Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 15.10.1963, Síða 4

Alþýðumaðurinn - 15.10.1963, Síða 4
»8amdráttnr« Tímaiis I skdlaKiy^iu^uin Fyrir nokkrum dögum hóf dagblaðiS Tíminn árás á ríkisstjórnina — og þá sérstaklega menntamálaráðherra — fyrir „mikinn samdrátt“ í skólabyggingum. Blaðið þagnaði þó fljótt. Orsökin voru eftir- farandi upplýsingar, er Alþýðublaðið birti: „Fjárframlög ríkisins til skólabygginga hafa verið sem hér segir síðasta áratug: 1953 .......... 7.490.000 kr. (Framsókn í stjórn) 1954 .......... 7.990.000 — (Framsókn í stjórn) 1955 ........ 12 805.000 — (Framsókn í stjórn) 1956 .......... 16.490.000 — (Framsókn í stjórn) 1957 .......... 19.060.000 — (Framsókn í stjórn) 1958 .......... 18.679.500 — (Framsókn í stjórn) 1959 ......... 21.509.115 — (Framsókn EKKI í stjórn) 1960 ......... 31.220.203 — (Framsókn EKKI í stjórn) 1961 ......... 37.191.848 — (Framsókn EKKI í stjórn) 1962 ......... 47.403.174 — (Framsókn EKKI í stjórn) 1963 ......... 63.595.986 — (Framsókn EKKI í stjórn)“ 1962 ........ 47.403.174 — (Framsókn EKKI í stjórn) 1963 ........ 63.595.986 — (Framsókn EKKI í stjórn)“ BIRGIR IIHNSSON HOSIHH FORSETI SANEINAÞS NN(S Deildarforsetar sömu og voru. Krafa Alþýðusambands IVorðnrlandis: Styttri vinnutími og houpluehhun Alþingi var sett 10. þ. m. af forseta íslands. Fyrsta fundi stjórnaði aldursforseti þingsins Olafur Thors forsætisráðherra, og var kosið í kjörbréfanefndir. Þrír nýir þingmenn sitja nú Al- þingi: Matthías Bjarnason, 11. landskjörinn, og Sverrir Júlíus- son, 7. landskj örinn, báðir fyrir Sjálfstæðisfl., og Ragnar Arnalds, 5. landskjörinn, fyrir Alþýðu- bandal. Hann er yngstur þing- manna, 25 ára. Sl. föstudag, 11. þ. m. skiluðu kjörbréfanefndir áliti og lögðu til, að öll kjörbréf þingmanna væru tekin gild, og var svo samþykkt. Þessu næst var kjörið í deildir, og þingforsetar kjörnir. Efri deild skipa 20 þingmenn: 8 Sjálfstæðismenn, 6 Framsóknar- menn, 3 Alþýðufl.menn og 3 Al- þýðubandal. Neðri deild skipa 40 þingmenn: 16 Sjálfst., 13 Frams., 6 Alþýðu- bandal. og 5 Alþfl. Forseti sameinaðs þings var kjörinn Birgir Finnsson, A., með 32 atkv. Karl Kristj ánsson, F., hlaut 19 og Hannibal Valdemars- son, Alþýðubandal., 9. Fyrsti varaforseti var kjörinn Sigurður Agústsson S., og annar varaforseti Sigurður Ingimundar- son, A. Forseti neðri deildar var kjör- inn Jóhann Hafstein, S. með 21 atkv. Einar Olgeirsson, Alþýðu- bandal., hlaut 6, og Halldór Ás- grímsson, F., 13. Fyrsti varaforseti var kjörinn Benedikt Gröndal, A., og annar varaforseti Jónas G. Rafnar, S. Forseti efri deildar var kjörinn Sigurður Ó. Ólafsson, S. með 11 atkv., Karl Kristjánsson hlaut 6 atkv. og Björn Jónsson, Alþýðu- bandal. 