Alþýðumaðurinn - 12.02.1957, Blaðsíða 1
Málflutningu* Sjálfstæðismanna:
lf fuí di rii cran itdd stjórojr, leggjum lii
til di |iioð 'vtrii rtfii og efnt
dl njrrd kisningi
Að öðru leyti höfum við ekkert til
mála að leggja
lýðskrumara, sem bcra ekki fram
neinar ákveðnar tillögur, segja
eitt við þennan aðila og annað við
hinn, láta einn ræðumann segja
þetta og annan hitt, eitt i dag og
annað á morgun. Sjálfstæðis-
flokkurinn gerði cngar tillögur,
þegar vandamál útflutningsfram-
leiðslunnar voru til úrlausnar
fyrir síðustu áramát. Stærsti
flokkur þjóðarinnar hafði enga
skoðun á því, hvort lækka ætti
Aldrei hefir dómur almennings
verið jafn samróma um nokkrar
útvarpsumræður og þær, sem
fram fóru fyrra mánudag:
Sjálfstæðið stóð sig með
afbrigðum illa.
Menn hafa reynt að finna á
þessu eðlilega skýringu, og orðið
fyrst litið á þá, að það sé ójafn
leikur, sem vissulega er rétt, að
þrír deili við einn, en ekki skýrir
það þó málefnafátæktina og rök-
semdaskortinn, sem svo áþreifan-
Iega kom í ljós hjá íhaldinu. Nær
sanni mun hitt, að í rauninni megi
það þakka sínum sæla, að það
hafði ekki lengri ræðutíma en
það hafði, því að með hverju
hefðu þeir átt að fylla hann?
Nóg var tómið í hinum skammt-
aða tíma.
f stuttu máli sagt var rök-
stuðningur Ólafs Thors og Bjarna
Benediktssonar fyrir tillögu sinni
um þingrof og nýjar kosningar
jafngildur því og þeir hefðu sagt
umbúðalaust:
Af því að við erum utan stjór.n-
ar, þá viljum við að þing verði
rofið og efnt til nýrra kosninga.
Að öðru leyti höfum við ekkert
til mála að leggja.
Eftir hálftíma ræðu Ólafs og 23
minútna ræðu Bjarna voru menn
semsé engu nær, hvað Sjálfstæð-
isflokkurinn vildi í efnahagsmál-
um né öryggismálum landsmanna,
en þessi tvö mál bar mest á góma.
Mun þetta vera málefnasnauðasta
stjórnarandstaða, sem í útvarp
Ihefir komið, svo að langt af ber,
og á þó að heita „hörð“.
Hvað veldur þessum ósköpum
flokksins? Af reiðiöskrum Morg-
unblaðsins og Vísis að dæma
virðist Gylfi Þ. Gíslason hafa hitt
naglann á höfuðið í umræðunum,
■er hann sagði:
„Það er engu líkara en að for-
ystumenn Sj álfstæðisflokksins
hafi alveg komizt úr jafnvægi við
að missa völdin og þeir hafi
skyndilega gersamlega misst
háefileikann til þess að gera tillög-
ur um lausn vandamálanna.
Heyrðuð þíð formann Sjálfstæð-
ásflokksins skýra frá tillögum
flokks síns varðandi vandamál
útflutningsframleiðslunnar í ræðu
sinni áðan? Nei, og það er ekki
von, því að hann hafði alls ekki
frá neinum tillögum að segja.
Hann fann þó sjálfur, að þetta
er hvorki gott né myndarlegt, en
afsakaði. það með þvi, að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefði ekki feng-
ið að kynna sér álitsgerð tveggja
erlendra sérfræðinga, sem unnu
fyrir rikisstjórnina í nokkrar vik-
ur. Þetta er dálagieg frammi-
staða! Mennirnir geta engar til-
lögur gert, af því að þeir fá ekki
að leita upplýsinga hjá tveim er-
lendum sérfræðingum! Og þetta
eru foringjar stærsta flokks lands-
ins! Hvað segja menn um svona
stjórnarandstöðu?
