Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 15.10.1963, Blaðsíða 1

Alþýðumaðurinn - 15.10.1963, Blaðsíða 1
ALÞYÐU MAÐURINN Ályktun fundar kjördæmisráðs Alþýðuflokksins í Norðausturþingi: Hiðurjœrsluleiðin verði reynd d ný til nð sporna gegn verðbólgunni HVATT TIL NÝVIRKJUNAR Á LAXÁ. TALIÐ NÝRRA LEIÐA ÞÖRF í LANDBÚNAÐI. Sigurður Bjernason, Akureyri, varð aflahæst norðlenzkra síldveiðiskipa sumar, aflaði um 28.500 mól og funnur, hósetahlufur um 150 þús. kr. Skip- stjóri ó Sigurði Bjarnasyni er Tryggvi Gunnarsson, Akureyri. Eigandi skipsins Leó Sigurðsson. Eins og greint var frá í síðasta Alþra., hélt kjördæmisráð Alþýðu- flokksins í Norðurlandskjördæmi eystra ársfund sinn á Húsavík 6. okt. s.l. A fundinum var gerð eftirfar- andi ályktun um ýmis mál kjör- dæmisins, sem og nokkur önnur, er snerta landsmenn alla. Ályktunin er svohljóðandi: „Fundur kjördæmisráðs Alþfl. í Norðurlandskjördæmi eystra, haldinn á Húsavík 6. okt. 1963, gerir svofellda ályktun: Helztu framkvæmdar- mólin Kjördæmisráð lítur svo á, að Um áfeagúsöiuna d Abureyri var drukkið út í sumar andvirði 12 vandaðra íbúða eða hdlfs nýtízku síldveiðiskips með öllam útbúnaði Frá fundi áfengisvarnarráðunautar ríkisins og áfengisvarnarnefndar Akureyrar með skólastjór- um bæjarins og blaðamönnum. Síðastliðinn laugardag boðaði áfengisvarnarnefnd Akureyrar skólastjóra bæjarins og blaða- menn til fundar við sig í Varð- borg. Á fundinum var mættur Kristinn Stefánsson, áfengisvarn- arráðunautur ríkisins, en hann var kominn norður í tilefni bind- indisdagsins sl. sunnudag að pre- dika í Akureyrarkirkju. Tilefni fundarins var að skipt- ast á skoðunum um, hvað gera mætti til að sporna gegn vaxandi drykkjuskap. Ármann Dalmannsson, formað- ur áfengisvarnarnefndar gerði grein fyrir tilefni fundarins og bauð Kristin Stefánsson, áfengis- varnarráðunaut sérstaklega vel- kominn. Hann kvað það vafalaust sam- dóma álit allra, að áfengisneyzla væri óhugnanlega mikil og færi enn vaxandi. Hins vegar greindi menn talsvert á, hvað gera ætti og gera mætti til úrbóta. Hann vildi hér nefna þrennt, sem hann teldi mikilsvert: að skólarnir væru sjálfum sér nógir um skemmtana- hald, að félög ástunduðu meir skemmtanahald án áfengis og ríki og bæir takmörkuðu mjög vín- veitingar í veizlum. Kristinn Stefánsson rakti í stórum dráttum störf áfengis- varnarráðunautar og áfengisvarn- arnefnda, 127 að tölu í landinu. Allir spyrðu: Hvað er hægt að gera til úrbóta? Og vissulega væri það sitt af hverju, en því miður stundum lítið sem ekkert, ef vilj- inn væri ekki fyrir hendi til að þiggja hjálp hjá þeim, er hjálpar væru þurfi. Hér liefðu áfengis- varnarnefndir t. d. þrengra vald- svið en á Norðurlöndum, eða raunar ekkert valdsvið. Það yrði líka að segjast eins og væri, að alltaf yrði erfitt um vik til úrbóta, meðan ríkisvaldið hefði fj árhagslegra hagsmuna að gæta í mikilli áfengisneyzlu, enda færi áfengissalan alltaf vax- andi, hér á Akureyri hefði t. d. áfengissalan yfir 3 sumarmánuð- ina júlí—sept. orðið um 6 millj. kr., eða hærri en nokkru sinni fyrr. Því miður virtust heimili, skól- ar og kirkjan ekki valda hlutverki sínu sem uppalendur, fyrirmynd- irnar væru ekki slíkar, sem æskan þyrfti til að hljóta kjölfestu í líf sitt, en um farsælt heimilislíf, trausta skóla og gróandi trúarlíf lægi leiðin til hófsemi og bind- indis að áliti sínu. Valdemar Óskarsson, sveitar- stjóri á Dalvík og formaður fé- lags áfengisvarnarnefnda við Eyjafjörð, benti á gildi ung- (Framhald á bls. 2). brýnustu framkvæmdarmál í kjör- dæminu séu uppbygging hafna, endurlagning og nýlagning vega og framhald rafvæðingar. Fagnar ráðið þeim framkvæmdum, sem þegar hafa verið gerðar í þessum málum, en leggur áherzlu á, að fast beri að vinna að framhaldi þeirra. I því sambandi vekur ráðið