Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 30.04.1958, Side 4

Alþýðumaðurinn - 30.04.1958, Side 4
1. maí Liiðrasveii Akureyrar Fegrunaríél. Akureyrar heldur kynningarkvöld Fegrunarfélag Akureyrar hélt kynningarfund í Landsbankasalu- um fyrra þriöjudagskvöld. Varaformaöur félagsins, Jón Kristjánsson, bauð fundargesti velkomna, en því næst flutti Magnús E. Guðjónsson, bæjar- stjóri ávarp og ræddi m. a. um hlutverk félaga sem þessa fegrun- arfélags. Jón Rögnvaldsson, garö- yrkjuráðunautur flutti erindi um sáningu og ræktun sumarblóma í göröum. Sýndi Jón sáningu sum- arblóma í kassa. — Jón hvatti garðeigendur til þess að rækta sem mest af sumarblómum í garða sína. Jón benti sérstaklega á, að heppilegt væri að rækta mikið af stjúpum, vegna þess að þær eru með meira litskrúði hér á landi en víðast hvar annars stað- ar í heiminum. ■ Árni Jónsson, tilraunastjóri, ræddi um hirðingu á matjurta- og skrúðgörðum. Benti hann á, að grasfleti í görðum þyrfti vel Fyrir fundi bæjarstjórnar Ak- ureyrar í gær lá beiðni frá stjórn Krossanesverksmiðju, að for- manni hennar, Guðmundi Guð- laugssyni, yrði veitt heimild til að taka 1% millj. kr. lán fyrir verk- Staðið við uppsögn herstöðvasamaiHgsios Fundur haldinn í Menningar- og friðarsamtökum íslenzkra kvenna, Akureyrardeild, 25. apríl 1958, skorar á ríkisstjórn Islands að standa við yfirlýsingu Alþingis frá 28. marz 1956 og stefnuyfir- lýsingu núverandi ríkisstj órnar, um uppsögn herstöðvarsamnings- ins við Bandaríki Norður-Ame- ríku og brottför alls erlends her- liðs af íslandi. Ennfremur skorar fundurinn á ríkisstj órnina að vinna að því, að íslendingar segi sig úr Atlantshafs-bandalaginu, haldi sig utan allra hernaðar- bandalaga og lýsi yfir ævarandi hlutleysi íslands. Fundurinn vill beina þeim ein- dregnu tilmælum til ríkisstjórn- arinnar, að hún styðji hvers kon- ar friðarviðleitni á alþjóðavett- vangi, einkum þá, sem miðar að því að tilraunum með kjarnorku- vopn verði hætt og framleiðsla þeirra bönnuð með öllu og bir^S- ir eyðilagðar. Ofanrituð ályktun var einróma samþykkt á fundi Akureyrardeild- ar M.F.Í.K. hinn 25. þ. m. ( FréUatilkynning.) að hirða, því fallegir grasfletir væru mikil prýði í görðum. Ráð- lagði hann að sá í nýjar lóðir og nota sérstakar grasflata-fræblönd- ur. Um .hirðingu eldri grasflata sagði hann að nú væru til lyf, sem gerðu það mögulegt að útrýma úr grasflötum, túnfíflum, súru, njóla o. fl. Nefndi hann sérstaklega efn- ið Herbatox D-500, sem hann taldi mjög áhrifaríkt í þessu efni. Þá taldi hann rétt að bera oft til- búinn áburð á grasfletina yfir sumarið, en lítið í einu. Héldust þeir þá betur og jafnar grænir. Að lokum þakkaði formaður félagsins ræðumönnum ög fund- armönnum fyrir komuna, og sagði, að nú í vor mundi stjórn Fegrunarfélagsins bjóða heil- brigðisfulltrúa, héraðslækni og e. t. v. blaðamönnum að aka með sér um bæinn og athuga umgengn- ina í bænum. Síðar í sumar myndu svo skrúðgarðar athugað- ir sérstaklega eins og að undan- förnu. 'smiðjuna til nauðsynlegra endur- bóta. Var heimildin veitt. Lánsupphæðina hyggst stjórn verksmiðjunnar nota til að gera verksmiðjuna þannig úr garði, að hún geti nýtt hráefnið betur en nú er. Hefir vélsmiðjan Héðinn boð- izt til að smíða nauðsynleg tæki til svonefndar heilmjölsvinnslu, og er smíðakostnaður áætlaður um 1,2 millj. kr., en brúttóhagn- aður á ári af hinni auknu nýtingu er áætlaður 1.1 millj. kr. miðað við 50 þús. mála síldarvinnslu og 5 þús. tonna vinnslu karfa og fisk- úrgangs. RANGFEÐRUÐ STAKA? í jólablaði Alþm. 1957 var prentuð eftirfarandi staka og hún eignuð Kristjáni Kristj ánssyni, smið á Bíldudal, samkvæmt Skruddu Ragnars Ásgeirssonar: Það er í einu orði sagt, og að fullu sannað, að þér er flest til lista lagt, lygin jafnt sem annað. Nú hefir greinargóður lesandi Alþm., Skagfirðingur, en nú bú- settur hér í bæ, hátt á áttræðis- aldri, dregið mjög í efa, að greind vísa sé rétt feðruð hjá Ragnari. Kveður hann vísuna hafa orðið héraðsfleyga í Skagafirði úr sl. aldamótum og þar haft fyrir satt, að hún væri eftir Dýrólínu Jóns- dóttur frá Villinganesi (d. 22. júlí 1939), kveðna í gamni við Jóhannes Jónasson frá Litladal í Skagafirði, er Dýrólína var ung stúlka. hélt