Alþýðumaðurinn - 30.08.1960, Qupperneq 3
Þriðjudagur 30. ágúst 1960
ALÞÝÐUMAÐURINN
3
Nógir peningar -
en ekkert iyrir
þá að fá
Eftirfarandi gat síöastliðinn
sunnudag að lesa í Tímanum,
systurblaði Þj óðvilj ans síðast-
liðna mánuði:
„Verðbólga er ekki ósjaldan
nefnd á Vesturlöndum, en ekki
heyrum við mikið um slíkt frá
löndunum austan tjalds. Nat
White, einn af fjármálasérfrœð-
ingum Christian Science Monitor
í Bandaríkjunum hefir heimsótt
Sovétríkin og hér fer á eftir nokk-
uð af upplýsingum hans um verð-
lag og vörugœði þar austur frá:
í stuttu máli sagt, hafa menn
mikið af peningum, en fá ekki
fyrir þá vörur eins og þeir vilja.
Laun hafa hækkað um allt að
35% sl. ár, en það er ekki hægt
að kaupa meira en áður. Fólk
leggur því peningana í banka eða
geymir þá á kistubotninum heima
hjá sér.
Til þessa liggja margar ástæð-
ur: Ekkert offramboð er af nauð-
synjavarningi, ekki þarf að greiða
skóla- eða sjúkrakostnað, húsa-
leigu er haldið niðri og nýjungar
eru takmarkaðar. Því hefir fólkið
nóg af seðlum, sem lítið er hægt
að kaupa fyrir.
t Gæði varanna eru léleg og verð-
ið hátt. Dollarinn er keyptur á 10 ;
rúblur. Bómullarskyrta kostar
þrisvar sinnum meira en vestan
hafs miðað við þetta gengi.
í verzlunarhúsinu GUM í
Moskva var mest ösin við ilmvöru-
deildina, segir White. Rússneskar
konur vilja einnig eiga snyrtivör-1
ur, en gæði þeirra eru ekki mikil.
Það er dálítið um svartan mark-
að austan tjalds, segir White, en
yfirvöldin hafa mikið eftirlit með
að koma í veg fyrir hann. Það
eftirlit er vel skipulagt og alls
staðar eru menn á verði, þar sem
von er ferðamanna og fljótt hefst
upp á þeim, sem bjóða meira en
10 rúblur fyrir dollarann.
Engar upplýsingar eru um
seðlaveltuna í Sovétríkjunum.
Það varðar menn ekkert um.“
Mönnum gæti dottið í hug við
þennan lestur, að Tíminn sé að
velta því fyrir sér, hvort ástandið
í Rússlandi sé eftir allt saman svo
eftirsóknarvert, en sjálfsagt fær
hann rétta línu, þegar Þórarinn
ritstjóri kemur heim úr boðinu til
Powerréttarhaldanna.
Hnuplað lir Árbók
Þingeyinga 1959
Ekki þjáist auðnin grá,
yndisfáa og nauma,
heldur sá, er ann og á
ástarþrá og drauma.
*
Góða, mjúka gróna jörð,
græn og fögur sýnum,
hví er alltaf einhver hörð
arða í skónum mínum?
•
Minn er tími að færast fjær,
fymist sálargróður:
Ég er eins og barnlaus bær
burstalár og hljóður.
Kristján Ólason.
*
Gjarnan vil ég gera skil,
gleðst, ef kröfur þagna,
en hefi ekki um árabil
átt því láni að fagna.
*
Fénaðurinn fer úr hor,
fölna strá og blikna greinar,
þakki drottni þetta vor
þeir, sem skilja,hvað hann meinar.
*
Máninn var þeim ljúfur og lipur,
er lifðu í skini frá honum,
en nú er hvefsnis- og kuldasvipur
Krutsjoffs-megin á honum.
*
Léttu blaðri lokið er,
ljóðaþvaðrið dvínar.
Hinir og aðrir eigna sér
ígangsfjaðrir mínar.
