Alþýðumaðurinn - 01.07.1965, Síða 2
2
tm m m_-mÆr u ■
ALPYÐU
MAÐURINN
RITNEFND: STEINDÓR STEINDÓRSSON (ÁB.), ALBERT SÖLVA-
SON, HREINN PÁLSSON OG GUÐMUNDUR HÁKONARSON —
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKSFÉL. AKUREYRAR — AFGREIÐSLA
OG AUGLÝSINGAR: STRANDGÖTU 9, II. HÆÐ, SÍMI 11399
PRENTUN: PRENTSMIÐJA BJÖRNS JÓNSSONAR H.F. AKUREYRI
»Uppreisnin d Bounty«
Þau tíðindi gerðust um síðastliðna lielgi, að öll síldveiði-
skipin hættu veiðum og komu í höfn sökum óánægju með
verð á bræðslusíld. Yar eftir fyrstu fréttum að dæma, sem
hér væru á ferð samtök skipstjóra og jafnvel skipshafna, en
síðar hefur ótvírætt komið í ljós, að eigendur síldveiðiskip-
anna stóðu að baki, a. m. k. margir hverjir.
Þegar þetta gerðist, var tæpast veiðiveður á miðunum og
ditlar fréttir af síld, svo að tapið af ráðstöfunum þessum
hefur vísast ekki vaxið framkvæmdamönnunum í augum, en
'þegar á mánudag var komið gott veiðiveður og síld fannst
austur af Langanesi.
Aðferðir síldveiðiskipanna, hverjir sem ábyrgðina bera,
verða að teljast forkastanlegar, enda munu sárafáir mæla
þeim bót. Vel má að vísu deiia uiri bræðslusíldarverðið, en
það var ákveðið með löglegum hætti, enda þá líka fyrsta
leiðin að freista þess að ná hækkun með samkomulagsum-
leitunum. Hitt er siðleysi, sem stefnir rit í algert stjórnleysi,
ef hagsmunahópar fara að taka sér sjálfdæmi um afrakstur
vinnu sinnar, eða hvar væri þjóðfélag vort statt, ef iðnverka-
fólk segði einn góðan veðurdag: Við leggjum niður vinnu,
unz við fáum svo eða svo mikið fyrir vinnustundina, verzl-
unarfólk gerði slíkt hið sama og daglaunamenn, opinberir
starfsmenn og aðrir, sem vinna þjónustustörf, liændur neit-
uðu að framleiða nema gegn þessu eða hinu framleiðslu-
verði o. s. frv.?
Allir skynsamir menn hljóta að sjá, að svona vinnubrögð
geta ekki endað nema í upplausn, sem hittir alla að lokum,
upphafsmennina ekki síður en aðra.
Útgerðarmennirnir hefðu átt að minnast þess, áður en
þeir örvuðu skipshafnir sínar til þessara vanhugsuðu að-
gerða, að þjóðin á nær öll skip þeirra, en þeir ekki sjálfir.
Það eru vissulega takmörk fyrir því, hvernig þeim má leyf-
ast að fara með þessa alþjóðareign, veiðiskipin, og þeir
mega vel vita það, að þolinmæði almennings eru takmörk
sett, hér sem annars staðar.
En þótt „uppreisnin á Bounty“ hljóti að fordæmast, er
jafnsjálfsagt að nota tækifærið og minna á, að yfirstjórn
síldarmála vorra mætti tvímælalaust vera röggsamlegri og
hreinskiptari við viðsemjendur sína en hún er. Það er skilj-
anlegt, að útgerðarmönnum og áhöfnum komi illa, hve
seint verðlag síldar er ákveðið ár eftir ár, hve skil á verð-
mætum hennar ganga oft seint og hve linlega er gerð grein
fyrir rekstri þeirra fyrirtækja, sem með vinnslu og sölu
síldarinnar hafa að gera. Hér skal t. d. á það bent, að um
allt land ganga tröllasögur af ofsagróða síldarverksmiðja
á sl. ári, og munu þær sögur hafa haft einhver áhrif á að-
gerðirnar um sl. helgi. Glöggar upplýsingar um þessi mál
HU«LEIBIN« Á NÆTURSTIIHD:
Æskan oo vií - Nótt d Akureyri
Það er haft á orði, að yfir
Akureyri hvíli settlegur virðu-
leikablær, eigi ósvipað og hjá
miðaldra manni, ráðsettum í ró-
legri og vel launaðri stöðu.
Þessi settleiki hefur oft ver-
ið misskilinn af öðrum, Reykvík
ingar kalla það mont, en Sigl-
firðingar drýldni, og því fannst
mér, aðkomumanninum, forvitni
legt að skyggnast lengra en rétt
á yfirborðið og hljóta með því
sönnur á því, hvort Akureyring-
ar væru eitthvert afbrigði af nú-
tíma íslendingi, fastari í rásinni
en gengur og gerist og bæru jafn
framt virðingu fyrir séreinkenn-
um sínum.
Það má vissulega til sanns
vegar færa, að Akureyringar
séu seinteknir og eigi gjarnir á
hástemmda tilfinningasemi á
torgum úti, og næsta furðu sam-
taka í að varðveita hið fellda,
misfellulausa yfirborð, það er
svo sem enginn kyngikraftur í
andrúmsloftinu, en þó er auðvelt
að skynja ólguna undir kyrr-
unni, sem vissulega er í ætt við
stórstreymi „heimsmenningarinn
ar,“ er leikur um Reykjavík og
siglfirzka hitabylgju.
