Víðir


Víðir - 14.06.1930, Page 1

Víðir - 14.06.1930, Page 1
II. árg. Vestmannaeyjum, 14. júní 1930. K j ö r s e ð i I I við hiutbundna kosning til Alþingls 15. júrí 1930. A l isti B-1 isti x C -1 i sti Haraldur Guðmundsson alþingismaður, Reykjavík Jónas Jónsson dómsmálaráðherra, Reykjavík Pétur Magnússon málaflutningsm., Reykjavík. Erlingur Friðjónsson alþingismaður, Akureyri Jakob Lárusson prestur, Holti Guðrún Lárusdóttir frú, Reykjavík Davíð Kristjánsson bæjarfulltrúi, Hafnarfirði Jón Hannesson bóndi, Deildartungu Kári Sigurjónsson bóndi, Hallbjarnarstöðum Elísabet Eiríksdóttir kenslukona, Akureyri þorsteinn Jónsson kaupfélagsstj., Reyðarfirði Skúli Thorarensen bóndi, Móeiðarhvoli Guðlaugur Jónasson bæjarfulltrúi, Seyðisfirði Kristinn Guðlaugsson bóndi, Núpi Sigurður Kristjánsson ritstjóri, ísafirði Finnur Jónsson póstmeistari, ísafirði Tryggvi Þórhallsson forsætisráðh., Reykjavík Magnússon Gíslason sýslumaður, Eskifirði Svona lítur kjörseðillinn út, þegar búið er að kjósa C-listann Gætið þess að setja krossinn framan við bókstaf þess lista, sem þér ætlið að kjósa. Hkki má kjósandi hagga neitt við hinum listunum, sem hann kýs ekki, hvorki strika út af þeim né setja önnur merki á þá, né heldur nein merki önnur en téð kosningamerki á lista þann, sein hann kýs, ella verður seðill hans ónýtur. Setjið kross fyrir framan C ið og þá Iítur kjörseðillinn út eins og hér að ofan. 31. tbl. Ferðasaga. þegar vertíðin var um garð gengin og farfuglar atvinnulífs- ins tóku að leita norður á bóg- inn, þá vaknaði einnig hjá mér löngun til að lyfta mér dálítið upp og losna um hríð við ó- frelsið og argið. Eg afréð því að taka mér ferð á hendur til Norðurlands og slá með því 3 Högur í höggi. Sú fyrsta var að fá mér svolítið sumarfrí, önn- ur að sjá mitt gamla kæra Norð- urland og sú þriðja að reka of- an í Tímann, þetta óráðvandasta stjórnmálablað Norðurevrópu, nokkuð af þeirri lygi og þeim rógi, sem hann hafði beitt ís- lenska lækna undanfarið, en þó einKum og sér í lagi minn gamla skólabróðir dr. Helga Tómasson. í því skyni ákvað ég að flytja á nokkrum stöðum norðanlands fyrirlestur minn um geðveikis- málið, sem ég hafði áður haldið við mikla aðsókn í Reykjavík í 2 skifti og í síðar í Hafnarfirði, Vík og Vestmannaeyjum. Hafði ég fengið áskoranir frá mörgum, bæði læknum og öðrum, að tak- ast slíka ferð á hendur. Dronning Alexandrine átti að f'ara úr Reykjavik þriðjud. 27. maí kl. 6 síðdegis og ætlaðí ég mér að ná henni með því að fara héðan með Lyru á mánud. Nú hittist svo iila á, að Lyra var sólarhring á eftir áætlun Óskar Halldórsson útgerðarmað- ur var hér í Eyjum úti og þurfti líka að ná Djotningunni og feng- um við því v.b. Kristbjörgu til að flytja okkur til Stokkseyrar, stigum beint af bátsfjöl upp í bíl og náðum niður á uppfyll- ingu í Reykjavík 10 mínútum fyrir kl. 6. Við hreptum vont veður fyrir Vestfjörðum, enda hafði snjóað niður í fjöru á fsafirði og var því kuldalegt þar um að lítast. Hélt ég þar fyrirlestur minn um kvöldið fyrir troðfullu húsi og við ágæta áheyrn. Vilmundur héraðslæknir sýndi mér gamal- mennahæli bæjarins og sjúkra- hús, sem er