Víðir - 01.08.1931, Page 2
5
VíBit
I IHZir
: - Kenrur út einu sinni í viku -
TJtgefandi:
! Eyj apr entsraiöjan h, f.
Afgreiðslumaður!
Sig. S. Scheving
Sími 129. Pósthólf 16.
Verö:
; Innanbæjar kr. 0.50 á mánuði,
; úti um land kr. 6.50 árgangurinm
Auglýsingaverð: kri 1150 cm.'
kynna menningu vora og bók-
mentir út á við. Tel ég sjálfsagt
að hver Íslendingur, sem les ensku
bregði nú við og kaupi bókina
og lesi. þeir sem vilja eignast
hana geta fengið að sjá eitt ein-
tak af henni í bókaverslun Ein-
ars Sigurðssonar. Liggur þar og
frammi áskriftalisti tii 1. september.
Ættu menn nú að grípa tæki-
færið, með því að hún er ófáan-
leg hér í Vestmannaeyjum. Mun
bókin verða fengin með stuttum
fyrii vara.
Vænti ég þess að menn sýni
þessum ágæta íslandsvini, prófes-
sor Kirkconnell þann sóma, að
kaupa bók hans og lesa. Ég er
þess fullviss, að menn sjá ekki
eftir slíkum bókakaupum.
í júlímánuði 1931
Árni Guðmundsson Háeyri.
Forníeifafundur.
Fyrir austan „Skansinn", svo
sem 10 — 12 faðma: þar sem
sagt er að bærinn „Höfn“ hafi
staðið, en eyðilagst um það leyti
er Skansinn var byggður, árið
1900, (sambr. jarðabók Árna
Magnússonar og P. Vídalíns)
sjáifsagt áf uppblæstri bakkans,
sem nú um 50 — 60 ár hefur
gengist upp um ca. 8 —9 faðma,
fanst 28. þ. m. í lausri mold, sem
úr bakkanum hefur hrunið ný-
lega, allmerkilegur steinbolli, með
úthöggnum eyrum og útflúri á
hlið. Er boliinn og vel höggvinn,
svo aÖ hann er jafn víður í
botni og barmi og tekur ca. 1
líter. Mætti ætla að hér sé fund-
inn blótbolli, sem tilheyrt hafi
blótum á Hörgeyri, þar sem þeir
ientu Gissur hvíti og Hjalti
Skeggjason með Kirkjuvið Ólafs
konungs Tryggvasonar og byggðu
kirkju árið 1000, sem kunnugt
er. 'G'ögt sést rauður iitur í
botni bollans, sem gæti verið
eftir storkið blóð.
Sá er fann bollann, heitir Agúst
Sveinbjörnsson Skálanesi.
Bollinn er til sýnis í búðar-
glugga Kf. Drífanda.
G.
JStasié r27íÓi
Óþokkaskapur.
Nokkrir ungir iðnnemar hér
í bæ, hafa í sumar legið, sér tii
hressingar og skemtunar, i tjöld-
um vestur i hrauni. þeir hafa
unnið inn í bæ á daginn en farið
svo vestureftir á kvöldin. En svo
virðist sem einhverjir þokkapiitar
hafi séð ofsjónum yfir þessari
útivistarveru þessara ungu manna,
því þeir hafa ekki haft frið með
nokkurn hlut. Tjöldin hafa verið
rifin upp og þar stolið og eiði-
iagt. þar var t. d. stolið Dívan-
ábreiðu, rifii sem geymdur var
innan í sængurfötum og einnig
brotist inn i iokaðan skáp, sem
piltarnir geymdu í matvæli og
annað því um líkt.
þessir ungu menn hafa í fri-
stundum sínum verið þarna að
girða landsvæði sem þeir hafa
fengið og hugsa sér að planta
þarna skógi.
Er þetta falleg hugsjón, að um
leiö og þeir reyna að haida í
heiisu sína og krafta, eru þeir að
prýða Eyjuna.
Er þvi ömurlegt til þess að vita
að þeir skuli ekki geta haft frið
fyrir óþokkum og ódrengjum. þar
sem ungu mennirnir sota í tjöld-
um á nóttunni eru þessi ódáða-
verk framin á daginn. — Ætti hver
einasti maður að gera það að
skyldu sinni að reyna að hafa
hendur í hári þessara óþokka,
því vera má að þeir leiki þetta
víðar þvi margir liggja í tjöldum
á næturnar, yfir sumartímann sér
tii heilsubótar, sem vinnu stunda
iun í bæ á daginn.
I tjöldunum hafa menn sæng-
urfatnað og annað sem ekki er
hægt að flytja með sér i hvert
sinn, en geta átt á hættu að koma
að tómum kofanum að kvöldi ef
þessum óþokkum helst uppi að
leika þessar ránsferðir sínar ó-
áreittum.
Lögreglan ætti að láta þetta
mál til sín taka, því ekki er vist
nema þessir ræningjar ráðist á
sumarbústaðina líka.
V.
Smásálarskapur.
^egar iþróttafélögin hér, fengu
2. fl. K. R. tii þess að keppa
við sig hér, urðu félögin að
sjáifsögðu, að leggja í nokkurn
kostnað.
Til þess að fá eitthvað upp í
þann kostnað, fengu félögin leyfi
bæjarfógeta tii þess að eelja að-
gang að kappleikjunum. Fjöldi
fólks kom og horfði á kappleik-
ana.en saman borið við þann fjölda
kom mjög lítið inn fyrir seldar
slaufur. Sá smásálarskapur ríkir
hér hjá ýmsu fólki að engin á-
stæða sé að kaupa aðgang að úti-
skemtunum. Aldrei myndi þó
þessu fólki detta í hug að fara
á bíó og segja við dyravörðinn
„ég hefi enga aura á mér.“
Nú á að fara að halda hér í-
þróttamót og þjóðhátíð. Knatt-
spyrnuflokkur kemur til þess að
keppa við Vestmannaeyinga.
