Víðir


Víðir - 04.11.1950, Side 4

Víðir - 04.11.1950, Side 4
V í Ð I R flytur efni, sem ekki er annars staðar. _______________________________ Z’zðli* ----------------------------- Þeir, sem vilja fylgjast vel með, lesa V í Ð I. _____________________________ Gæftir voru heldur stirðar framan af vikunni, en eftir miðja vik- una skínandi fagurt veður, stilla, sólskin og hiti. AflabrögS. Frá Reykjavík róa nú einir 15 batar með botnvörpu, 4 með dragnót og einn með línu. Framan af vikunni var ekki almennt róið. Afli var yfirleitt mjög tregur, um og innan við 1000 kg. Rétt ein- staka bátur fékk sæmilegt. Hafþór, senr er með dragnót, fékk t. d. einn daginn 300 kg. af flatfiski og 1000 kg. af ýsu og þorski yfir nóttina. Eggert Olafsson, sem er með botnvörpu, fékk 1300 kg. af flatfiski og 3000 kg. af þorski og ýsu. Var hann úti 3 nætur. Þeir fengu mest 3 körfúr í hali, oftast 1. Þeir voru í Norðurbuktinni um 2Á>- tíma út. Svanurinn fékk í útdrætt- inum með línuna 2000 kg. af þorski og ýsu, um helming af hvoru og nokkuð af löngu og skötu og um 1000 kg. af háf. A Akranesi hefur verið mik- ið að gera síðari hluta vik- unnar. Togarinn Bjarni Ólafs- son kom inn á fimmtudaginn með 250 lestir af karfa. Karf- inn var fluttur í frystihús, þar sem hann var flakaður. Unnu um 220—230 manns að þessu. I Vestmannaeyjum stunda tveir bátar botnvörpuveiðar og um 5 bátar dragnótaveið- ár. Áfli hefur verið mjog treg- ur, þó fengu tveir bátar einn daginn í vikunni 2% lest af þorski hvor. I Keflavík stunda nú 10—11 bátar dragnótaveið'ar, og hefur afli verið góður und- anfarið, á annað tonn af flat- fiski yfir nóttina, en sáralítið af öðrum fiski. Þó kemur það fvrir, að einn og einn bátur hittir í fisk. Frá Grindavík er nú eng- in þorskveiði á vélbátum. Menn skjótast þar stöku sinnum út á smábátum, einn og tveir á, og fá þá sæmilegan afla. Salta þeir sjálfir þennan afla sinn. Sjómenn í Grinda- vík telja sennilegt, að fiskur sé kominn, sé mikið af fugli þar fyrir framan. Fyrir vestan er enginn fisk- ur á grunnmiðum. Nokkrir bátar hafa róið með' línu úr Bolungavík, og hafa þeir sótt afla sinn í Húnaflóa. Hafa þeir fengið að jafnaði 3 lestir í róðri. Norðanlands er nú góður afli, ágætur á Raufarhöfn og Þórshöfn, sæmilegur á Húsa- vík og í Skagafirðinum, en helaur tregari á Siglufirði. Fyrir Austurlandi hefur verið dágóður afli, og nokkrir stórir bátar stunda þar veið- ar og sigla með aflann. Reknetaveiöin. Margir voru orðnir svart- sýnir með áframháldandi síldveiði,,þegar hún hvarf al- veg á dögunum. Hættu þá margir aðkomubátar veiðum og fóru heim til sín. Enn þeir, sem höfðu veitt því athygli, hvernig síldin hagar sér, voru ekki kvíðnir um, að hún væri farin fyrir fnllt og allt, og sögðu, að hún myndi gefa sig aftur til í nóvember. Síldin er sjálfsagt einhvers- staðar á þessurn slóðum hér við Suðurlandið allt árið'. Menn verða t. ð. oft varir við síld við Vestmannaeyjar á vertíðinni, og hún byrjar að veiðast hér, þegar reynt er snemma á vorin. I vor voru einir 4 bátar með reknet og öfluðu oft sæmilega. Síldin gerði aftur vart við sig sunnarlega í Mið'nessjón- um, 7—8 mílur norðvestur af Eldey. Fengu bátar þar eftir miðja vikuna frá fimmtíu og upp í hundrað tunnur og það- an af meira. Við Vestmannaeyjar urðu bátar lítið varir við síld, fengu þetta 5 tunnur, þegar þeir reyndu síðari