Alþýðumaðurinn - 26.11.1963, Blaðsíða 1
ALÞYÐU
MAÐURINN
Lyndon B. Jolmsm tehur við
JorsetdcndNEtti Bonddríkjonna
Hann er 30.
Lyndon B. Johnson, varafor-
seti Bandaríkjanna, meðan John
F. Kennedy sat í forsetastóli, hef-
ur tekið við forsetaembætti, og
er hann 36. forseti Bandaríkj-
anna.
forseti þeirra
j Lyndon B. Johnson kom í
stutta heimsókn hingað til lands
í sept. s.l. Fáa mun þá hafa grun-
að, að hann sæti innan fárra
vikna í forsetastól lands síns, en
Islendingum gazt vel að varafor-
setanum, og það mun ósk þeirra
sem og flestra góðviljaðra manna
um allan heim, að þessum nýja
' höfðingja Bandaríkjanna takist
vel um stjórnarstörf sín og honum
auðnist að halda svo fram, sem
fyrirrennari hans.
Hinn nýi forseti er 55 ára að
aldri, fæddur 27. ág. 1908 í Texas.
Vel menntur maður og vinsæll og
hefur um fjölmörg ár verið einn
áhrifamesti stjórnmálamaður
Bandaríkjanna, svo að hér hefur
enginn viðvaningur sezt á valda-
stól.
Ntórhugra flugmaður
Tryggvi Helgason, flugmaður,'
hefur nýverið fest kaup á 4 10
farþega flugvélum í Bandaríkjun-
um, en fyrir á hann 3 kennsluflug-;
vélar og sjúkraflugvél að hálfu á
móti Rauða kross deildinni hér
og slysavarnardeild kvenna.
Hinar nýkeyptu vélar eru Twin
Bolli Þórir Gústavsson
vígður t-il Hríseyjar-
prestakalls
Síðastliðinn sunnudag var Bolli
Þórir Gústavsson, cand. theol.,
vígður prestur til Hríseyjarpresta-
kalls. Vígslan fór fram í dóm-
kirkjunni í Reykjavík og fram-
kvæmdi biskupinn yfir íslandi,
herra Sigurbjörn Einarsson, vígsl-
una, en vígsluvottar voru séra
Pétur Sigurgeirsson, Akureyri,
séra Magnús Guðmundsson, Set-
bergi, séra Ingólfur Þorvaldsson,
áður sóknarprestur í Ólafsfirði,
og Björn Magnússon, prófessor.
Beech vélar, árgerð 1954, en til-
tölulega lítið notaðar. Þær eru
tveggja hreyfla, meðalflughraði
J um 300 km. á klukkustund, flug-
þol um 8 klst. við létta hleðslu,
þurfa flugbraut frá 450—800
m eftir hleðslu. Þær eru búnar
ísvarnartækjum og blindflugs-
tækjum ásamt góðum radíótækj-
um. Taka 9—10 farþega.
Vélunum þarf að sjálfsögðu að
breyta og endurbæta nokkuð
(herflugvélar) og munu þá kosta
Tryggva Helgason um 1 millj. kr.
hver, en nýjar kostar vélar af
þessari gerð um 6 millj. kr.
Fyrstu vélina vonast Tryggvi
til að geta sótt með vorinu eða
jafnvel tvær þeirra, en að sjálf-
sögðu taka breytingarnar nokk-
urn tíma.
Messur. Æskulýðsmessa verður í
Akureyrarkirkju n.k. sunnudag kl. 2
e. h. Þess er vænzt, að foreldrar mæti
með börnum og ungmennum. — Sóknar-
prestar.
John F. Kennedy, Banda-
ríkjaforseti myrtur í Texas
Horðið veknr and§tyggð og harm 11111 allan
heim. Virðing,armcim 50 rikja nm víða veröld
fylgfdn liinnm látna forseta til grafar í gær.
Þau hörmulegu ótíðindi gerð-
ust s.l. fimmtudag, að John F.
Kennedy, forseti Bandaríkjanna,
var skotinn úr launsátri á götu í
Dallas í Texas.
Forsetinn var á leið í sjúkra-
hús, þar sem hann ætlaði að
halda ræðu. Hann ók í opinni
bifreið í fylgd konu sinnar og
ríkisstjóra Texas.
Banaskotið hæfði forsetann í
gagnaugað og mun hann hafa lát-
izt nær strax. Ríkisstjórinn særð-
ist hættulega.