Egill Jónasson.
Blik,
ÁRSRIT
GAGNFRÆÐASKÓLANS
í VESTMANNAEYJUM.
Hið myndarlega ársrit Gagn-
fræðaskólans í Vestmannaeyjum,
Blik, hefir Alþýðumanninum bor-
izt fyrir nokkru. Flytur það að
venju margs konar lesefni auk
margra mynda. Ritstjóri er sem
fyrr Þorsteinn Þ. Víglundsson,
skólastj óri.
Ritið hefst á Hugvekju eftir rit-
stjórann, fluttri í G. V. 1959. Þá
er minnzt 3j a látinna nemenda, en
þessu næst flytur ritið 2. kafla rit-1
gerðar Þ. V. Þ. Saga barnafræðsl-
unnar í Vestmannaeyjum. Enn er 1
stuttur frásöguþáttur af Tóta í
Berjanesi. Stutt frásögn er af Sig-
urði Sigurfinnssyni, hreppstjóra,
einum stofnanda ísfélags Vest-
mannaeyja, en á eftir kemur Saga
félagsins skráð af Þ. V. Þ.
Þá er þáttur nemenda, greinin
Útvörður Suðurstrandar eftir Ein-
ar Sigurfinnsson, Gengið á reka
eftir Árna Árnason, og síðan
kemur stutt frásögn af húsinu
Nöjsomhed, hinum konunglega
embættisbústað í Eyjum. Fylgir
teikning af húsinu og er hún einn-
ig á forsíðu Bliks.
Enn er ritgerðin Þórarinn Haf-
liðason, fyrsti mormónatrúboð-
inn í Vestmannaeyjum, eftir Sig-
fús M. Johnson, skýrsla skólans
1958—1959, Þáttur spaugs og
spés og sitthvað fleira smávegis.
Margt mynda prýðir ritið, eins
og fyrr segir, og frágangur allur
er hinn vandaðasti.
BORGARBÍÓ
Sími 1500
VOPNA-
SMYGLARARNIR
Hörkuspennandi og viðburða-
rík, ný, frönsk kvikmynd í lit-
um og
byggð á skáldsögu eftir Georg-
es Godefroy.
— Danskur texti. —
Aðalhlutverk:
DOMINIQUE WILMS
JEAN GAVEN.
Bönnuð yngri en 16 ára.
Hý stndlni
popplinkápur
Fallegir litir.
Klæðaverzlun
Sig. Guðmundssonar
Eimreiðin,
2. hefti þessa árgangs, er nýkom-
in út. Flytur hún kvæði eftir Þóri
Bergsson, Vilhjálm frá Skáholti
og Þórólf Jónasson, og þýdd ljóð
eru eftir Tom Kristiansen og F. G.
Lorea; smásaga er eftir Oddnýju
Guðmundsdóttur og þýdd saga
eftir Kathleen Rivett; greinar eru
eftir Guðmund G. Hagalín, Krist-
mann Bjarnason og Sigurð Jóns-
son.
Sitthvað fleira er í ritinu, sem
er hið læsilegasta.
Leiðrétting.
í síðasta tbl. Alþýðumannsins,
þar sem sagt var frá viðurkenn-
ingum fyrir skrúðgarða, var frá
því greint, að Jón Kristj ánsson,
formaður Fegrunarfélags Akur-
eyrar, hefði farið sérstökum við-
urkenningarorðum um vörzlu-
mann tjaldstæðanna á Sundlaug-
artúni, Pétur Söebeck, átti að
vera Benedikt Söebeck.
Mfltnrsiell
Kaffistell
Ávaxtasett
Skálasett
Glerbakkar
Ölglös
Blómavasar
Sykursett.
Kaupfélag
verkamanna
Kj örbúð.