3. Fyrsti varaforseti var kjörinn Eggert G. Þorsteinsson, A., og annar varaforseti Þorvaldur Garð- ar Kristjánsson. Ftatej d djgskró I fyrra var altalað, að Flatey- ingar hygðust allir með tölu flytja í land sökum erfiðra samgangna og hafnleysis, en nú er mjög rætt um hafnargerð þar með það fyrir augum — auk hagsmuna sjálfra Flateyinga — að þar verði at- hvarfshöfn fyrir báta frá Eyja- fjarðarhöfnum og jafnvel Húsa- vík, þegar snögglega veðrar á veiðisvæðunum út af Gjögrum, Skjálfanda og Grímseyjarsundi. M. a. hafa alþingismennirnir Bjartmar Guðmundsson, Jónas G. Rafnar og Karl Kristjánsson verið að kynna sér þessi mál í sumar og haust. Mjög stutt er á smábátamið úr Flatey og lífsskilyrði þar góð, ef hafnleysi bagaði ekki, og ekki er ósennilegt, að margur smábáta- eigandinn við Eyjafjörð kysi að hafa þaðan útræði tíma úr árinu, ef höfn yrði þar sæmileg. Er þess að vænta, að mál þessi verði gaumgæfilega athuguð, fyrr en Flateyingar sjá sig nauð- beygða til að fiýja eyna. 8. þing Alþýðusambands Norð- urlands var haldið á Akureyri 5. —6. október 1963. Forseti A. N. Tryggvi Helgason, form. Sjó- mannafélags Akureyrar setti þing- ið kl. 16 á laugardag og því var slitið laust eftir kl. 20 á sunnu- dagskvöld. Til þings mættu 36 fulltrúar og auk þess sat forseti Alþýðusam- bands íslands, Hannibal Valde- marsson þingið. Þingforseti var kjörinn Jón Ingimarsson, formaður Iðju, fé- lags verksmiðjufólks á Akureyri og varaforseti Óskar Garibaldason formaður Verkamannafélagsins Þróttar á Siglufirði. Ritarar þings- ins voru kjörnir Þórir Daníelsson, Akureyri og Kolbeinn Friðbjarn- arson, Siglufirði. Þingið gerði ályktanir í kaup- gjaldsmálum og atvinnumálum á sambandssvæðinu. Einnig voru gerðar nokkrar lagabreytingar og allmikið rætt um skipulagsmál verkalýðshreyfingarinnar o. fl. I stjórn sambandsins til næstu tveggja ára voru kosin: Miðstjórn: For/eti: Tryggvi Helgason, Ak- ureyri. Varaforseti: Björn Jónsson, Ak- ureyri. Ritari: Þórir Daníelsson, Akur- eyri. Meðstjórnendur: Jón Ingimars- son, Akureyri, Freyja Eiríksdótt- ir, Akureyri. Varamenn: Hreinn Ófeigsson, Akureyri, Þorsteinn Jónatansson, Akureyri, Arnfinnur Arnfinnsson, Akureyri. Fjórðungsstjórn auk miðstjórnar: Óskar Garibaldason, Siglufirði, Guðrún Albertsdóttir, Siglufirði, Hulda Sigurbjörnsdóttir, Sauðár- króki, Ásgrímur Gunnarsson, Ól- afsfirði, Kristján Larsen, Akur- eyri, Þorgerður Þórðardóttir, Húsavík, Páll Ólafsson, Akureyri, Páll Árnason, Raufarhöfn, Valde- mar Sigtryggsson, Dalvík, Björg- vin Jónsson, Skagaströnd. Varamenn: Sveinn Júlíusson, Húsavík, Kolbeinn Friðbjarnar- son, Siglufirði, Líney Jónasdóttir, Ólafsfirði, Jón Ásgeirsson, Hrís- ey, Margrét Þorgrímsdóttir, Hofs- ós, Sigríður Guðmundsdóttir, Raufarhöfn. Endurskoðendur: Sigurður Rósmundsson, Haraldur Þorvalds- son. Varamaður: Sigurður Karls- son. I ályktun um kaupgjaldsmál, er að framan getur, segir orðrétt, „að óhj ákvæmilegt sé, að verka- lýðshreyfingin befji án tafar að- gerðir og beiti öllu valdi sínu að réttum lögum til þess: Ár 1963, föstudaginn 11. okt. kom