Maður að nafni Lee Harvey
Oswald var skömmu síðar hand-
tekinn, grunaður um morðið, og
bárust bönd fastlega að honum,
en áður en mál hans væri full-
rannsakað, var hann skotinn í
höndum lögreglunnar í Dallas.
Vekur það mál grun um, að víð-
tækt samsæri standi að baki morð-
inu á Kennedy, og virðast flestir
á þeirri skoðun, að svertingja-
hatur ýmsra Suðurríkjamanna sé
ábyrgt fyrir þessum liörmungar-
atburði.
John F. Kennedy varð aðeins
46 ára gamall, umdeildur nokkuð
í forsetastól, en virtur af sam-
herjum sem andstæðingum sem
mikill persónuleiki.
Fár eða enginn atburður mun
hafa vakið líkan harm og and-
styggð um víða veröld í sama vet-
STÓRTJÓN AF ELDS-
VOÐA í AÐALDAL
Fyrra sunnudag kom upp eldur
í verkfærageymslu að bænum
Miðhvamnii í Aðaldal en bóndi
þar er Arinbjörn Kjartansson.
Var Arinbjörn að vinna í geymsl-
unni og var með logandi prímus.
Gekk hann frá stundarkorn en er
hann kom aftur til baka stóð
geymslan í björtu báli.
Brann geymslan og allt sem í
henni var, þar á meðal Volkswag-
enbíll, dráttarvél, snúningsvél og
fleiri tæki. Var allt óvátryggt
nema dráttarvélin og hefur bónd-
inn því orðið fyrir stórkostlegu
tjóni. Helzt er haldið að prímus-
inn hafi sprungið og síðan kvikn-
að í út frá sprengingunni.
fangi og hjá öllum sem víg hans,
er það fréttist. Allur heimurinn
er höggdofa yfir, að slíkt voða-
verk skyldi hafa getað verið unn-
ið, og öllum virtist samstundis
ljóst, að hér var ekki einungis
mikilhæfur foringi felldur, held-
ur hafi launmorðingj avopni verið
lyft gegn markvissum sóknarferli
til friðsamlegri sambúðar þjóða,
aukinni víðsýni í samskiptum ein-
staklinga, og víðtækari mannrétt-
indum.
Þjóðhöfðingjar og virðingar-
pienn fjölmargra þjóða vottuðu
Bandaríkjaþjóð þegar dýpstu
hluttekningu sína og harm yfir
vígi forseta hennar og við útför
hans, sem gerð var í gær, að við-
stöddum gífurlegum mannfjölda
voru æðstu virðingarmenn frá
fjölmörgum ríkjum, svo að með
eindæmum má telja.
Víða um lönd drúptu fánar í
hálfa stöng daginn eftir morðið
og í gær, jarðarfarardaginn og í
fjölmörgum ríkjum fóru minn-
ingarathafnir fram í gær, m. a. í
dómkirkjunni í Reykjavík, þar
sem biskupinn yfir íslandi, herra
Sigurbjörn Einarsson, flutti minn-
ingarorð, en meðal kirkjugesta
voru ríkisstj órn og handhafar
forsetavalds.
Þá var hins látna forseta minnzt
á alþingi í gær, þar sem Birgir
Finnsson, forseti sameinaðs þings,
flutti um hann minningarorð.
Fulitrúar íslands við jarðarför
Johns F. Kennedy í Washington
voru Guðmundur í. Guðmunds-
son, utanríkisráðherra, og Thor
Thors, ambassador.
Leikflokkur fró Ólafsfirði
kom hingað til bæjarins um síð-
ustu helgi og hafði þrjár sýningar
í Samkomuhúsinu á gaman- og
söngleiknum Þrír skálkar eftir
Gandrup. Leikstjóri var Kristján
Jónsson, Rvík, en leiktjöld hafði
Kristinn Jóhannsson, skólastjóri í
Olafsfirði, en Akureyringur að
uppvexti, málað.
Leikendur voru 12 auk dans-
fólks, og var leiksýning Ólafsfirð-
inganna létt og hressileg og gerðu
áhorfendur góðan róm að henni,
en þeir fylltu Samkomuhúsið.
Ólafsfirðingar setja venjuleg-
ast tvo sjónleiki á svið á vetri
hverjum og ber það vott um mik-
inn dugnað og leikgleði og leik-
áhuga í ekki stærri bæ. Það var
líka auðséð, að í sumum hlutverk-
unum í Þrem skálkum voru engir
viðvaningar á ferð.
Hafi Ólafsfirðingar þökk fyrir
komuna og góða skemmtun.