Alþýðumaðurinn - 13.11.1956, Side 4
Hremsur
Fylgst með tímanum
á sína vísu.
2. nóv. s. 1. fjölluðu fréttir allra
útvarpsstöðva og nœr allra blaða
um innrós Breta og Frakka á
Súeseiði og herflutninga Rússa til'
língverjalands. Blaðið ísl. hafði
þó sérstöðu. Það kom út þennan
dag og minntist ekki einu orði á
innrás Breta og Frakka.
Hins vegar hafði blaðið að
flytja heilsíðu-grein um œðakölk-
un, og sögðu gárungarnir, að allt-
af vissi þó ritstjórinn, hvað íhald
inu kæmi!
Esnkennilegt
happdrætti.
Vm., sem út kom sl. föstudag
fiytur lesendum sínum skrá yfir
vinningsnúmerin í Happdrætti
Þjóðviljans nýafstöðnu og kveð-
ur vinninganna að vitja á skrif-
stofu Þjóðviljans. Síðan segir
L'laðið orðrétt:
„Þeir einstaklingar hér á Ak-
ureyri, sem höfðu miða til sölu,
en hafa ekki enn gert full skil, eru
vinsamlegast beðnir að gera það
sem fyrst á skrifstofu Verka-
mannsins.“
Vér höfum vanizt því, að alla
miða bæri að innheimta áður en
dregið er, en það virðist sem sagt
algert aukaatriði í happdrættum
Þjóðviljans. Hver gæti ástæðan
verið?
,/fBauluðu ekki á
umboðslaunin".
Reykjavíkurblöðin — nema
Morgunblaðið og Vísir, en þau
hafa ekki mótmælt fréttunum ■—
skýra svo frá, að Pétur Benedikts-
son, tengdasonur Ólafs Thors,
bróðir Bjarna Benediktssonar
íyrrverandi menntamálaráðherra,
núverandi bankastjóri, en fyrr-
verandi ambassador, hafi stjórn-
að skrílslátum Heimdellinga við
rússneska sendiráðið 7. nóv. s. 1.
Lét hann liðsmenn sína m. a.
baula á ýmsa gesti, sem komu í
sendiráðið í tilefni dagsins (bylt-
ingarafmælið), en grýta suma
þeirra fúlum eggjum og rotnum
tómötum. Er að vonum framkoma
manns þessa undrunarefni síðan
um allt land — hvaða skoðanir
sem menn svo annars hafa á því,
að íslendingar skyldu heimsækja
sendiráðið þennan dag, eins og
mál stóðu.
Það vakti athygli hlutlausra á-
horfenda, að meðal heimsækj-
enda — sem annars voru nær ein-
göngu menn úr utanríkisþj ónust-
unni, sem fóru af embættisskyldu,
og svo kunnir sósialistar, þekktir
af langdýrkun á Rússum — voru
tveir synir Gísla Jónssonar, áður
þingmanns Barðstrendinga, en
Gísli og synir hans hafa umboð
fyrir rússneska bíla og landbún-
aðarvélar hér á landi. Mun Gísla
og sonum hafa þótt viðurhluta-
mikið að baka pyngju sinni óvin-
sældir með því að mæta ekki í
sendiráðinu.
Ekki bauluðu Heimdellingar
heldur á þá bræður. Mun þeim
hafa þótt sem erindið væri full-
komlega réttmætt.
Þriðjudagur 13. nóvember 1956
Mmsstyrkir í Bandaríkjunum
Eins og á undanförnum árum hefir
Íslenzk-Ameríska félagið milligöngu
um útvegun námsstyrkja í Bandaríkj-
unum fyrir íslenzka námsmenn, er lok-
ið hafa kandidats- og stúdentsprófum.
Styrkir þessir eru aðallega tvenns
ktnar:
1. Kandídatastyrkir:
Styrkir á vegum Bandaríkjastjórnar,
sem eru mjög ríflegir og nema ferða-
kostnaði og öllum nauðsynlegum dval-
aikostnaði í 1 ár. Þessir styrkir eru að-
eins fyrir þá, sem lokið hafa háskóla-
prófi, er samsvarar a. m. k. AB prófi,
Eru þeir einkum ætlaðir starfandi íólki
í ýmsum greinum.
2. Kandidata- og stúdentastyrkir:
Fyrir milligöngu stofnunar í Banda-
ríkjunum, Institute of International
Education, veita ýmsir háskólar og
stofnanir í Bandaríkjunum styrki til
námsins, bæði kandidata og stúdenta.
Þeir nema yfirleitt skólagjöldum og
eir.nig oft fæði og húsnæði.
