Víðir - 15.11.1952, Qupperneq 1
XXIV.
20. tölublað.
Reykjavík, laugardaginn 15. nóvember 1952.
Samruni þjóða.
FISKAFLINN:
l.okt. 1952: l.okt.1951:
Slægður fiskur með liaus 274.750* lestir 329.078* leslir
*l>ar af síld 27.585 — 82.007 —
FREÐFISKURINN:
Framleiðsla:
l.nóv,195S:
Sölumiðstöð hraðfr.vstihúsanna 1100 þús. ks.
Samband íslenzkra samvinnufélaga 278 — ■—.
Fiskiðjuver ríkisins 54 — —
Samtals 1432 þús. ks. 1182 þús. ks.
Afskipanir:
Sölumiðstöð hraðfrýstihúsanna 048 þús. ks. 00%
Samband íslenzkra samvinnufélaga 184 — — 06%
Fiskiðjuver ríkisins 34 — •— 63%
Samtals 866 þús. ks.
Þyngd kassanna er 50—00 lbs.
SALTFISKURINN:
Framleiðsla:
1. nóv. 1952: l.nóv.1951:
Fullstaðinn saltfiskur (bátafiskur) 21.644 lestir 18.441 iestir
Fullstaðinn saltfiskur (togarafiskur) 29.906 — 11.885 —-
Samtals 51.550 lestir 30.326 lestir
Nýja norska hafrann-
1. nóv. 1951:
935 þús. ks.
202 — —
45 — —
Framrás vísindanna.
„Hið aukna mikilvægi vís-
indanna og tækninnar má
greinilega sjá á hirtum vax-
andi fjölda eðlisfræðinga,
ei'nafræðinga og verkfræð'-
inga. I Bandaríkjunum var
árið 1900 einn verkfærðingur
á móti hverjum 250 verka-
mönnum. Nú í dag er einn
verkfræðingur á móti hverj-
um 60 verkamönnum“, segir
Summer H. Slichter í „At-
lantic“.
„Ekkert annað land, þó ef
til vill að undanteknu Rúss-
ktndi, nálgast það að nota vís-
indin og tæknina svo mjög í
þágu iðnaðarins sem Banda-
ríkin. í híutfálli við fólks-
fjölda brautskrást þrisvar
sinnum fleiri verkfræðingar á
ári í Bandaríkjunum en í
Stóra-Bretlandi.
Iðnaðurinn í Bandaríkjun-
um ver sjö sinnum meiru en
iðnaðurinn í Englandi til
rannsóknarstarfsemi á sviði
vísinda og verkfræðitækni“.
Óbreyff fiskverð í Noregi!
Norska ríkisstjórnin hefur
tekið upp umræðúr við félög
útgerðarmanna og sjómanna,
í sambandi við að hún vinn-
ur að því að koma á verð-
stöðvun á fislci. Þeir fyrstu,
sem til ráðstefnu komu, voru
fulltrúar fiskimanna.
Umræðurnar einkenndust
af ákveðnufn vilja til að halda
verðlagi og tekjum óbreyttu.
Fiskimönnunum er mikið' í
mun, að lát verði á kapp-
hlaupinu milii verðlags og
tekna. Að áliti Steffensens
stórþingsmanns er hægt að
halda núverandi fiskverði ó-
breyttu.
Séídveiðamar við
Færeyjar.
Ilin ágætu veðurskilyrði í
síðasta mánuð'i virðast nú bú-
in að vera, svo að það er ekki
að vita, hversu lengi enn flot-
inn getur verið á miðunum.
Eftir því sem bezt er vitað
voru nú nýlega 12 norsk skip
þar að veiðum. Síðast í októ-
ber komu inn 6 reknetabátar,
og var afli þeirra alls 5070
tunnur. Alls hafa Norðmenn
nú flutt heim 195.416 tunnur
síldar frá miðunum við' ísland
og Færeyjar.