Leiðtogar Sjálfstæðisflokksins
hafa haft allt á hornum sér í sam-
bandi við það, sem gert var, en
þeir hafa aldrei sagt aukatekið
orð um það, hvað þeir hefðu vilj -
að gera í staðinn. Þeir tala eins
og þeir séu óánægðir með það, að
millifærsluleiðin var farin, en
samt segja þeir ekki, að þeir
hefðu heldur viljað gengisbreyt-
ingu. Ómögulegt hefir reynzt að
fá forystumenn Sjálfstæðisflokks-
ins til þess að segja til um, hvort
þeir telji upphæð þá, sem greiða
á útflutningsatvinnuvegunum, of
háa eða of lága. Þeir þora ekki
að segja, að hún sé of há, því að
þeir vita, að þá verða þeir spurð-
ir, hvort þeir telji tekjuauka sjó-
mannanna of mikinn, hvort þeir
telji togarana fá of mikið eða þá
bátana eða hraðfrystihúsin. Þeir
vilja nefnilega geta sagt það við
þessa aðila í laumi, að þeir hefðu
átt að fá meira, til þess að reyna
að gera þá óánægða. En þeir
þora heldur ekki að segja opin-
berlega, að upphæðin sé of lág,
því að væri það rétt, hefðu gjöld-
in þurft að vera hærri, en þeir
vilja geta alið á því gagnvart
neytendum, að gjöldin séu of
mikil, samtímis því sem þeir segja
við sjómenn og framleiðendur, að
þeir hefðu eiginlega átt að fá
meira í sinn hlut.
Leiðtogar Sjálfstæðisflokksins
hafa með öðrum orðum valið sér
hlutskipti hinna ábyrgðarlausu
gengið eða fara millifærsluleið-
ina, hann hafði enga skoðun á
því, hvort fjárþörf útflutnings-
atvinnuveganna og rikissjóðs
væri 230—240 milljónir eða eitt-
hvað annað, meira eða minna,
og hann hafði cngar tillögur að
gera um það, hvernig fjárins
skyldi aflað. Hann hafði ekkert til
málanna að leggja annað en nei-
kvætt nöldur.
•
184 milljónir
heildsalanna.
En alveg sérstaklega hafa Sjálf-
stæðismenn orðið fártrylltir við
þær upplýsingar Gylfa, að afnám
verðlagsákvæðanna 1951 hafi
orðið hundruð milljóna féþúfa
heildsalanna. Um þetta fórust
Gylfa þannig orð:
„Þótt Sjálfstæðisflokkurinn hafi
nú enga heilsteypta skoðun á því,
hvernig leysa hafi átt vandamál
útflutningsframleiðslunnar, þá
gerir hann það, sem hann getur,
til þess að vekja óánægju almenn-
ings vegna þess að verðlag hlýtur
að hækka nokkuð í kjölfar þeirra
ráðstafana, sem gerðar hafa ver-
ið, þótt það eigi að vísu hvorki
við um brýnustu nauðsynjar né
rekstrarvörur útflutningsfram-
leiðslunnar. En Sj álfstæðisflokk-
urinn hefir ekki alltaf verið svona
viðkvæmur fyrir því, ef verðlag-
ið hækkaði. Meðan hann hafði
aðstöðu til þess að hafa áhrif á
stefnuna í efnahagsmálunum, var
það eitt aðalstefnumál hans, að
ekki skyldi vera verðlagseftirlit í
landinu. Þess vegna beitti flokkur
inn sér fyrir því 1951, að verð-
lagsákvæði væru að verulegu leyti
afnumin og milliliðunum heimil-
uð frjáls álagning, þótt innflutn-
ingur til landsins yrði ekki frjáls
nema að nafninu til. Menn hafa
til skamms tíma ekki haft um það
öruggar upplýsingar, hverja þýð-
ingu það hefur haft fyrir verðlag-
ið í landinu, að verðlagsákvæðin
voru afnumin. Nú hefir þingkjör-
in nefnd nýlega látið fara fram á
þessu ýtarlega rannsókn.
Hún hefur verið framkvæmd af
sérfróðum manni, með aðstoð
verðlagsyfirvalda. í nefndinni
Framhmld á 4. aiðn.
$bautAmót
Skautamót Akureyrar var hald-
ið á Brunnárflæðum sunnudaginn
3. febrúar og þriðjudaginn 5. fe-
brúar. Keppendur voru 8 í karla-
flokki og 6 í drengjaflokki. Mót-
stjóri var Pálmi Pálmason.
Svellið var mjög sæmilegt, en
rennsli þó ekki í bezta lagi. — Á-
horfendur voru margir, sérstak-
lega fyrri daginn.