Gera má ráð fyrir að a. m. k. sex
kandidatar og þrír til fjórir stúdentar
hljóti styrki fyrir skólaárið 1957—’58.
Við veitingu þessara styrkja koma
aðeins til greina íslenzkir ríkisborgar-
ar, innan 35 ára aldurs, við góða heilsu,
er hafa gott vald á enskri tungu og
vilja fara vestur eingöngu til náms.
F.Jtirtaldið menn hlutu námsstyrki á
vtgum Íslenzk-Ameríska Félagsins
skólaárið 1956—’57:
Halldór Jónatansson, lögfr. alþjóða-
réttur, Fletcher School of Law and
Diplomacy.
Guðmundur Pálmason, verkfr., eðlis-
g efnafræði. Purdue University.
Ásgeir Valdimarsson, verkfr., verk-
ræði, Georgia Institute of Technology.
Piögnvaldur Jónsson, prestur, trúar-
iragðasaga, Yale Divinity of School.
Þórunn Haraldsdóttir, viðskiptafr.
Viðskiptafræði. University of Pennsyl-
vania.
Huld Gísladóttir, stúdent, enska og
amerískar bókmenntir, Sarah Lawrence
College.
Ólafur R. Jónsson, stúdent, stjórn-
vísindi, Yale University.
Á það skal bent, að þeir nemendur
menntaskólanna, er ganga undir stúd-
entspróf næsta vor, geta sótt um þessa
Vegaskemmdir
í nóvember sem af er hefir
verið einmunatíð hér norðan-
lands, enda alautt í byggðum og
á fjallvegum víðast hvar. Hiti
hefir suma daga farið upp í 12—
16°. í byrjun síðustu viku gerði
víða stórrigningu og hljóp ærsla-
, vöxtur í ár, en sumstaðar féllu
' skriður. Urðu skemmdir á veg-
um, m. a. hér fram í Eyjafirði, í
Oxnadal og á Öxnadalsheiði. All-
ir eru þessir vegir þó nú færir,
en ekki hefir verið hægt að gera
| við skemmdirnar að fullu.
Svo ofsalegur vöxtur hljóp í
Hörgá, Oxnadalsá og Djúpadalsá
við rigningar þessar, að með
I eindæmum þótti.
styrki á sama hátt og þeir, sem lokið
hafa stúdentsprófi.
Umsóknareyðublöð verða afgreidd á
eftirtöldum 6töðum:
Skrifstofa Íslenzk-Ameríska félags-
ins, Hafnarstræti 19, Reykjavík. Skrif-
stofa Íslenzk-Ameríska félagsins, Akur-
evri. Ennfremur skrifstofu Háskóla ís-
lands, skólaumsjónarmanni Mennta-
skólans í Reykjavík. Skólameisturum
Menntaskólans á Akureyri og Laugar-
vatni. Umsóknum sé skilað á skrifstofu
Íslenzk-Ameríska félagsins, Hafnarstr.
19, Reykjavík, fyrir 15. nóv. n. k.
Þá skal vakin athygli á því, að
Íslenzk-Ameríska félagið hefir einnig
milligöngu um að koma ungum íslend-
ingum til svokallaðrar tækniþjálfunar
í Bandaríkjunum. Er hér um að ræða
fvrirgreiðslu um útvegun starfs í
Bandaríkjunum, um eins árs skeið,
fyrir þá, sem vilja aíla sér frekari þjálf
unar í starfsgrein sinni. Viðkomandi
íæi greidd laun, sem við venjuleg skil-
yiði eiga að nægja fyrir fæði og hús-
næði.
Allar nánari upplýsingar varðandi
fiamangreinda námsstyrki veitir skrif-
stofa félagsins, Hafnarstræti 19, Rvík,
sem er opin þriðjudaga kl. 17,30—18,30
og fimmtudaga kl. 18—19. Sími 7266.
(Frá ísl.-Ameríska Félaginu).
Sjólfstæðið gugnaði á
útifundinum
Sjálístæðisflokkurinn reyndi að
koma á útifundi í Rvík s.l. sunnu
dag með framferði Rússa í Ung-
verjalandi að yfirvarpi, en síðan
átti að snúa vopnunum að ríkis-
stjórninni og veita forsætisráð-
herra heimsókn. Þegar tilgangur-
urinn varð ljós voru undirtektir
svo dræmar, að Sjálfstæðið
heyktist á fundarhöldunum!
