Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 03.03.1959, Síða 4

Alþýðumaðurinn - 03.03.1959, Síða 4
Hlutfallsleg Mn oiðorjajnoðrd útsvara undanfarii dr Samkvæmt athugun á hækk- unum niðurjafnaðra útsvara í Akureyrarbæ árin 1954—’59 hefir hundraðshækkun heildar- útsvaranna orðið þessi frá ári til árs: 1954 ... .. 11.5% 1955 ... .. 13.5% 1956 .. . 25.25% 1957 .. . 23.25% 1958 ... .. 4.7% 1959 ... .. 11.2% Hækkunina í ár má að nokkru færa á kostnað ársins 1958, en þá var fjárhagsáætl- un mjög knöpp. Meðaltalshækkun áranna 1958 og 1959 — 8% — er raunar mjög lítil hjá bæ í vexti með hækkandi tekjur gjald- þegna og fjölgandi skattborg- urum. Ranghermi var það í síðasta Alþýðumanni í klausunni „Dýrt að klæða lög- regluna“, að lögregluþjónar fái alfatnað annaðhvort ár, en yfir- höfn hitt. Hið rétta er, að þeir fá alfatnað á hverju ári, en frakka annaðhvort ár og kápu hitt. Ilins vegar fatar Akureyrarbær aðeins 8 lögregluþjóna, en ekki 10, eins og í klausunni stóð (rík- ið fatar 2), og sést af þessu, að fatnaður þeirra er mjög dýr, enda mun sérstakur klæðskeri í Reykja- vík hafa einokun á klæðskurði lögregluþjóna og vísast bruna- varða og annarra einkennisbú- inna manna. Er það raunar ein- kennilegt, ef ekki er hægt að fá þessa vinnu innta af hendi hér af klæðskerum bæjarins og af tvennu illu nær að þeir hirtu okurgróða af einkennisbúningum hér en að senda hann í aðra landshluta. ]%ftt áfall fyrir dýrtíðar- draum »Verkam.« Frá og með 1. þ. m. lækkaði nýr fiskur um............. 33% ný ýsa um ................ 31% nýr flakaður fiskur um 29% fiskfars um .............. 29% Einnig lækkaði mjólk lítil- lega og kjöt nokkuð til viðbót- ar fyrri lækkunum á þessum vörum 1. jan. og aftur 1. febr. síðastliðinn. Þriðjudagur 3. marz 1959 Menntaskólaleikurinn 1959. I blíðn og: stríðu eftir ARTHUR WATKYN. Leikst’jóri Jóhann Pólsson. Síðastliðið sunnudagskvöld frumsýndi Leikfélag Menntaskól- ans gamanleikinn / blíðu og stríðu eftir Arthur T. L. Watkyn. Húsfyllir var og leikendum og leikstjóra klappað lof í lófa að lokinni sýningu. Síðustu árin er það orðinn fast- ur þáttur í bæjarlífinu, að nem- endur Menntaskólans skemmti bæjarbúum með leiksýningum, og eru þær mjög vinsælar. Sannleik- 'urinn er líka sá, að leikendurnir koma áhorfandanum í hvert skipli skemmtilega á óvart með sýning- unum: Þær eru nær undantekn- ingarlaust verulegum mun betri en hann á von á hjá óreyndum leikendum. Leiksýningin síðast- liðið sunnudagskvöld var engin undantekning. í gamanleiknum / blíðu og stríðu, sem fjallar á kátbroslegan hátt um byrjunarörðugleika ungra hjóna á hjúskaparbraut- inni, sérstaklega varðandi efna- haginn, koma fram 12 leikendur, en aðalpersónurnar eru ungu hjónin Anna og Tony. Onnu leikur Anna G. Jónasdótt- ir af mikilli prýði, örugg og eðli- leg, og framsögn með ágætum. Tony leikur Jón Sigurðsson og kemur skemmtilega á óvart með léttum og ferskum leik, því að á leiksýningum M. A. í fyrra varð ekki ráðið, að hann byggi yfir miklum leikhæfileikum. Nú er hann ágætur í hlutverki sínu. Tengdaforeldra Tonys, herra og frú Purves, leika Þorleifur Pálsson og Guðný Þórisdóltir og fara bæði prýðisvel með hlutverk sín. Er gervi þeirra — og þó sér- staklega herra Purves — einstak- lega góð. Peter Debenham og konu hans Jane leika Pétur Einarsson og