Alþýðumaðurinn - 01.11.1955, Qupperneq 1
XXV. írg.
Þriðjudagur 1. nóv. 1955
39. tbl.
Halldðr Kiljan lainess wdur
bðtnncnntaverðlfiunum Iðbels
Hinn 27. október síðastlið-
inn samþykkti sænska aka-
demían á fundi sínum, að
veita Halldóri Kiljan Laxness
bókmenntaverðlaun Nobels
fyrir árið 1955. í greinargerð
þeirri, sem akademían gaf út
um veitingu verðlaunanna,
segir, að þau séu veitt Hall-
dóri fyrir að hafa í skáldskap
sínum hafið hina fornu frá-
sagnarlist íslendinga til nýs
vegs.
Halldór Kiljan Laxness hef-
ir fyrr verið nefndur sem lík-
legur og verðugur rithöfund-
ur til að hljóta þá miklu
sæmd, sem það þykir að
hreppa Nóbelsverðlaunin, og
að sjálfsögðu hlýtur það að
gleðja íslenzka þjóð mjög, að
einn sona hennar hefir nú
hlotið þennan heiður.
Samkvæmt sænskum blaða-
ummælum og ummælum
merkra sænskra rithöfunda og
bókmenntafræðinga er svo að
sjá, sem úthlutun bókmennta-
verðlaunanna til Halldórs
mælist mjög vel fyrir og þvki
verðskulduð, en oft hefir aka-
demían verið nokkuð gagn-
rýnd fyrir val sitt.
Bókmenntaverðlaunin í ár
nema 190.214 kr. sænskum
eða um 600 þús. kr. ísl., og
hefir ríkisstjórnin lýst því yf-
ir, að hún muni beita sér fyrir
því, að Kiljan þurfi hvorki að
greiða ríki né sveitarfélagi
skatt af þessum sæmdarlaun-
um.
Þegar fréttin um verðlauna
veitinguna barst hingað til
lands vakti hún ánægju meðal
manna, og forsetinn sendi
skáldinu heillaskeyti með
þennan nýja sæmdarauka,
einnig menntamálaráðherra,
Alþýðusamband íslands og
fleiri aðilar, einstaklingar
sem opinberar stofnanir.
Eins og öllum má ljóst vera
er verðlaunaveitingin til Hall-
dórs Kiljans Laxness líka
sæmdarauki íslenzkri þjóð.
Það er verið að verðlauna
bókmenntaafrek hennar, um
leið og verið ,er að verðlauna
bókmenntaafrek skáldsins.
Þetta er því mikil og ánægju-
leg land- og þjóðkynning. Og
svo er eitt, sem við megum
ekki gleyma og kannske gerir
þessa verðlaunaveitingu allra
ánægjulegasta: Þótt Kiljan sé
mikill og snjall höfundur, þá
er hann alls ekki Fjallið eina
í íslenzkum nútímabókmennt-
um. Við eigum önnur skáld
stór en hann. Það sýnir grósku
og þrek íslenzkrar menningar
nú, svo að við getum vissu-
lega verið stolt af.
___*____
Ágælir listamenn
á ferð
Síðastliðið föstudagskvöla
gafst Akureyrarbúum kostur
á að heyra og sjá 3 ágæta tón-
listarmenn frá Rússiandi.
Komu þeir fram í Nýja-Bíó á
vegum Akureyrardeildar MÍR
og voru í senn virðulegir og
glæsilegir fulltrúar sinnar
þjóðar á tónlistarsviðinu.
Tónlistarmenn þessir voru
fiðluleikarinn Edvard Gratsj,
er starfar við Filharmoníu-
hljómsveitina í Moskvu, Sofía
Vakman, píanóleikari við
Filharmoníuhljómsveitina í
Leningrad, og Sergei Sjapos-
nikov, einsöngvari við óperu-
leikhúsið í Leningrad.
Hljómleikarnir í Nýja Bíó
voru tvískiptir: I fyrra þætti
lék Edvard Gratsj einleik á
fiðlu og annaðist Sofía Vak-
man undirleik, en í síðari
þætti söng Sjaposnikov ein-
söng með undirleik Sofíu Vak
mans.
Gratsj, sem er hrífandi
fiðluleikari, lék verk eftir Vi-
lali, Mendelsshon, Smetana,
Rakhmaninov, Prokofév,
Brahms og Sarasate, en auk
þess lék hann tvö aukalög fyr-
ir hina hrifnu áheyrendur,
sem klöppuðu honum óspart
lof ílófa.
Sjaposnikov, sem hefir
geysivolduga og blæríka bary-
tonrödd, söng lög eftir Sjapo-
rin, Gurilév, Glinka, Rubin-
stein, Kotsjúrov, Grieg og
Tjækovsky og tvö aukalög eft-
ir að hafa verið klappaður
tvívegis fram.
Undirleikarinn Sofía Vak-
man aðstoðaði báða lista-
mennina af mikilli leikni, og
hlaut hún, sem þeir, óskipta
aðdáun áheyrenda, sem fylltu
húsið.
H>n »íarjffilfl« stjórnnr
stefna Frcmsóhnnr og
Sjfllístíiis í reynd
Bankarnir lækka útlán
um 10%.