hluta vik- unnar. Margir bátar eru nú hættir þar veiðum í bili og bíða átekta, Eru því fáir bát- ár, sem stunda nú þar þessar \-eiðar. Bátar fengu líka sem enga síld í Grindavíkursjónum á fimmtudaginn, sjómenn þar héldu jafnvel, að síldin stæði grynnra en þeir voru. Allir bátar, sem stundað' hafa veið- ar frá Grindavík í haust, 10— 11 að tölu, eru enn við þess- ar veiðar, en aðkomubátar eru nú áð miklu leyti farnir úr Grindavík. Það er líklegt, að rekneta- bátar verði almennt búnir að hitta síldina í vikulokin og veiði verði þá orðin sæmileg aftur, jafnvel góð. Úr verstöðvunum. Fjallfoss hefur verið í Keflavík að' ferma síld, og von er þangað á Kötlu til þess að taka þurrfisk til Portúgal. I Grindavík er verið að gera hafnarbakka meðfram garðinum. T Vestmannaevjum er nú verið að gera fyrirhleð'slu inn í Friðarhöfn fyrir sandinn undir bryggjunni með dálítið nýstárlegum hætti. Eru rekn- X 8 X % x X i 110 hestafla June Munkfel-vél | með öxli, skrúfu og stefnisröri, öllu 4 úr kopar, er til sölu. $ Lágt verð og góðir greiðsluskilmálar. | Afgr. vísar á. Sími 2685. | ir niður gildir staurar ofan í sandinn eins langt og hægt er, og síðan steypt ofan á þá. Á þannig að fyrirbyggja, að sandurinn grafi undan fyrir- hleðslunni, eins og átti sér stað áður, og eins, að ekki komi að sök, þó að garðurinn sígi eitthvað. Verið er nú að ljúka við að steypa efstu hæðina á hina nýju myndar- legu gagnfræðaskólabyggingu. T sumum verstöðvunum eins og Sandgerði hefur verið mikið af aðkomufólki til þess að vinna að síldarsöltuninni, en nú hefur það allt horfið burtu, og hefur nú verið aug- lýst eftir fólki til síldarsölt- unarinnar. Gamla Sandgerði, sem svo er kölluð og er gamalt timb- urhús, sem stendur fyrir ofan aðalverstöðina skammt frá tjörninni og búið var að standa í eyði nokkur ár, hef- ur nú verið tekið í notkun aftur út úr neyð, þar sem verzlunarhúsin og sjóbúðin brunnu hjá h.f. Garði í fyrra. Garður hefur þar nú bráða- birgðaskrifstofu, og þar er einnig mötuneyti fyrir verka- fólk. Borða þar stundum 30 manns, þegar flest er, og hef- ur verið þar mikið af aðkornu- fólki, sem vinnur hjá Garði og Oskari Halldórssyni. Ein matselja annast um beina handa fólkinu, sem ann- ars sefur í bröggum. Eldar hún við rafmagn, og húsið er einnig hitað upp með raf- magni. Fleiri vélbátar sigla með ísfisk. Nokkrir fleiri vélbátar hafa bætzt við þá, sem áður hefur verið skýrt frá, að stunduðu nú veiðar og sigldu með eigin afla til Bretlands. Marz er nú að veiðurn fyr- ir vestan og gert. ráð fyrir, að' hann fari út núna fyrir helg- ina. Vilborg er að búast á veiðar og Rifsnesið. Ætlar ]rað að fiska með línu og kaupa eitthvað til viðbótar af öðrum. Ágúst Þórarinsson hefur verið að kaupa fisk í Ólafsvík. Útgerðin er dýr. Menn kvarta nú mjög und- an, hve dýivt sé orðið að gera út, og er búizt við, að margir bátar verði að hætta af þeim sökum og vegna þess hve afl- inn er rýr. Olían kostar nú orðið 680 krónur lestin og um 700 krón- ur tunnan af smurolíunni. Eyðslufrekustu bátarnir fara með um eina lest af olíu í sól- arhrings róður og sjálfsagt 150—200 krónur í smurolíu. Þegar aflinn í slíkum stuttum róðri er svo ef til vill ekki nema ein lest eins og var al- gengast þessa viku, sjá allir ábatann af slíku úthaldi. Að vísu eyða minni bát- arnir ekki svona miklu. Eggert Ólafsson fór t. d. með 