bæjarráð Húsavíkur ásamt hreppsnefnd Reykjahrepps saman lil fundar á skrifstofu bæjarstjóra Ilúsavíkur. Á fundi voru: bæjarstj. Áskell Einarsson, Ásgeir Kristjánsson, Páll Kristjánsson (í fjarveru Jó- hanns Hermannssonar) Ingi- mundur Jónsson, Atli Baldvins- son, Jón Þórarinsson og Vigfús Jónsson, Þrír þeir síðast töldu í breppsnefnd Reykj ahrepps. Þetta gerðist á fundinum: Bæjarstjóri, Áskell Einarsson, gerði grein fyrir því í hvaða til- gangi hann hefði boðað til fund- arins, en fundinn hafði hann boð- að til umræðu um möguleika á heymjöls- og fóðurköggla fram- leiðslu í sambandi við ræktunar- og hitavatnsskilyrði í Reykja- hverfi (Þar með Hvammsheiði). Eftir umræður um málið var svofelld ályktun samþykkt ein- róma: „Bæjarráð Húsavíkur og hrepps- nefnd Reykjahrepps beina því til alþingismanna úr Norðurlands- 1. Að ná fram kauphækkunum, sem svari til verðlagshækkana síðustu 4—5 ára, eðlilegrar hlutdeildar í aukinni þjóðar- framleiðslu og launahækkana betur launaðra starfsstétta. 2. Að knýja fram styttingu á hin- um óhóflega langa vinnudegi verkafólks, t. d. að samnings- binda styttingu vinnutímans í áföngum næstu 2—3 árin. 3. Að knýja fram lagalegan rétt verkalýðssamtakanna til þess að þeim sé frjálst að semja við atvinnurekendur um raun- veruleg laun, en ekki aðeins krónuupphæðir launa eins og ' ií nu er. kjördæmi eystra, að hlutast til um að athugaðir séu möguleikar til þess að koma upp fóðuriðnaði í sambandi við nýtingu jarðhil- ans í Reykjahverfi. Bæjarráð og hreppsnefndin leyfa sér að benda á, að í Reykja- hverfi og á Hvammsheiði eru óvenjulega góð skilyrði til stór- felldrar og samfelldrar ræktunar í nábýli við mikinn ónotaðan jarðhita. Telja bæjarráðið og hrepps- nefndin að þar séu mjög ákjósan- leg skilyrði frá náttúrunnar hendi fyrir grasmj ölsframleiðslu og annan fóðuriðnað, og jafnframt fyrir fóðurbirgðabúr, er þjóni heilum landshlutum. Því beinir bæjarráðið og hreppsnefndin því sérstaklega til alþingismannanna, að könnuð séu til hlítar skilyrði fyrir fóður- birgðastöð Norðurlands staðsettri í Reykjahverfi.“ Hér er framfara- og fram- kvæmdamáli hreyft, sem sjálfsagt er, að vel sé athugað. NáttúrugripasajniS, Hafnarstræti 81, 4. hæð. — (Gengið inn að austan). — I vetur verður safnið opið almenningi á sunnudögum kl. 14—16. Þeir sem vilja skoða safnið á öðrum tímum hafi samband við safnvörð, Ilelga Hallgríms- son, í síma 2983. Amtsbókasajnið er opið alla virka daga kl. 4—7 e. h. ALÞÝÐU MADURINN RAF, Geislag’ötu 12 auglýsir: Nú er búðin opin aftur alla daga. — Margs konar lampar og rafáhöld. — Allar teg. af hinum viðurkenndu Philips perum. — Japönsk ferðaútvörp með bátabylgjum. — Dyrasímar, sjónaukar o. fl. GÚSTAV JÓNASSON, rafvirkjameistari. Verður Reykjahveríi fóður- birgðastöð Norðlendinga Áhugamenn vilja koma þar upp heymjölsverksmiðju.

x

Alþýðumaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.