Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 11.06.1964, Side 1

Alþýðumaðurinn - 11.06.1964, Side 1
Straumhvörf í vinnubrögðum varð- flodi hdup- og hjaramdl verhdfólhs HiS nýja skip Þórður Jóncsson, eigendur Valtýr Þorsteinsson útgerðarm. Nýtt fishiship bcetist i M/s Þórður Jónasson RE 350. Eigendur Valtýr Þorsteinsson, Akureyri og Sæmundur Þórðar- son, Stóru-Vatnsleysu. • Ríkisstjórn, verkalýðssamtök og atvinnurekendur nó samkomulagi um órlangan vinnufrið. í dag kom hingað til Akureyr- ar frá Noregi nýtt 300 tonna fiskiskip, Þórður Jónasson R.E. 350. Eigendur eru Valtýr Þor- steinsson, útgerðarmaður hér, og Sæmundur Þórðarson, skip- stjóri, Stóru-Vatnsleysu, er sigldi skipinu heim og verður skipstjóri á því. Sæmundur hefur síðast- liðin tvö ár verið skipstjóri á Akraborg, og áhöfnin að kalla sú sama og þar var. Samningur um smíði skipsins var gerður við A/S Akers mek. Verksted Oslo, en skipið byggt hjá Stord Verft, Stord, en Stord Verft er ein af þeim skipasmíða- stöðvum, sem eru í Akers grupp- unni, og er m/s Þórður Jónasson fyrsta skipið, er þeir byggj a fyrir íslendinga. Umboðsmaður hér á landi fyrir Akers mek. Verksted er Pétur 0. Nikulásson, Reykja- vík. Þórður Jónasson er stærsta fiskiskip, sem byggt hefur verið fyrir íslendinga, þegar frá eru taldir togarar og verður að lík- indum stærsta skipið, sem í sum- ar stundar síldveiðar fyrir Norð- ur- og Austurlandi. M/s Þórður Jónasson er byggður í klassa Norsk Veritas -f- 1A1 IS C Havfiske og sam- kvæmt kröfum skipaskoðunar ríkisins og er vandaður að allri gerð. Skipið er búið öllum beztu öryggis- og fiskileitartækjum, svo sem tveimur dýptarmælum, sem báðir eru með sj álfleitandi asdic útfærslu, öðrum af Simrad gerð og hinum af Atlas gerð. Kelvin Huges radar, Arkas sjálf- stýringu, Koden miðunarstöð og Koden Loran, Simrad sendistöð 100 vatta. Frystilest er í skipinu og tvær aðskildar fiskilestar með aluminium uppstillingu og plast- klæddri innsúð. Er hægt að kæla báðar fiskilestarnar. íbúðir fyrir 14 menn eru allar aftur í skipinu, í eins og tveggja manna klefum. Aðalvél er Wickmann 700 hestafla og þrjár Lister hjálpar- vélar, er geta framleitt um 100 kw af rafmagni. Allar vindur eru olíudrifnar og má frátengja þær úr stýrishúsi. Hægt er að hafa tvær nætur í senn á bátaþilfari. A heimsiglingu frá Noregi og Sæmundur Þórðarson, skipstjóri. flttann reyndist skipið mjög vel. Gang- hraði þess í reynsluför varð 13 mílur. Stýrimaður á m/s Þórði Jón- assyni verður Sigurður Krist- jánsson, Hafnarfirði, og vél- stjórar þeir Björn Sigurbjörns- son, Reykjavík, og Tómas Krist- jánsson, Akureyri. Skipið mun hefja síldveiðar næstu daga. STEFÁN STEFÁNSSON/ jórnsmiður, lótinn 1. þ. m. lézt í Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri eftir nokkurra mánaða dvöl þar Stefán Stefáns- son, járnsmiður, Glerárgötu 2. Hann var á 79. aldursári, fæddur 5. nóv. 1885, Skagfirðingur að fæðingu og uppvexti. Stefán Stefánsson rak járn- smíðaverkstæði hér í bæ um langt árabil, virtur og vel met- inn í iðn sinni, drengur hinn bezti og ráðdeildarmaður. Jarðarför Stefáns heitins fór fram frá Akureyrarkirkju s.l. laugardag að viðstöddu fjöl- menni. Aðfaranótt sl. föstudags náð- ist samkomulag milli ríkisstjórn- arinnar, Alþýðusambands ís- lands og Vinnuveitendasambands Islands um leiðir til að stöðva verðbólgu og