2050 kg. af olíu í þá veiðiferð',. sem getið er um hér framar og um % tunnu af smurolíu. Aflinn hjá honum þennan dag var sá bezti, og getur nú hver og einn reikn- að út, hvað róðurinn gerði og hver hluturinn var, sem áhuga hefur á þessu. En skiljanlega er ýmis annar kostnaður en olían. Flatfisknrinn er keypt- ur á kr. 1.80 kg. og hinn fisk- urinn á 75 aura. I róðurinn íóru 3 sólarhringar. Háfurinn. Það kemur þó nokkuð oft fyrir, að bátar fá háf á línu, eins og Svanur núna, og stundum í botnvörpu, þó að það sé sjaldgæfara, Drífa fékk þó t. d. í sumar mjög mikið af háf í einum róð'ri. Sést bezt, hve mikið magn það hefur verið, því að þeir fengu 1100 krónur fyrir háf- inn í fiskimjölsverksmiðju, og er þó ekki um hátt fislcverð að ræða, þegar selt er í verk- smiðju. Annars er háfur sumsstað- ar erlendis talinn herra- mannsmatur, eins og í Bret- landi. Þar eru t. d. sérstök skip, sem ganga frá Grimsby og fiska ekkert nema háf. T byrjun stríðsins var háf- ur frystur í Vestmannaeyjum og sendur til Bretlands, og fékkst fyrir hann alveg sæmi- legt verð. Þegar roðinu Iiefur verið' flett af háfnum, er þar undir fiskurinn drifhvítur eins og hákarl. íslendingar þurfa að hirða allt, sem hægt er að gera að markaðsvöru, og eitt af því er háfurinn. Spe/lvirli á járn- braut konung-s. Þegar Georg Bretakonung- ^ ur var fyrir skömmu á leið frá Skotlandi til London, varð járnbrautarlest sú, sem kon- ungur ferðaðst með, að nerna staðar, því búið var að rífa upp járnbrautarteinana á ein- um stað, þar sem lestin fór um. Var lestin sett yfir á ann- að spor, og seinkaði þetta ferðinni um stundarfjórðung. * Frœg fœÖingarstofnun Anna, prinsessa af Borbon- Parma, kona Mikaels fyrrver- ' and Rúmeníukonungs, er ný- 4 komin til Genf í Sviss. í byrj- un þessa mánaðar á hún von á öðru barni sínu, og mun hún eiga það á sömu fæðing- ardeildinni þar og Rita ITay- worth, kona Ali Kahn, eign- aðist dóttur sína í f.yrra. Eftir þennan hamingju- sama átburð fer fjölskyldan aftur til bústaðar síns í Flór- ens. * Stjói "nmálamarhir eÖa málari. I tilefni af heimsókn Churc- hill til Danmerkur var minnst á Söru, hina listhneigðu dótt- ur þessa mikla stjórnmála- manns, sem nú er í þann veg- inn að Ijuka við að leika i ; kvikmynd með Fred Astaire. Hún átti fyrir skömmu í aug- ^ lýsingaskyni að' svara mörg- i um spurningum, er snertu ' liana sjálfa. T dálkinum, þar sem spurt var um atvinnu föð- ursins, skrifaði Sara: „Mál- ari“. * Hlýðinn rakki. Rithöfundurinn Anton Berntesen segir eftirfarandi sögu af hundi nokkrum: Mað'ur nokkur, sem át’ti heima í héraðinu milli Hors- ens og Silkeborg í Danmörku, keypti eitt sinn hund af manni, sem bjó þar í margra mílna fjarlægð. Þegar hund- urinn hafði verið hjá honuin nokkra daga, hvarf hann. I öngum sínum yfir hundsmiss- inum, hringdi hinn nýi eig- andi til fyrri eigandans og' spurði, lwort, hundurinn væri kominn þangað. „Jú, hann er hér, og' þú get- ur fengið að tala við hann“- Hundurinn var færður að símanum, og nýi eigandinn sagði hárri, skipandi röddu: „Plet, þú átt að koma heim‘ • „Voff“, sagði hvutti ogfc hljóp af stað', og um kvöldið var hann kominn heim. Gameslt 09 nýtt 13. hefti fylair næsta blaði.

x

Víðir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðir
https://timarit.is/publication/600

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.