ÁRBÓK
ÞINGEYINGA
1959
Nýkomin er út Árbók Þingey-
inga 1959, en áður hefir Árbók
1958 komið út af þessu riti. Rit-
stjóri er Bjartmar Guðmundsson,
alþingismaður, en útgefendur eru
Suður- og Norður-Þingeyjar-
sýsla og Húsavíkurkaupstaður.
Árbókin 1959 er hin fjölbreytt-
asta að efni, sem og Árbók 1958.
Hefst hún á ágætri grein eftir Sig-
fús Bjarnason um Þórarin Jóns-
son á Halldórsstöðum, en af öðr-
um greinum má nefna Egill Jón-
asson, sextugur, eftir Bjartmar
Guðmundsson og „Hann er alltaf
að hlýna“ eftir Karl Kristjánsson.
Ljóð eru eftir Kristján Ólason,
Pál H. Jónsson, Jakobínu Sigurð-
ardóttur, Starra í Garði og xxx
og smásaga eftir Bjartmar Guð-
mundsson. Þá er þátturinn í fám
orðum sagt og Tíðindi úr héraði,
og margt fleira er í Árbókinni,
sem of langt er hér upp að telja.
Alls er ritið um 220 bls. og frá-
gangur hinn smekklegasti.
Frd BflriMSkálmn Akurerrar
Skólarnir taka til starfa þriðjudaginn 6. september næstk.
klukkan 10 árdegis.
Mæti þá öll börn fædd 1951, 1952 og 1953.
TILKYNNA ÞARF FORFÖLL.
Glerárskólinn tekur þó ekki til starfa að sinni vegna við-
gerða á skólahúsinu.
Skólasfjórarnir.
BlLLINN 0PEL KAPITAN DE-LUXE,
verð 250.000 kr., er aðalvinningurinn í
Happdrætfi Sfyrktarfélags vangefinna.
En auk hans eru 9 aðrir ágætir vinningar.
Forgangsréttur bifreiðaeigenda til kaupa á happdrœttismið-
um með skrásettum númerum bifreiðanna er í gildi til 31.
ágúst næstkomandi, en ekki lengur.
Eftir þann tíma verður sala miðanna frjáls.
Hver vill láta einhvern annan fá vinning á bílnúmerið sitt?
Auðvitað enginn. — Gleymið þess vegna ekki bifreiðaeigend-
ur, að taka ykkar eigin miða, áður en þeir lenda í klónum á
öðrum. Munið, fyrir 31. ágúst. Þessir einstæðu happdrættis-
miðar eru til sölu hjá Bifreiðaeftirlitinu og frú Björgu Bene-
diktsdóttur, Bjarkarstíg 1, sími 1656.
Styrktarfélag vangefinna.
um stöðvun atvinnurekstrar vegna vanskila ó
söluskatti og útflutningssjóðgjaldi.
Samkvæmt heimild í lögum nr. 10 22. marz 1960 verður
atvinnurekstur þeirra fyrirtækja hér í umdæminu, sem enn
skulda söluskatt II. ársfjórðungs 1960, svo og eldri söluskalt
og útflutningssjóðsgjald stöðvaður, þar til þau hafa gert fuil
skil á hinum vangreiddu gjöldum ásamt áföllnum dráttar-
vöxtum og kostnaði.
Þeir, sem vilja komast hjá stöðvun verða að gera full skil
til skrifstofu minnar eigi síðar en miðvikudaginn 31. þ. m.
Bæjarfógeti.
¥inber
Cltronur
Appelsinur
Nglenduvorudeild KEA 09 útibú
NÝKOMIÐ
Appelsínusafi
Hindberjasafi
Orangesafi
Ananas, niðursoðið
Kökukrem
Plastlínsterkja.
Kaupfélag
verkamanna
Kjörbúð, útibú.
Tékkuesklr
strigoshór
fyrir börn, kvenfólk og karl-
menn. Oklaháir og lágir.
• Mjög gott úrval af hinum
þekktu
gervi-rúskinnsskóm
fyrir börn og fullorðna.
Skóbnð KEA