun meira en góðu hófi gegnir.
Hina sömu lipurð í umgengni þarf einnig að sýna
við nautpening og hross, svo sem stundvísi við
gjafir kúa og mjaltir, og mætti um það skrifa langt
mál. Sama gegnir og um hross. Vil eg tilfæra dæmi
um það. Eg átti eitt sinn reiðhest (,,skjökt“-hest),
er var nokkuð hlaupstyggur og því erfitt að ná.
Eitt sumar var snúningapiltur hjá mér; sótti hann
jafnan hesta og er hann var í sendiferðum, sem
oft kom fyrir, reið hann venjulega þessum stygga
hesti, þvi að hann var þægilegur til reiðar. Er pilt-
urinn var búinn að vera nokkurn tíma, Hrá svo við,
að hesturinn stóð kyr, er pilturinn kom að sækja
hann. Orsökin var sú, að í hvert sinn sem drengur-
inn spretti af og tók beizlið út úr hestinum, lét hann
vel að honum og klóraði honum dálitla stund. Hygg
eg, að mjög sé undir tamningu hesta komið, hvort
]?eir verða þægir og gæfir. (Bezt er að gjöra folöld
strax mannelsk, ef því verður við komið. Margt
mætti skrifa um þetta efni, en hér læt eg' staðar
numið að sinni. E. Th.
Á ísafirði
var stofnað dýraverndunarfélag þann 9. maí s.l.
Alls mættu á stofnfundi félagsins 18 manns, og
gerðust þeir allir meðlimir þess. Stjórn félagsins
skipa: Grírnur Kristgeirsson, bæjarfulltrúi, A.
Baarregaard, tannlæknir og Jón Jóhannsson, lfig-
regluþjónn.
Stjórn dýráverndunarfélagsins á fsafiröi- sendi
lræjarstjórninni erindi, þar sem hún segist hafa skoð-
að ýms ske]muliús bæjarbúa, og telur mörg þeirra
með öllu óhæf. Fór stjórn dýraverndunarfélagsins
fram á það, að bæjarstjórn láti rífa kofaþyrping-
una við Sundstræti, og að framvegis verði ekki
leyft að reisa skepnuhús nema með leyfi bæjár-
stjórnar og að hún hafi samþykt útlit þeirra. —
Samþykti bæjarstjórnin að flytja skepnuhúsin, svo
að þau standi ekki í miðjum bænum.