hljómleika í Nýja Bíó síðast- liðið þriðjudagskvöld undir stjórn Jakobs Tryggvasonar. Var hljómleikunum tekið hið bezta af áheyrendum, en þeir voru annars drjúgum færri en eðlilegt mátti teljast. Lúðrasveitin er nú skipuð 22 mönnum og hefir hún æft mikið í vetur. Viðfangsefni liennar voru fjölbreytt, bæði innlend og er- lend, m. a. lék hún lög eftir Björg- vin Guðmundsson og Áskel Snorrason. Eins og fyrr getur hlaut Lúðra- sveitin ágætar viðtökur áheyr- enda. Varð hún að endurtaka sum viðfangsefnanna, en auk þess lék hún aukalög. ____*____ Verða kvöldbúðirnar skyldaðar til að greiða sérstakt leyf isgjald í bæjarsjóð? Bæjarráð Akureyrar hefir falið bæjarstjóra að semja frumvarp að nýrri samþykkt um lokunar- tíma sölubúða, þar sem m. a. verði gert ráð fyrir heimild til handa bæjarráði og heilbrigðis- nefnd að veita leyfi til kvöldsölu gegn ákveðnu gjaldi til bæjar- sjóðs. Meindýraeyðir. Samkvæmt lögum um eyðingu refa og minka er hverju sveitar- félagi skylt að ráða mann eða menn til að hafa eyðingu þessara meindýra með höndum. Bæjarráð Akureyrar hefir heimilað bæjarstjóra að semja við Harald Skjóldal um að hafa starf þetta með höndum fyrir Akureyrarbæ, en hann hefir fal- azt eftir því. ___ Tjaldstæði fyrir ferðafólk sunnan sundlaugarinnar Stjórn Fegrunarfélags Akur- eyrar hefir farið þess á leit við bæinn, að komið verði upp heppi- legu tjaldstæði í bæjarlandinu fyrir ferðafólk. Bæjarráð hefir lagt til, að til þessa verði valið svæði sunnan sundlaugargirðingarinnar og komið verði þar fyrir snyrting- um til afnota ferðafólki. Munasala (bazar) og kaffisala til ágóða fyrir byggingu sumar- dvalarheimilis drengja við Ás- tjörn verður haldin að Sjónar- hœð fimmtudaginn 1. maí frá kl. 3—10. — Athugið, kl. 9 verða sýndar skuggamyndir frá Ástjörn og nágrenni. Fyrirhngaðar endnrbætnr á Krossanesverksmiðjn Hátíðahöld verkalýðsfélag- anna á Aknreyri Útifundur við Verkalýðshúsið kl. 1,30 e. h. Lúðrasveit Akureyrar leikur. Stjórnandi Jakob Tryggvason. Ávarp. Jón B. Rögnvaldsson, form. fulltrúaráðs verkalýðsfél. Ávarp. Gunnar Berg Gunnarss., form. Iðnnemafél. Akureyrar Rœða. Jóns Þorsteinsson lögfr. Alþýðusambands íslands. Rœða. Rósberg G. Snædal rith., ritari Verkam.f. Akureyrark. Ef veður hamlar útifundi fer þessi dagskrá fram í Nýja Bíó. Barnaskemmtun í Alþýðuhúsinu kl. 3.30. Upplestur. Jón Gunn- laugsson, kennari. Gamanvísur. Björn Kristinsson. Tvíleikur á blokkflautur. Upplestur barna. Kvikmynd. Dans. Aðgangur kr. 5.00. Dansleikur í Alþýðuhúsinu 30. apríl kl. 9 e. h. Dansleikur í Alþýðuhúsinu 1. maí kl. 9 e. h. Flammingó-kvartettinn og Oðinn sjá um músikina bæði kvöldin. Aðgöngumiðar að skemmtunum dagsins verða seldir í Verka- lýðshúsinu frá kl. 1—5 og við innganginn. Merki dagsins verða seld ó götunum allan daginn. Fjölmennið á hótíðahöldin. Berið merki dagsins 1. maí-nefndin. Takið eftir, verzlunar- og skrifstofufólk ó Akureyri. Mjög áríðandi fundur að Hótel KEA, Rotarysal, í d3g kl. 18.30 (hálf sjö). Tekin ákvörðun um uppsögn samninga. Stjórn Félags verzlunar- og skrifstofufólks á Akureyri. Frá barnaskólnm bæjariiis Væntanlega innritast 194 börn fædd 1951 í barnaskólana í vor og hefja þá skólagöngu sína. Af þeim fara 18 í Glerárskólann, en hin skiptast milli Barnaskóla Akureyrar og Oddeyrarskólans. I Barnaskóla Akureyrar fara börn úr öllum bæjarhlutum nema Glerárhverfi, og þau börn af Oddeyri, sem ekki komast fyrir í Oddeyrarskólanum. Vegna þrengsla í Oddeyrarskól- anum getur hann ekki tekið á móti nema hluta þeirra barna, sem skólaskyld verða á Oddeyri í vor. Af þeim ásæðum verða þau börn, sem heima eiga efst og syðst á Oddeyri að fara í Barna- skóla Akureyrar, þó að það sé aðeins lengri leið I Oddeyrarskólann koma börn úr eftirtöldum götum: Eiðsvalla- götu, Hríseyjargötu, Hjalteyrar- götu, Grænugötu, Fjólugötu, Eyrarvegi, Hvannavöllum, Sól- völlum, Víðivöllum, Reynivöllum, Grenivöllum, Norðurgötu, Ránar- götu og Ægisgötu. Börn úr öðr- um götum á Oddeyri mæti til inn- ritunar í Barnaskóla Akureyrar. Við vonum að foreldrar skilji, að þessi skipting er eingöngu gerð af húsnæðisástæðum skól- anna. Hannes J. Magnússon. Eiríkur Sigurðsson.

x

Alþýðumaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.