Svo fór urn sjóferð þá.
f mínútna vinnustöðvon
í samúðarskyni við
Ungverja
Síðastliðinn fimmtudag var að
! beiðni Alþjóðasambands frjálsra
verkalýðsfélaga víða um Evrópu
5 mín. vinnustöðvun kl. 11-11.05
árdegis í samúðarskyni við ung-
^ versku þjóðina og til að lýsa and-
úð sinni á framferði Rússa þar í
landi.
A. S. í. var eitt þeirra sam-
banda víða um lönd sem fékk slík
tilmæli, en stjórnin taldi tíma of'
^ stuttan til stefnu og beitti sér því
ekki fyrir vinnustöðvun meðlima'
sinna. Hins vegar beittu nokkur 1
verkalýðsfélög í Reykjavík og
B. S. R. B. sér fyrir þessu og létu
útvarpa tilmælunum. Var vinnu-
stöðvun framkvæmd víða í
Reykjavík og einnig úti á landi,'
l. d. á Akureyri í öllum verzlun-
um og skrifstofum þeirra.
Þá var fimm mínútna þögn í
skólurn landsins í sama augna-
miði, fánar blöktu víða í hálfa
stöng og á ýmsan annan hátt
rninntist þjóðin Ungverja. Meðal
annars barst Rauða kross söfnun- j
inni til Ungverja myndárleg gjöf
frá A. S. í. 15 þús. kr., Eimskip’
gaf 10 þús. kr., Þjóðkirkjan 10 j
þús. kr., Vinnuveitendasambands
íslands 20 þús. kr. og Landsmála-
félagið Vörður 10 þús. kr.
Þá var beðið fyrir ungversku
þjóðinni í kirkjum landsins síð-
astliðinn sunnudag.
Auglýsið
í Alþýðumanninum.
AF
NÆSTIJ
GRÖSIJM
Sjötugur. 7. nóvember síðastl.
varð Kristján Jónsson, bakara-
meistari, Strandgötu 37, Akur-
eyri, sjötugur. Kristján er Þing-
eyingur að ætt, en hefir um fjöl-
mörg ár verið búsettur hér í bæ,
hinn mesti sæmdarmaður í hví-
vetna.
Dánardœgur. Hinn 8. nóv. s. 1.
ardaðist Pálmi J. Þórðarson,
C-núpufelli, áður merkisbóndi þar
og oddviti Saurbæjarhrepps um
fjölmörg ár. Hann var liðlega
sjötugur að aldri.
Kvenfélagið Framtíðin hefir
fjáröflunardag fyrir starfsemi
sína næstk. sunnudag, 18. þ. m.,
að Hótel KEA. Bazar hefst kl.
2.30. — Verða þar á boðstólum
margir eigulegir munir. Einnig
vcrður selt kaffi frá kl. 3. Um
kvöldið verður félagsvist með á-
gætum verðlaunum og dans á eft-
ir til kl. 1. Hljómsveit leikur. Ak-
ureyringar! Drekkið síðdegis-
kaffið að Hótel KEA. Styrkið gott
málefni.
Nýja Bíó sýnir síðar í vikunni
stórmyndina Júlíus Cæsar, en hún
er gerð eftir hinu fræga leikriti
Shakespeares um þennan stór-
brotna rómverska höfðingja og
þvkir mjög vel tekin og gerð og
val leikara vandað eftir föngum.
Meðal annars má geta þess, að
Marlon Brando leikur Brutus, eitt
aðalhlutverkið í myndinni, en
hann er nú einn viðurkenndasti
kvikmyndaleikari, sem uppi er.
Frá ájengisvarnarneínd Akureyrar. -
Skrifstofa nefndarinnar verður opin í
Varðborg fyrst um sinn á mánudags-,
miðvikudags- og föstudagskvöldum kl.
8—10. Þeir, sem vilja vinna gegn opn-
un áfengisútsölu á Akureyri eru vin-
samlega beðnir að gefa sig fram á
ekrifstofunni eða hringja í síma 1481.
VIN BER
E P L I
Delicius, kr. 14,00.
Jónathan, kr. 9,50.
Kaupfélag
verkamannc
— Kjörbúð —
Uppboð
Laugardaginn 17. þ. m. fer
fram uppboð við lögregluvarð-
stofuna á Akureyri og hefst það
kl. 1 e. h.
Selt verður: Ýmsir munir, sem
lengi hafa verið í óskilum hjá
lögreglunni, s. .s. reiðhjól, sleðar
o. fl. Ennfremur verður selt nokk-
uð af búsmunum.
BÆJARFÓGETI.
\Ov
- #
1 <&■ ^ «*•
1 Axld—
- ' '