allmiklum mun stærra en sjúkrahúsið hér, — tekur um 50 sjúklinga. Rafmagn er dýrt á ísaflrði, kr. 1,00—1,10 k\v. tíminn, enda er það framleitt með vélaafli eins og hér. Nú hafa ísfirðing- ar ákveðið að virkja á eina þar inni f firðinum og er kostnaður- inn áætlaður'um V* m'ljón króna. þeir hafa fengið ríkisábyrgð fyr- ir upphæð þessari, en lániðfæst hvergi og er það sama sagan og með Sogsvirkjunina. Sú stjórn, sem ætlaði að drepa annan aðal- banka landsins, þrátt fyrir gott árferði, og ræna bæði hlutafé og inneign manna, nýtur hvergi lánstrausts erlendis. þjóðin verð- ur að sætta sig við frestun nauð- synlegra framkvæmáa og fram- fara meðan hún heldur við völd þeirri stjórn, sem sett hefur ó- reiðumark og skrælingjnblæ á land og þjóð. Á því fáum við Vestmannaeyjingar líka að kenna og verðum að bíða eftir því að fá hér þá höfn, sem er lifsnauð- syn fyrir bæinn, þangað til láns- traust landsins batnar erlendis. Dýpkunarskipið Uffe var á ísafirði að gera uppfyllingu út 1 höfnina, en leðjuna úr höfninni sjálfri var ekki hægt að nota og varð því að sækja leðju alla leið út í Hnífsdal, svo uppfylling þessi verður alldýr. Fregnir höfðu komið um ís fyrir Horni og fór Drotningin þvi ekki frá ísafirði fyr en und- ir morgun. Dimmviðri var á og kalsaveður, svo ekki sá til fjalla fyr en komið var austur undir Siglufjörð. Á Siglufirði höfðúm við litla dvöl í þessari ferð, en héldum áfram til Akureyrar um kvöldið. Akureyri ber eins og gull af eiri af öðrum bæjum jafnstórum á landi hér, enda hefur náttúran búið þar margt í haginn. Upp- landið er mikið og gott, höfnin sjálfgerð, svo ekki þarf að kosta öðru til en bryggjum, bærinn liggur vel við vatnsveitu og afl er yfrið n®g i Glerá til raforku. Akureyri hefur því flesl það sem Vestmannaeyjar brestur, og hef- ur fengið það lagt upp í hendur sér kostnaðarlítið. Auk þess stendur bærinn á gömlum merg sem höfuðstaður Norðurlands og býr því við eldri og rótgrónari menningu en hinir kaupstaðirn- ir. Setur það einnig mark sitt á fólkið, sem er frjálslegt og mannalegt eins Norðlendinga er háttur. Bærinn hefur stækkað mikið á síðari árum og eru hús flest mjög myndarleg ogvelmeg- unarbragur á öllu. þar er verið að byggja nýjan barnaskóla, en því miður hafði ég ekki tíma til að skoða hann, en minni þótti mér hann en skólinn oksar hér og er þó Akureyrarbær orðinn stærri. Aftur á móti skoðaði ég spítalann, sem er orðinn gamall og að sumu leyti á eftir tfman- um, þótt myndarhús hafi verið á sfnum tima. Á Akureyri hélt ég fyrirlestur minn, en fékk minni aðsókn en ella hefði orðið (lítið yfir hundr- að), því hús var ekki fáanlegt nema um miðjan dag og alt var á öðrum endanum út af 50 ára afmælishátíð Möðruvallaskóla, sem áti að byrja daginn eftir. Viðstaðan á Akureyri var eins og víðar of stutt, svo ég hafði ekki tíma tii að fara fram í Eyjafjörð 'né sjá berklahælið í Kristnesi. Við lögðum af stað seint um kvöldið, komum aftur Munið að kiósa C-listann, lista sjálfstæðismanna.

x

Víðir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðir
https://timarit.is/publication/600

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.