Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.03.1939, Side 12

Dýraverndarinn - 01.03.1939, Side 12
DÝRAVERNDARINN 16 DÝRAVERNDARINN kemur aÖ rninsta kosti á 11 a s i n n u m út á ári. Dýraverndarinn er ódýrasta blaðið, sem nú er geíið út hér á landi. Árgangur hans kostar að eins 3 krónur. Ætlunarverk Dýraverndarans er aÖ vinna að upp- eldis- og menningarmáli allra þjóöa, en þaö er sú siðbót, sem fratn kemur í verndun tnálleysingja og miskunnsemi við munaðarlausa. Dýraverndarinn er oft prýddur myndútn, og i honum munu verða ritgerðir og sögur eftir ritfæra menn og merka. Dýraverndarinn vill vinna sér traust og hylli allra góðra manna, ungra og gamalla. Og er eigi sízt leitað liðsinnis kennara og itngmennafélaga utn að kynna blaðið. Þeir, sem útvega 5 kaupendur að Dýraverndar- anurn, eða fleiri, fá 20% i söluiaun. Dýraverndunarfélag Islands. „Betri er belgur en barn." Hann haföi þann sið, hundeigandinn, að koma við hjá slátraranum dag hvern og kaupa „úrgangskjöt“ handa rakkanum sínum. Keypti venjulega fyrir‘20 eöa 25 aura og fékk talsvert vænan skamt. En væri maöurinn vant viö látinn, sendi hann drenginn sinn þessara erinda. Nú er þaö einhverju sinni sent óftar, að drengur- inn er sendur, og segir hann þá viö slátrarann: —• Eg á að kaupa „hundakjöt" fyrir 20 aura. En þú mátt ekki hafa þaö eins feitt og seinast, þvi aö hann pabbi varð fárveikur af því! -k Hlaupa-gikkir. Skógar-geitin er talin býsna frá á fæti, en ekki þolin aö sama skapi. Segja kunnugir menn, aö á stuttu færi geti hún hæglega hlaupið svo hratt, aö svari til go km. á klukkustund — eða rúmlega þaö. öllu sprettharðari er þó Gepardinn. (Hann er i ætt viö liund og kött og svipar til beggja). Hann er ekki „þol-hlaupari“, fremur en skógar-geitin. En stuttan spöl getur hann leikandi fariö meö þeim hraöa er svarar til aö minsta kosti 100 km. á klukkustund! 'k Orðfær páfagaukur. Svo er taliö aö páfagaukur nokkur í Havana muni vera einna „orðfærastur" állra páfagauka í heiini nú sem stendur. Honum hefir m. a. veriö kent „Faöir vor“ á tveim tungumálum, ensku og spænsku, og þylur „piltur“ þaö svo reiprennandi á báöum málunum, aö hvergi skeikar! Skpítlup. — Ljótur varð Jón á svipinn, þegar eg sagði honum, aö nú væri Bína farin að setja færilykkju i pilsin sín. —- Eg get því nærri. — Hann sagöi: Já — þetta á maður upp á and- skotans baöstofukuldann í vetur! * Þegar rikisarfinn italski og kona hans eignuöust son, eftir sjö ára hjúskap, stóö í blaði einu: — Ætli Mussolini þakki sér nú ekki þetta — eins og alt annaö! ★ Þau sátu saman í lggubekknum, kystust í sífellu og elskuðu hvort annað. Þaö var komiö fram yfir miönætti og glaöur máninn skein inn til þeirra: Hún: Helduröu aö fólk búi i tunglinu? Hann: Nei, þaö held eg ekki. En eg get svo sem dregiö gluggatjöldin fyrir, ef ]?ér þykir það viss- ara! — ★ — Flýttu þér nú, Guðmundúr! Eg má ekki vera aö þessu drolli. — „Búinn er hundur þegar hristir sig“, segir máltækíö — og nú á eg bara eftir að kyssa konuna! Af'nreiðslu og innheimtu „Dýraverntlarans“ annast Hjörtur Ilansson, Aðalstræti 18 (Uppsölum), 2. hæð. Pósthólf 566, Reykjavík, og þanfjað eru menn vin- samlega beðnir að snúa sér með fyrirspurnir sínar, cða annað, sem við kemur blaðinu. Munið að gjalddafji blaðsins er 1. júlí. Ritstj.: Páll Steingrímsson. Útgefandi: Dýraverndunarfélag íslands. Félagsprentsmiðjan h.f.

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.