Það er ekki nýtt í heimin-
um, að stórar og voldugar
þjóðir undiroki þær, sem
minna mega sín, og innlimi
lönd þeirra. Slík vekli hafa þó
mörg hver liðið undir lok eins
og Rómverjanna.
Þegar einni þjóð hefur tek-
izt að undiroka aðra, hefur
fyrsta skrefið venjulega verið
að troða upp á hana tungu
og' menningu yfirdrot'tnarans.
En þjóðernisvitundin og sjálf-
stæðisþráin hefur verið svo
sterk, að fyrsta tækifæri hef-
ur verið notað til þess að
brjótast undan yfirdrottnun-
inni. Og því er svo farið t. d.
um Evrópuþjóðirnar, að þó
að þær hafi borizt á bana-
spjótum öldum saman og
gengið á ýmsu, hafa landa-
mærin furðulega skipt ríkj-
um eftir þjóðerni, þó að stund-
um hafi áður liðið áratugir
eða enn lengri tími.
En tæknin vex á þessum
sviðum, sem öðrum, Jiótt í
höfuðatriðum séu aðferðirnar
enn þær sömu. En nú eiga
auk þess sér stað stórfelldir
þjóðflutningar, eins og í balt-
nesku löndunum.
Framlcoma stórþjóðanna
við nýlenduþjóðirnar, og þarf
ekki nýlenduþjóðir til, sýnir,
að þær hafa engu gleymt og
ekkert lært, þegar um það er
að ræð'a að halda við undirok-
un þeirra til þess að geta bet-
ur setið einir að viðskiptum
við þær, og aukið þannig veldi
sitt. Og nú hefur óttinn við
yfirgang Rússa þjappað hin-
um vestrænu þjóðum saman,
svo að þær liafa tekið upp all-
víðtækt efnahagssamstarf og
gefið leiðtogum stórþjóðanna
byr í seglin til að koma á enn
víðtækara efnahags-, hernað-
ar- og stjórnarfarslegu sam-
starfi þessara þjóða, í leyni
og opinskátt hjá sumum mun
sú hugsun vaka fvrir leiðtog-
um þessara þjóða að sameina
Evrópu í eina ríkjaheild, þó
að þeim sé ekki enn Ijóst,
hver myndi hafa þar yfirtök-
in. Þrjú ríkismál yrðu sjálf-
sagt viðurkennd til að byrja
með, enska, þýzka og franska,
og smáþjóðunum sýnd nokk-
ur linkennd í því að fá að'
halda tungu sinni og sérmenn-
ingu, en lokamarkið væri ein
tunga og ein þjóð.
Það má vera, að þetta eigi
langt í land og komist kann-
ske aldrei í framkvæmd. En
hafa skyldi það hugfast, að
átökin milli austurs og vest-
urs orka mjög í sameiningar
átt, og þegar því er fylgt eft-
ir á allan hátt af stjórnmála-
leiðtogum hinna stóru, getur
það valdið ótrúlegustu hugar-
farsbreytingum hjá almenn-
ingi áður en varir.
Lítil þjóð hefur ekkert að
vinna við að renna saman við
aðra stærri, en öllu að tapa.
Smáþjóðirnar standa vfirleitt
á hærra menningarstigi en
þær stærri. Vehnegun og
menntun er þar almennari og
i'élagslegar — sósíalar —
framfarir eru meiri. Eru
Norðúrlandaþjóðirnar glöggt
dæmi þess. Þjóðerni og ætt-
jörð, tunga og þjóðmenning
er flestum mönnum það helg-
asta, er þeir eiga og leggja
þeir ekki ósjaldan lífið í söl-
urnar til að verja það.
Islendingar hafa áður lotið
yfirráðum framandi þjóð'a, og
þeim getur aldrei liðið við það
betur, heldur miklu verr. Pen-
ingar, greiður aðgangur að
markaði, kannske engir toll-
ar. Það er ekki fyrir öllu.
Sjálfstæði, eins og við skiljum
það i þess orðs beztu naerk-
ingu, er ofar öllu öðru.