ráðstafanir til kjarabóta fyrir verkafólk. Mæltu þessir aðilar með, að samningar yrðu gerðir milli verkalýðsfé- laga og vinnuveitenda á grund- velli þessa samkomulags, og hafa mörg félög þegar gert svo, þ. á. m. öll eða nær öll verkalýðsfélög norðan- og austanlands, sem höfðu lausa samninga. Áðalatriðin í því almenna samkomulagi, sem náðist milli ríkisstjórnarinnar og verkalýðs- hreyfingarinnar, eru þessi: Samningar við verkalýðsfélög- in gildi til ekki skemmri tíma en eins árs. Ekki eigi sér stað hœkkun grunnlauna á því tímabili. Sett verði lög um verðtrygg- ingu kaupgjalds, sérstök kaup- gjaldsvísitala reiknuð út fjórum sinnum á ári og kaupgreiðslur miðaðar við vísitöluna 1. maí sl. Miðað er að styttingu vinnu- tímans með því að eftirvinnuá- lag lœkki í 50%, en dagvinnu- kaup sé jafnframt hœkkað þann- ig, að tekjur verði óbreyttar þrátt fyrir styttingu vinnutímans um stundarfjórðung og lœkkun eft- irvinnuálags. Nœtur- og lielgi- dagakaup standi óbreytt í krónu- tölu. Lög verði sett um lengingu or- lofs verkafólks úr 18 dögum í 21. Víðtœkar ráðstafanir verði gerðar í húsnœðismálunum. 250 millj. kr. verði aflað til lána nœsta árið og lán út á hverja íbúð verði ekki minni en 280 þús. krónur. Tryggð verði bygg- ing 1500 íbúða á ári. 15—20 millj. kr. verði varið til viðbótarlána til verkafólks eft ir tillögum verkálýðsfélaganna. Lagður verði á 1% almennur launaskattur til húsnœðisfjáröfl- unar og íbúðarlán verði vísitölu- bundin með 4% vöxtum til 25 ára. Heildarsamkomulagið fer hér á eftir: Undanfarnar vikur hafa farið fram viðræður milli ríkisstjórn- arinnar, Alþýðusambands ís- lands og Vinnuveitendasam- bands íslands. Ræddar hafa ver- ið leiðir til stöðvunar verðbólgu og til kjarabóta fyrir verkafólk. Þessar viðræður hafa nú leitt til samkomulags um þau atriði, sem hér fara á eftir, og mæla aðilar með því, að samningar milli verkalýðsfélaga og vinnu- veitenda séu nú gerðir á þeim grundvelli. I. Verðfrygging kaupgjalds. 1. Ríkisstjórnin beitir sér fyrir því, að verðtryggingu kaupgjalds sé komið á með lagasetningu. Verðtryggingin sé miðuð við vísitölu framfærslukostnaðar í Reykjavík. Þó nái verðtrygg- ingin ekki til hækkunar þeirrar vísitölu, sem stafar af hækkun á vinnulið verðgrunns landbún- aðarafurða vegna breytinga á kauptöxtum eða vegna greiðslu verðlagsuppbótar á laun. 2. Reiknuð sé út sérstök kaup- greiðsluvísitala fj órum sinnum á ári, miðað við þann 1. febrúar, I. maí, 1. ágúst og 1. nóvember. Þessi vísitala sé miðuð við sama grundvallartíma og núverandi vísitala (marz 1959). 3. Kaup breytist samkvæmt hækkun kaupgreiðsluvísitölunn- ar frá því, sem hún var 1. maí 1964. Þessar breytingar fari fram ársfj órðungslega mánuði eftir að kaupgreiðsluvísitalan hefur verið reiknuð út, þ. e. 1. marz, 1. júní, 1. september og 1. desember. Kaup breytist með 'hverri hækkun eða iækkun vísi- tölunnar um eitt stig eða meira 4. Aðilar samkomulagsins mæla með því við Kauplagsnefnd og Hagstofuna, að hafin sé end- urskoðun grundvallar vísitölu framfærslukostnaðar. Nýr vísi- tölugrundvöllur taki því aðeins gildi á samkomulagstímabilinu, að samkomulag sé um það milli aðila. II. Viku- og mónaðarkaup verkafólks í samfelldri vinnu. Verkalýðsfélög og vinnuveit- endur semji um, að verkafólki (Framh. á 2. síðu).

x

Alþýðumaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.