Laufey Þorbjarnardóttir. Er hlut- verk Laufeyjar lítið, svo að af því ræður áhorfandinn lítið um leik- hæfileika hennar, en Pétur Ein- arsson sýnir manni kyndugan náunga af mikilli trúvirkni. Flutningaverkamenn leika Björn Dagbjartsson og Ola Aadnegard og vakti leikur þeirra mikla kát- ínu leikhúsgesta, en skemmtimet- ið eiga þó Aðalbjörg Jónsdóttir og Bjórn Ólafsson, er leika hrein- gerningakonu og pípulagninga- mann, og fara svo með hlutverk sín, ekki sízt Aðalbjörg, að mikil skemmtan er að. Kristín Halldórsdóttir fer með ldutverk ungfrú Mainbrace, uppá- þrengjandi kjaftatífu, og sýnir kostulega persónu og loks fer Björn Guðmundsson með hlut- verk rukkara, smáhlutverk, og eru þá leikendur upptaldir. 1 heild hafð.i leiksýning þessi ágætlega samæfðan svip, var létt og liröð og bar leikstjóranum, ungum Reykvíking, Jóhanni Pálssyni, lofsamlegt vitni. I leikhléum lék hljómsveit Menntaskólans. Eins og að framan getur, var húsfyllir á frumsýningu og upp- selt var þegar á sunnudag og á 2. sýningu leiksins. sem var í gær- kveldi. Er af þessu ljóst, að leikur þessi verður vel sóttur, enda er að honum hin bezta skemmtun. Helztu breytingar á íjárhags- áætlun bæjarins milli umræðna Eins og skýrt er frá hér á öðr- um stað í blaðinu, breyttust nið- urstöðutölur fj árhagsáætlunar Akureyrarbæjar tekju- og gjalda- megin ekkert við síðari umræðu frá þeirri fyrri. Nokkrar breytingar gerði bæj- arráð þó á liðum fjárhagsáætlun- arinnar milli umræðna, þótt þær stæðust nákvæmlega á um tekjur og útgjöld. Breytingarnar voru þessar: Teknamegin var ágóðahluti frá Brunabótafélagi Islands hækkað- ur uin 40 þús. kr. samkvæmt tölu- legum upplýsingum þar um, og bætt inn teknalið, sem gleymzt hafði af vangá við samningu á- ætlunarinnar, framlagi ríkis lil byggingar skóla kr. 180 þús., eða alls tekjuhækkun 220 þús. kr. Gjaldamegin urðu þessar hækk- anir: 1. Samkvæmt eindregnum ósk- um sjúkrahússins framlag kr. 300 þúsund. 2. Til mælinga og skipulagn- inga samkvæmt ósk bæjarverk- fræðings kr. 50 þúsund. 3. Til bókasafnsins samkvæmt tilmælum Gísla Jónssonar kr. 15 þúsund. 4. Til flugbjörgunarsveitar Ak- ureyrar (nýtt) kr. 10 þúsund. 5. Til heimavistarbygginga við Húsmæðraskólann (nýtt) kr. 50 þúsund. Um alla þessa liði var hæjarráð Avarp til þjóðarinnar Skammt hefir orðið milli hörmulegra sjóslysa undanfarna daga, er togarinn Júlí og vitaskip- ið Hermóður liafa farizt með allri áhöfn, alls 42 mönnum. Hafa þessir atburðir vakið sár- ustu sorg á mörgum heimilum og auk þess svipt fjölda manns fyrir- v,innu. Islenzka þjóðin hefir jafnan verið fús til að sýna hluttekningu sína í verki við slíkar aðstæður, og mun svo vissulega enn. Slysa- bætur ríkisins til aðstandenda ná skammt og því brýn þörf á meiri hjálp til margra heimila, sem eiga við erfið kjör að búa. Vér undirritaðir viljum vinna að því, að fjársöfnun verði hafin með þjóðinni, til styrktar þeim, sem erfiðast eiga, enda hafa oss þegar borizt óskir um það, og vér vitum vilja þjóðarinnar. Prestar eru vinsamlega beðnir þess, að veita gjöfum viðtöku, ennfremur hlöð landsins. Biskups- skrifstofan, Bæjarútgerðin í Hafn- arfirði, Vitamálaskrifstofan og vér undirritaðir munum einnig veita gjöfum viðtöku. Reykjavík, 21. febr. 1959. Ásmundur Guðmundsson, biskup Islands. Aðalsteinn Júlíusson, vitamálastjóri. Adolf