Fljótt verð ég þess áskynja,
að hér, sem alls staðar þar sem
ég þekki til, veldur æskan hin-
um fullorðnu áhyggjum, og ó-
spart, en án haldkvæmra raka,
er hún dæmd af liörku og hlífð-
arleysi, og hve oft hef ég ekki
heyrt bæn Faríseans lyfta sér
hj áróma frá fj álgum vörum dóm
enda og í hrafnslíki hef ég eygt
hana sigla hraðbyri upp til skap-
ara himins og jarðar ívafna ótla
hins réttláta, um að hin syndum
spiltla æska kalli reiði guðs alls-
herjar yfir Akureyri og dæmi
liana undir eld og brennisteins-
árás eins og Sódómu og Gómorru
fyrri tíðar.
Víst er ósköp mannlegt að
dæma og einnig að skjátlast i
dómsniðurstöðúm, en hitt er öllu
verra, að viðurkenna eigi tilveru
snáksins í eigin barmi og dæma
æskuna gegn betri vitund, sussa
á snákinn en liefja síðan augu
til himins að hætti Faríseans
með hendur á brjósti, og svo
svífur bænin, svört eins og hrafn
inn: „Guð, ég þakka þér,“ er lit-
inn er æskumaður í göturenn-
Æskan horfir dreymnum augum
mót framtíðinni.
unni, grátlegt fórnardýr, er á-
klagar okkur hin eldri, ákærir
heimilin, skólana, kirkju og þjóð
félagið allt, fyrir að hafa brugðr
ist skyldum uppalandans og það
er ekki mene tekel yfir æskunni
sem réttlátur guð allsherjar rit-
ar feiknstöfum á ský himinsins
dómsorð sín, heldur yfir mér og
þér, vegna þess að liann veit um
snákinn, er við felum við brjóst
okkar.
Hví ekki að ganga á sjónar-
hól eina vornótt á Akureyri og
sjá syndum spillla æsku, þá er
hún kemur út úr danssölum bæj-
arins, já, um leið líta hreinleika
þeirrar kynslóðar, er ég telst til.
Súlur eru með ennisfald, en
Vaðlaheiði er merluð sólstöfum,
pollurinn speglar miðbæinn sem
álfaborg á kyrrum fleti sínum,
og Garðsárdalur býður óminn-
isfaðm mér þreyttum sveitadreng
og víst andar guð í blænum.
Tignarlegt musteri Sjálfstæðis
flokksins á Akureyri er að hleypa
út gestum sínum og einnig hús-
ið, sem er kennt við alþýðuna,
þá stétt, er mér hefur ætíð fund-
ist ég bezt eiga samleið með!
Víst birtast af sjónarhóli mín-
um ofurölva unglingar, er rjúfa
kyrrð júnínætur með drykkjulát
um, en meira má líta og heyra,
mín eigin kynslóð gengur djöful-
óð frá leik danssalanna, steyttur
hnefi uppalandans lýstur kinn
ungmeyjar, er hörfar undan á-
sókn ístrumaga, er augljóslega
var korninn af bernskuskeiði, og
hver veitti ungu stúlkunni hina
görótlu drykki og braut með því
áfengislöggjöf hins unga íslenzka
lýðveldis? Hún gat ekki keypt
það sjálf. Miskunnsamur Sam-
verji, kannski ístrumaginn, hafði
hlaupið þar undir bagga og ein-
mitt nú var hann að heimta laun
fyrir veittan greiða. Eg spyr, en
veit þó svar.ið. Vei yður, þér
hræsnarar, ef Akureyri er Só-
dóma hins nýja tíma, þá er það
ekki æskan, sem hefur kynnt
brennisteinsvíti hinna réttlátu
guða, heldur mín eigin kynslóð,
foreldrarnir, kennarinn, prestur-
inn, við erum þurrafúinn, er
sýkt hefur aflviði þá, er áttu að
vera traustir meiðir í glæsilegri
gnoð hins nýja Islands.
Súlan hefur lyft ennisfaldi og
grætur án leyndar, og úlfgrá
þoka hefur byrgt sólstafi Vaðla-
lieiðar.
Á miðju Hafnarstræti skríður
virðulegur borgari á fjórum íót-
um í átt til síns heima, og í ná-
lægð Paradísar Akureyrar, Lysti
garðsins, má sjá lík, ekki úr lið-
sveit æskunnar, heldur úr minni
eigin og við fjárhúskofa uppi í
Mýrarhverfi lítur sömu sjón,
fulltrúa minnar kynslóðar, sem
biðja bæn Faríseans og kasta
steinum að nýrri kynslóð, er
gengur troðnar slóðir okkar, en
vantar þó blæju skinhelginnar
sér til hlífðar og kann. ekki bæn
Faríseans sér til friðþæg.ingar
og huggunar, er grámi morguns
ins teiknar með risaletri atburði
þess, ér lifað var.
Staðar skal nema að sinni, en
þó er mér hugsað til vökumanna
U. M. S. E., er lúta eigi íláráðri
gróðahyggju, en veila æsku sveit
anna tækifær.i til að stíga dans
án nálægðar þess gróms, er mín
kynslóð afneitar að sé hennar,
en ásakar börn-sín fyrir.
Það er huggun að finna, að
enn séu til vökumenn á þessum
Framhald á bls. 5
liafa menn hins vegar ekki fengið. Skorlur á nákvæmum
upplýsingum getur verið hættulegur.
Ef „uppreisn“ skipanna leiddi til hreinna borðs í þess-
um málum, ætti við hana gamla máltækið, að fátt væri svo
með öllu illt, að ekki fylgdi nokkuð gott, en að öðru leyti
vonum vér einlæglega, að forráðamenn þessa vanhugsaða
og fordæmanlega uppátækis sjái hið fyrsta villu sína og
hverfi hið snarasta frá henni, því að svona vinnubrögð
samrýmast ekki siðuðu þjóðfélagi.