Félögin héreru þess ekki megn-
ug, að taka allan þann kostnað,
sem af þessu ieiðir nema eitthvað
komi í aðra hönd.
Iþróttamenn, búið svo um hnút-
ana að þeir sem koma til þess
að horfa á kappleiki ykkar og
aðrar skemtanir borgi lítilsháttar
inngangseyrir.
það er engin ástæða að sleppa
fólki, sem getur e'tt tugum þús-
unda í alskonar prjál fyrir þjóð-
hátíðir o. þ. h. við að borga
nokkra aura fyrir ágætar skemt-
anir.
Hafið slaufurnar áberandi svo
að ég og aðrir, sem kaupa þær
geti séð þá, sem ekki bera þær,
en gerast boðflennur á þessum
skemtunum ykkar.
Áhorfandi.
IþróUir.
Hér í biaðinu í dag eru aug-
lýstar íþróttir þær sem háðar
verða á Meistaramótinu og þjóð-
hátíðinni. Menn eru um þessar
mundir mjög önnum kafnir, svo
margir hverjir sem annars myndi
taka þátt í iþróttum eiga mjög
erfitt með það.
Vér Vestmannaeyjingar eigum
því láni að fagna, að við eigum
marga ágæta íþróttamenn. þess
vegna ber okkur að hiúa að þess-
um ungu íþróttamönnum og styðja
þá í starfinu. Við eigum er þeir
halda íþróttasýningar, eða skemt-
anir, að sækja þær vel og kaupa
merki þegar þau eru seld.
íþróttamennirnir hér ætla nú
að verja kröftum sínum í það [
framtíðinni að hér komi upp
heit sundiaug. Aliir vita hve
nauðsynleð hún er, ekki síst hér
þar sem svo margir hér erusjó-
menn. þetta spor sem -þeir nú
stíga er því stórt spor, og nyt-
samlegt.
Allir góðir menn hljóta því að
styðja íþróttamennina eftir megni
og vera þeitn hjálpsamir.
Eitt af þeim mörgu störfum
sem fylgja þjóðhátíðinni er það,
að raða niður tjöldunum. þetta,
að skipuleggja tjöldin er stór
vottur um smekhvísi íþróttamanna
og einnig vottur um það, að þeir
vilja skemta fólkinu sem mest.
Verið því allir hjálplegir, þegar
kemur að því að raða niður
tjöidunum, hjálpina látið þér í
té með því að fara nákvæmlega
eftir fyrirmælum skipulagsnefnd-
arinnar. T.
F r é 11 i r.
Messað
á sunnud. kl. 2 e. h.
Betel
samkoma á sunnud. ki. 5e.h.
HATTaR
HÚFUR
SKYRTUR
BINDI
SOKKAR
og aðrar fatnaðarvörur í
úrvali hjá
V——,/
Símfregnir.
þingfréttir.
F. B. R.vík 31. júlí 1931
Húmæðisfrumvörp stjórnarinn-
ar fyrir Reykjavík, stækkun Iög-
sagnarumdæmis Reykjavikur og
verðtollurinn voru áðaldeilumálin
í gær í þinginu, þau urðu eigi
útrædd, þingmenn Reykjavíkur
andmæltu húsnæðisfrumvarpinu,
töldu það mundi gera illt verra.
í Efri deild voru umræður um
verðtollinn og framlengingu hans
til ársloka 1933. Nefndin klofn-
aði. Jón þorláksson, vildi eigi
framlengingu nema til ársloka
1932, og í öðru lagi skildu nokkr-
ar nauðsynjavörur vera undau-
skyldar verðtolli.
Úlendar.
F. B. R.vík 31. júlí 1931
Flugmennirnir Boardman og
Pólando flugu 4984 mílur frá
Ameriku til Konstantinopel án
viðkomu, á 49 stunduum og 5
mínútum.
Lögþing Færeyinga var sott í
fyrra dag. Danski fáninn var
dreginn við hún á þinghúsinu en
Færeyingafáni blakti á stöng fyrir
framan þiughúsið. Sambandsmenn
mótmæitu en Flaggfélagið gekk t
fánaskrúðgöngu til Tingenes í
sambandi við Ólafsvöku.
Mitens var kosinn forseti með
11 atkvæðum. Poulsen sam-
bandsmaöur fékk 8 atkvæði.
F. B. 31. júli 1931
Knattspyrnufélagið Valur
vann í kappleik við úrvalslið frá
Kolding Esbjerg og Fredericia
með 6 gegn 2. Hefir unnið alis-
staðar í Danmörku nema fyrsta
leikinn í Kaupmannahöfn.
Gestlr
eru margir hér í bænum um
þessar mundir munu sumir af
þeim ætla að dvelja hér fram yfir
þjóðhátíð, Sagt er að mjög margt
fólk muni sækja þjóðhátíðina að
þessu sinni frá Reykjavík.
Naesta
blað Víðis kemur út á mið-
vikudag. Auglýsingar í blaðið
komi á Prentsmiðjuna eigi síðar
en fyrir hádegi þriðjudags
Skipaferðir
Botnia er væntanleg hingað i
kvöld frá útlöndum, og Island á
morgun. Esja fer frá Rvík í kvöld
austur urrt land.
Fisktökuskip
kom hér í gær og tók 2500
pakka af Labradorflski. Fór aftur
í gærkvöld.