at- hygli á, að aukning virkjunar á Laxá er þegar að komast í ein- daga. Þá hvetur ráðið mjög eindregið til aukinnar athugunar og notkun- ar á jarðhita í kjördæminu, og vísar til fyrri yfirlýsinga sinna um stuðning við og hvatningar til aukins iðnaðar í sambandi við notkun rafurmagns og jarðhita, m. a. kísilgúrnám úr Mývatni. Aukning skipaflotans Kjördæmisráð vekur athygli'á, að útvegur í kjördæminu er yfir- leitt rekinn af miklum dugnaði og hagsýni, og aflabrögð t. d. á síld- veiðunum í sumar — hafa verið sérlega góð á mörg skipanna. Kjördæmisráð telur, að hér sé ein meginstoðin undir velmegun kjördæmisbúa og hvetur eindreg- ið til, að ráðandi menn byggðar- lagsins — svo sem alþingismenn þess — stuðli eftir megni með fyrirgreiðslu sinni að aukningu skipaflotans og vinnslustöðva afl- ans. Raunhæfar kjarahætur Ýmis félög í Reykjavík og ná- grenni, sem ekki lúta forystu kommúnista, komu saman til fund- ar s.l. föstudag og laugardag og ræddu kaup- og kjaramál. I ályktun er fundurinn sam- þykkti um þessi mál, leggja fé- lögin áherzlu á, að verkalýðsfélög- in verði að fá bætt í hækkuðu kaupi þær miklu verðhækkanir, sem orðið hafi nú upp á síðkastið, og þá ekki sízt búvörur, og einnig að hljóta sína hlutdeild í auknum þjóðartekjum og til samræmis við miklar launabætur, sem ýmsir stéttarhópar hafi fengið í sumar. Fundurinn lagði áherzlu á, að tryggja yrði, að þessar kjarabæt- ur yrðu raunhæfar, þ. e. yrðu ekki teknar aftur í hækkuðu verðlagi. Enn fremur taldi fundurinn, að kröfur til kjarabóta bæri að miða við það, að laun fyrir 8 stunda vinnudag væru lífvænleg. Fundurinn vildi láta auka verð- lagseftirlit og endurskoða verð- lagningu landbúnaðarvara. Stærstu félögin, sem að þessum fundi stóðu, voru Sj ómannafélag Reykjavíkur, Iðja, Verzlunar- mannafélag Rvíkur, Verkakvenna- félagið Framsókn og Félag ísl. rafvirkja. Aukinn jöfnuður í hag bænda Kjördæmisráð lýsir yfir af- dráttarlausum stuðningi sínum við bættan hag landbúnaðarins, en telur, að sú stefna, sem nú og lengi hefur verið fylgt í þeim efn- um, sé í ýmsum atriðum röng. Aukna áherzlu beri að leggja á samfærslu byggðar og samvinnu og samhjálp í búskap, og ríkis- valdinu beri að athuga, hvort eigi sé hagkvæmara í ýmsum tilfellum að kaupa upp afskekktar jarðir og hús þeirra og gera þannig eig- endum þeirra kleift með andvirði eigna þeirra að koma sér upp býli í þéttbýli, fremur en verja stórfé í vegi og raflagnir að afbýlum, sem svo þrátt fyrir allt fara þó í eyði. Kjördæmisráð bendir á, að hin geysimisjafna aðstaða bænda eftir jarðargæðum, markaði, veðráttu o. s. frv. valdi því, að í engri einni stétt hérlendis sé bilið jafn- breytt milli fátæks og ríks og hjá bændum. Sá ójöfnuður verður aldrei bættur með hækkun á verði búvöru, heldur verður að ráðast að rót meinsins: jafna aðstöðuna. Kjördæmisráð telur, að ríkis- valdinu og samtökum bænda beri að beita sér drjúgum meir að þessu verkefni en verið hefur. Byggingamál Kjördæmisráð fagnar því, að lögin um verkamannabústaði hafa nú fyrir forgöngu Alþfl. verið endursamin að núverandi aðstæð- um, svo að auknu gagni koma. Kjördæmisráð telur og Alþfl. vegsauka að því, hve farsællega félagsmálaráðherra Emil Jóns- syni hefur tekizt í auknum mæli að útvega fé til byggingasjóðs verkamanna og Húsnæðismála- stofnunar ríkisins. Hins vegar bendir ráðið á, að verulega skort- ir á, að byggt sé svo hagkvæmt og ódýrt sem framast er kostur, og telur, að samstillt átak ríkisvalds, bæjar- og sveitarfélaga og áhuga- samra einstaklinga þessu til úr- bóta gæti orkað miklu, og hér heri ríkisvaldinu að hafa forystu. Jafnframt ítrekar ráðið fyrri ályktanir sínar um, að lokamarkið um lán til íbúðabygginga eigi að setja svo hátt, að sambærilegt (Framliald á bls. 2).

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.