Urslit í einstökum greinum:
50 m. hlaup karla:
Björn Baldursson 49.7 sek.
Hjalti Þorsteinsson 52.0 sek.
Kristján Árnason 52.7 sek.
1500 m.:
Björn Baldursson 2.47.9 mín.
Kristján Árnason 2.56.9 mín.
Guðlaugur Baldurss. 3.01.6 mín.
3000 7».:
Björn Baldursson 6.001. mín.
Akure^rar
Kristján Árnason 6.18.9 mín.
Jón D. Ármannsson 6.43.1 mín.
5000 77i. ;
Björn Baldursson 10.27.0 mín.
Kristján Árnason 10.42.0 mín.
Jón D. Ármannsson 11.19.7 mín.
Stig:
Bjöm Baldursson 225.710
Kristján Árnason 234.856
Guðl. Baldursson 252.808
Jón D. Ármannsson 252.807
300 77i. hl. drengja innan 14 ára:
Örn Indriðason 37.8 sek.
Skúli Ágústsson 37.8 sek.
Bergur Erlingsson 39.9 sek.
400 77i. hl. drengja innan 14 ára:
Örn Indriðason 48.5 sek.
Skúli Ágústsson 50.8 sek.
Bergur Erlingsson 53.0 sek.
ÁTTRÆÐUR
Erlingiir Friðidnssoii
Hinn 7. febrúar síðastliðinn
varð Erlingur Friðjónsson átt-
ræður. Óþarfi er að rekja ævi-
feril hans fyrir lesendum Alþýðu-
mannsins, enda verður þess ekki
freistað hér, en fáir munu þeir nú
áttræðir, sem eru honum jafnvíg-
ir til starfs, hvað þá léttvígari, því
að enn vinnur hann sem fram-
kvæmdarstjóri Kaupfélags verka-
manna a. m. k. 10 tíma dag hvern
árið um kring og veit varla, hvað
hvíldardagur er.
AÐALFUNDUR
•>
Verkamannafélags
A.-Húnvetninga
Aðalfundur Verkalýðsfélags
Austur-Húnvetninga var haldinn
27. janúar síðastliðinn.
Jón Einarsson, sem gegnt hefir
I formannsstörfum í 20 ár af þeim
26 sem félagið hefir starfað, lét
nú af störfum.
Þar sem bílstj óradeild félagsins
er nú orðin sjálfstætt félag innan
Landssambands sjálfseignarvöru-
bílstjóra, lét ritarinn, Zophonías
Zophoníasson, bifreiðarstjóri, af
I störfum eftir margra ára starf í
þágu félagsins.
Nýja stjórnin er þannig skip-
uð: Ragnar Jónsson, formaður,
I Þorvaldur Þórarinsson, gjaldkeri
I (endurkjörinn), og Bjarni Páls-
son ritari.
i
l____________________________
Frá Leikjélaginu. Sýning í kvöld og
I fimmtudagskvöld á Kjarnorku og kven-
hylli. Sennilega 6ÍSustu sýningamar.
| ASgöngumifiasími 1639.
Erlingur Friðjónsson.
í tilefni afmælisins hélt stjórn
Kaupfélags verkamanna Erlingi
vinaboð í Landsbankasalnum að
kveldi afmælisdagsins. Stjórnaði
Albert Sölvason, formaður stjórn-
ar K.V.A., hófinu, en auk hans á-
vörpuðu afmælisbarnið Steindór
Steindórsson, Árni Þorgrímsson,
Jón M. Árnason, Elinborg Jóns-
dóttir, Guðrún Sigurgeirsdóttir,
Jón Hinriksson, Bragi Sigurjóns-
son, Þorsteinn Svanlaugsson og
Sigurður M. Helgason, en Erling-
ur þakkaði. Jafnframt las hann
upp í hófinu stökur þær, er birtar
eru hér á öðrum stað í blaðinu,
og sýna þær glöggt, að enn lifir
neistinn góðu lífi, sem kveikti
hina landfleygu vísu Erlings:
„Nóttin heldur heimleið þar —
Erlingi barst fjöldi heillaskeyta
víða að á afmælisdaginn, þar á
meðal frá Alþýðuflokki íslands,
en Erlingur var einn af frumherj-
um hans, evo sem alkunnugt er.