Björnsson, form. útg.ráðs Bæjarútg. Hafnarfjarðar Garðar Þorsteinsson, prófastur. Pétur Sigurðsson, forstjóri landhelgisgæzlunnar. sammála nema liinn síðasta, er samþykktur var af meiri hluta bæjarráðs. Samtals gerðu þessar hækkanir kr. 425 þús. Lækkanir voru þessar: 1. Til snjómoksturs kr. 50 þús. 2. Til grjótnámsins kr. 100 þús. 3. Til jarðeigna kr. 30 þús. 4. Til óvissra útgjalda kr. 25 þúsund. Samtals lækkanir kr. 205 þús. Bæjarráð varð sammála um þessar lækkanir. Hækkanir gjaldamegin umfram lækkanir urðu þannig kr. 220 þús., eða jafnhárri upphæð og tekjur hækkuðu. Áætluð útsvars- upphæð frá fyrri umræðu hélzt því óbreytt. Milli umræðna var bætt skil- yrðum við tvær fj árveitingar úr bæjarsjóði: 1. Við framlag til Ferðamálafé- lags Akureyrar vegna byggingar í Hlíðarfj alli: — „enda selji fé- lagið hvorki né leigi eignir sínar í Hlíðarfjalli nema með leyfi Ak- ureyrarbæjar. 2. Við framlag til Strætisvagna Flutningatækni á vinnustöðum Fréttatilkynning frá Iðnaðarmálastofun Islands. I flestri framleiðslustarfsemi er flutningur og meðhöndlun fram- leiðslunnnar á hinum ýmsu stig- um mun kostnaðarsamari en al- mennt er reiknað með, enda er talið, að um 40—50% vinnukostn aðar sé að meðaltali fólginn í slíkri vinnu. Það er því augljóst, að mikils er um vert að réttum flutningatækj um og aðferðum sé beitt og niðurskipun véla, áhalda og húsakosts sé með sem hag- kvæmustu móti. Gildir einu, hver framleiðslan er, eða hversu stórt eða lítið fyrirtækið eða vinnustað- urinn er. í þessum mán. verður haldið nám skeið á vegum Iðnaðarmálastofn- unar Islands, Reykjavík, um ofan- greint efni (Materials Handling), og verður fenginn hingað sérfræð ingur frá Framleiðsluráði Evrópu (EPA/OEEC) til að halda fyrir- lestra. Er það Bandaríkjamaður- inn Mr. H. E. Stocker, sem kemur hingað, en hann hefur árum sam- an starfað sem ráðunautur í flutningatækni og niðurskipun á vinnustöðum, þar af síðustu átta árin í Evrópu. Mr. Stocker hefir því langa reynslu að baki frá mörgum löndum, og hefir t. d. starfað í flestum Evrópulöndum, allt frá Tyrklandi til Noregs, en að áliti Mr. Stockers stendur Noregur einmitt mjög framarlega í ofangreindu efni. Það eru ekki einungis iðnfyrirtæki, sem notið hafa þjónustu þessa sérfræðings, heldur einnig hvers konar flutn- ingafyrirtæki, vörugeymslur, póst hús o. s. frv. í fyrirlestri sínum mun Mr. Stocker m. a. fjalla um mikilvægi góðra innan- og utanhússflutn- inga í sambandi við framleiðslu- kostnað, slysahættu, hættur á skemmdum í flutningi, nýtingu húsrýmis, vörugeymslur o. s. frv. Þá mun hann ræða sérstaklega um sparnaðarráðstafanir í sam- bandi við flutninga, um niðurskip un véla- og húsakosts og loks um val flutningatækja og -aðferða við ýmsar aðstæður. Fyrirlestrarnir, sem hefjast sennilega 11. marz, verða auglýst- ir sérstaklega í byrjun marzmán- aðar. Verða væntanlega fluttir fjórir fyrirlestrar í allt á tímabil- inu 11.—18. marz. Verða þeir haldnir í fyrirlestrarsal Iðnaðar- málastofnunar íslands í Reykja- vík á tímanum kl. 16:00—19:00. Akureyrar: — „enda verði gerð- ur skriflegur samningur um það milli bæjarráðs og Strætisvagna Akureyrar h.f. hverja lágmarks- þjónustu félagið sé skylt að veita bæjarbúum.“ Kaupið og lesið Alþýðumanninn.

x

Alþýðumaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.