Bankarnir hafa ákveðið
að draga úr útlánum sínum
um 10 af liundraði á nœst-
unni. Landsbankinn, Ut-
vegsbankinn, Búnaðar-
bankinn og Iðnaðarbankinn
hafa samkvœmt tilkynn-
ingu, sem þeir hafa sent
viðskiptavinum sínum, á-
kveðið að lœkka útlán um
10% fyrir desemberlok
næstkomandi. Á þetta við
hlau.pareikrdngsyfirdrætti,
víxilkvóta og kaup á verzl-
unarvíxlum. Aðrar víxil-
skuldir verða fœrðar niður
á sama hátt. Segir Lands-
bankinn, að horfur í efna-
hags- og peningamálum
þjóðarinnar geri þetta nauð
synlegt, en þœr hafi farið
stórversnandi undanfarið.
Sdmvinnushólinn tehinn
tii stflrfn di Bifröst
Samvinnuskólinn var settur
að Bifröst í Borgarfirði fyrra
laugardag og hóf hann þar
með starfsemi sína eftir flutn-
inginn frá Reykjavík, þar sem
skólinn hefir starfað tæplega
fjóra áratugi. Guðmundur
Sveinsson, skólastjóri, sem nú
tekur við stjórn skólans, færði
í setningarræðu sinni þakk-
læti skólans til fyrrverandi
skólastjóra, Jónasar Jónsson-
ar, og konu hans frú Guðrún-
ar Stefánsdóttur, svo og ann-
arra, sem unnið hafa að vel-
ferðarmálum skólans.
Auk Guðmundar töluðu
þeir séra Bergur Björnsson,
prófastur í Stafholti, Erlend-|
ur Einarsson, forstjóri SÍS, og
Benedikt Gröndal, ritstjóri.
Samvinnuskólinn verður nú
aftur tveggja vetra skóli, en í
vetur verður þar aðeins annar
bekkurinn með 32 nemend-
um. Nemendafjöldi mun því
tvöfaldast næsta vetur. Er að-
búnaður skólans allur hinn á-
gætasti í hinum nýju húsa-
kynnum að Bifröst.
Kennarar skólans verða
auk skólastjóra þeir Gunnar
Grímsson, Snorri Þorsteins-
son og Hróar Bjömsson frá
Brún.
reyrar hcfir
Skólinn minnist 25 ára afmælis síns
með samsæti að Hótel KEA í kvöld
í dag á stærsti framhalds-
skóli þessa bæjar, Gagnfræða-
skóli Akureyrar, 25 ára starfs-
afmæli, því að 1. nóvember
1930 var hann settur í fvrsta
sinn. Þessa afmælis síns
minnist skólinn í kvöld með
samsæti að Hótel KEA, og um
leið minnist hann 20 ára far-
sællar skólastjórnar Þorsteins
M. Jónssonar, en engum
manni einum á skólinn svo að
þakka vöxt sinn og viðgang
sem honum.
Gagnfræðaskóli Akureyrar
var stofnaður með lögum 19.
maí 1930, og bar Erlingur
Friðjónsson, þáverandi þing-
maður bæjarins, frumvarpið
að þeim lögum fram á al-
þingi. Hinn 1. nóv. það ár var
svo skólinn settur í fyrsta sinn
af Sigfúsi Halldórs frá Höfn-
um, er þá hafði verið ráðinn
skólastjóri. Var skólinn til
húsa í húsi Iðnaðarmannafé-
lags Akureyrar við Lundar-
götu, og starfaði einn fastur
kennari annar en skólastjór-
inn þá við skólann: Jóhann
Frímann, núverandi skóla-
stjóri.
Hinn fyrsta vetur skólans
stunduðu 46 nemendur nám
við hann, en auk þess starf-
rækti skólinn kvölddeild með
16 nemendum og annaðist
Iðnskólann með 35 nemend-
um.
1932 útskrifaði skólinn
fyrstu gagnfræðingana eftir
tveggja vetra nám. 1934 var
3. bekk bætt við skólann, og
var skólinn þaðan í frá
þriggja vetra skóli, unz nú-
verandi fræðslulög tóku gildi,
að hann varð fjögurra vetra
skóli.
Árið 1938 bætti Gagn-
fræðaskólinn Verzlunarmanna
húsinu við Gránufélagsgötu
við húsnæði sitt. Bætti það í
bili úr brýnni húsnæðisþörf,
en var aðeins bráðabirgðaúr-
ræði. Veturinn 1939—40 var
nemendafjöldinn orðinn um
100 manns og óx ár frá ári.
Varð þá ekki öllu lengur
frestað að byggja yfir skólann
og 1942 hófst bærinn handa
um þá framkvæmd. Lauk
þeirri byggingu 1944, svo að
allt húsið mætli nota. Þá um
haustið settust 200 nemendur
í skólann.
Árið 1944 var fyrst hægt
að hefja verklega kennslu við
skólann, og haustið 1947 er
skólanum skipt í bóknáms- og
verknámsdeildir. Hefir verk-
lega námið æ síðan sett mik-
inn svip á skólastarfið.
Nú í vetur eru í skólanum
um 350 nemendur, en alls
munu um 2200 nemendur
Framhald á 2. síðu.
Kvenfélag
Alþýðuflokksins
á Akureyri
heldur félagsfund í kvöld
(þriðjudag 1. nóv.) í Túngötu
2, kl. 8.30 síðdegis.
FUNDAREFNI:
1. Kosin bazarnefnd.
2. Rætt um vetrarstarfið.
Konur, fjölmennið.
Stjórnin.