í New Bedford.
I New Bedford, sem er einn
af meiri háttar fiskibæjunum
á austurströnd Bandarikj-
anna, er það venja, að sjó-
mennirnir hafi með sér lang-
dræga byssu, er þeir fara. á
veiðar. Einn maður er alltaf
tilbúinn með byssuna, þegar
aflinn er dreginn um borð, —
til þess að skjóta hákarlinn,
ef hann skyldi verða allt of
ákafur að ná í hluta af her-
fanginu. Það kemur ekki svo
sjaldan fyrir.
I New Bedford er það þann-
ig, að uhdir eins og fiskurinn
er kominn á land, er hann
flakað'ur, settur í öskjur, og
þeim raðað á næsta vörubíl,
— sem hefur frystitæki, — og
síðan er hann umsvifalaust
fluttur á markaðinn í New
York. í New Bedford fara
fiskkaupin fram með upp-
boðsfyrirkomulagi, líkt og er
í Danmörku. Þannig vilja þeir
hafa það, það felur í sér
kapp og samkeppni.
sóknaskipið ef til viil
fullbúió eftir eiff ár.
Lokið er við að gera upp-
drættina að hinu nýja haf-
rannsóknaskipi.
Eins og kunnugt er hafa
verið veittar sem svarar 7
milj. ísl. kr. til smíði þessa
skips. En verðið hefur farið
mjög hækkandi frá þeim
tíma, er Stórþingið ákvað
þessa fjárveitingu.
Hér er um að ræða skip,
sem á að geta fengizt við t. d.
síldarrannsóknirnar í Norska-
hafinu á hvaða tíma ársins
sem er.
Ef heppnin er með, er gert
ráð fyrir, að hægt verði að
ljúka smíði skipsins að ári
lið'nu.
Reykf ýsa.
Findou-ýsa (Finnaa haddie)
er veidd og tilreidd í þorpinu
Findon, sex mílur suður frá
Aberdeen í Skotlandi. Ýsan
er þannig verkuð, að 'hún er
viðarreykt. Þykir hún Ijúf-
feng mjög, og hefur þessi
verkunaraðferð breiðzt mjög
út. Enginn veit um uppruna
verkunar þessarar, en hún er
vafaláust gömul. Vestan hafs
þykir ýsa verkuð' með þessum
hætti mesta lostæti.
Merkar rannsóknir.
Danska rannsóknarskipið
Galathea fór í okt. 1950 til
Filippseyja í þeim tilgangi að
rannsaka mestu hafdjúp ver-
aldar.
Vísindamennirnir kornust
að raun um, að til er gróður
sex mílur niðri í hafinu. Á
steini, sem sóttur var þangað
niður, uxu tvær hvítar sjái'ar-
anemónur. Fiskár lifa ekki á
dýpra vatni en 4 mílur, en líf
er á miklu meira dýpi. Við
rannsólcnir Galatheu fundust
á mjög miklu dýpi ýmsar ver-
ur, sem ekki hafa áður þekkzt.
Telja vísindamenn þeir, sem
með Galatheu voru, líkindi
vera til, að sæormar séu til á
miklu dýpi, og sé þar um eins-
konar ála að' ræða. Margar
furðuskepnur munu enn lifa í
hafdjupunum, er ekkert
mannlegt auga hefur ennþá
litið.
Tilkynning frá
„G. 0. Sars".
„G. O. Sars“, sem hóf
síldarleiðangur vetrarins í
Norskahafinu, tilkynnti fvrir
sköminu, að síldin héldi sig
yfirleitt mjög djúpt á daginn,
en torfurnar héldu upp að yf-
irborðinu á kvöldin.
ÍSFISKSÖLUR:
Söludagur: Sldpsnafn: Sölust.: Lestir: Mellalv.kg.:
8. nóv. Röðull, Hafnarfirði Cuxliaven 200 £ 7595 kr. 1.75
10. — Egill Skallagrímss., Rvk Cuxhaven 230 £ 8494 — 1.70