Dýraverndarinn - 01.02.1945, Side 14
8
DÝRAVERNDARINN
slíkar myndir verða þakksamlega þegnar og
þær birtar í blaðinu eftir því, sem henta
þykir.
Hér hefir j)á lauslega verið stiklað á ýmsu
velunnurum blaðsins og góðum dýravinum
lil nánari athugunar. Væntir Dýraverndarinn,
að þessi fáu orð megi verða sem flestum upp-
örfun um, að senda honum hvers konar el'ni
til birtingar.
Að gefnu tilsfni
vilt ritstjórinn tuka þetta fram:
Frú síðustu blöðunum tveim, (nóvember-
o<j desemberblaðinu 1944), hafði verið geng-
ið tit fullnustu 15 dag desembermánaðar, og
þá aðeins eftir að renna þeim í gegnum
prentvélina og hefta þau. Var eigi annað vit-
að þái, en að þau mundu koma út fyrir jól,
eða í síðasta lagi á mi.lli hátíðanna. En vegna
óviðráðanlegra anna í prentsmiðjunni tókst
eigi að fá þau prentuð fyrr en eftir áramót.
Eru kaupendur beðnir að afsaka þennan
drátt, sem hvorki var á valdi ritstjóra né út-
géfanda að koma í veg fyrir.
Og sama gegnir um þetta fyrsta blað að
það hefir orðið síðbúnara en ætlast var til,
vegna mikilla anna i prentsmiðjunni.
Til kaupanda Dýraverndarans.
Frá afgreiðslumanni blaðsins.
Munið, að gjalddagi „Dýraverndarans“ er 1.
júlí ár hvert. — Þökk sé þeim, sem þegar hafa
sýnt blaðinu skil. — En það eru of margir af
kaupöndum blaðsins, sem enn hafa ekki greitt
skuld sína, jafnvel sumir fyrir fleiri ár, þrátt
fyrir ánýjuð tilmæli vor til þeirra um að gera
afgreiðslunni sem fyrst skil. — Útgáfa „Dýra-
verndarans“ er mjög undir því komin, að
kaupendur hans standi í skilum.
Afgreiðslu og innheimtu „Dýraverndarans“
annast Hjörtur Hansson, Bankastræti 11 (mið-
hæð), pósthólf 566, Reykjavík, og ber að senda
honum allar greiðslur blaðsins og tilkynningar
um nýja kaupendur. — Árgangur „Dýravernd-
arans“ kostar nú 10 krónur. — Það, sem til
ar af eldri árgöngum, er selt mjög lágu verði,
eða kr. 5,00 árg.
Verðlaunakeppni.
Samkvæmt skipulagsskrá
Minningarsjóðs
Jóns Ólafssonar bankastjóra
verða á ])essu ári (1945) veitt þrenn verðlaun úr
sjóðnum, að upphæð 90 krónur, 45 krónur og
25 krónur fyrir ritgerðir um dýraverndunar-
málefni.
Þeir, sem keppa vilja um verðlaun
þessi, sendi ritstjóra Dýraverndarans
ritgerðir sínar fyrir lok ágústmánað-
ar næstkomandi,
einkenndar með sérstöku merki, og fylgi nafn
höfundar, ásamt einkennismerki greinarinnar,
i lokuðu umslagi.
Stjórn Dýraverndunarfélags íslands
dæmir um ritgerðirnar og ákveður hverjir
hljóta skuli verðlaunin.
Ritgerðirnar verða birtar í Dýraverndaranum.
Stjórn Dýraverndunarfélags íslands.
Áheit og gjafir
er undirriluðum hafa borizt.
Áheit á Dýraverndunarfél. íslands frá G.
Þ. 25 kr. — Gjafir til Dýraverndunar-
félags íslands: Frá frú Sigríði Jensson, Hring-
braut 150 kr. 40.00, frá Sveinbjörgu Jónsdóttur,
Heiðarseli á Siðu, í minningu um hcst liennar
„Bleik“ kr. 100.00, frá Margréti Einarsdóttur,
Vesturholti undir Eyjafjöllum, í minningu um
hestinn „Kóp“ kr. 50.00. Samtals Kr. 215.00.
Kærar þakkir. F. li. Dýraverndunarfél. íslands
Hjörtur Hansson,
afffrm. „Dýraverndarans.
Heimilisfang
ritstjóra Dýraverndarans er við Grettisgötu
07, (sími 4887), og sendist þangað hvers kon-
ar efni, sem ætlað er til birtingar í blaðinu.
Ritstjóri: Einar E. Sæmundsen.
Utgefandi: Dýraverndunarfélag ístands.
k
Herbertsprent.