Víðir


Víðir - 15.11.1952, Side 4

Víðir - 15.11.1952, Side 4
Þeír, sem vilja fylgjast vel með, lesa V í Ð I. ----------------------------- V í Ð I R flytur efni, sem ekki er annars staðar. Vandamál Vestfjarða Togararnir Tíðin hefur verið ágæt á miðunum fyrir Vesturlandi. En það vill oft, verða svo, þeg- ar lengi hefur verið' gott, að íiskurinn tregast. Þá er stroll- an af skipum, og fiskurinn skefst upp jafnóðum og hann skríður að. Þarna á Halanum eru allra þjóða skip, en eink- um er þar mikið af Þjóðverj- um. Englendingar halda sig meira á grynnra vatni. Það er því eins og breyta þurfi um veður annað kastið, eins og það Jíka ósjaldan gerir, til þess að afli geti verið góður. Skip eru dreifð við veið- arnar eins og áður. Enn eru nokkur skip við' Grænland, og hefur afli verið betri aftur nú upp á síðkastið. Sennilega fara ekki þau skip til Græn- lands aftur, sem nú eru að koma frá Esbjerg. Þá eru allmörg skip að veiða fyrir Þýzkalandsmark- að. Löndunarsamningurinn var framlengdur til 30. nóv., en ekki er vitað, hvað þá tek- ur við. Mega 11 skip landa í Þýzkalandi næsta hálfa mán- uðinn. Afli hefur verið heldur rýr og því farmar ekki mjög stórir, en markaðurinn hefur verið alveg sæmilegur. Þeim skipum, sem veið'a fyrir frystihúsin, fer nú eitt- hvað fjölgandi, um leið og þau hætta veiðum við Græn- Iand. Reykjavík. Sunnan og suðvestan átt hefur verið tíðast þessa viku og stundum hvasst. Bátar þeir, sem róðra stunda, hafa þó oftast verið á sjó. Hafa netabátarnir aflað þetta frá 1 og upp í 3 lestir í róðri, með- alafli um 1 y2 lest. Línubát- arnir hafa verið að fá 2—3 lestir í róðri. Eru það 2 bátar, sem roa með' línu. Nokkrir litlir dekkbátar róa auk þess með Jínu. Hafa þeir fengið 400—1000 kg. í róðri og verið á grunnmiðum. Fer allur þessi fiskur í bæinn, og auk þess kemur nokkuð af fiski úr Keflavík. Tveir nýir bátar eru í þann veginn að byrja með línu í viðbót við þá, sem fyrir eru. Það' lítur ekki illa út með afla í haust, eftir því sem um hef- ur verið að gera. Línu- og netaveiðar hafa ekki verið reyndar í nokkur undanfarin ár á þessum tíma árs. V estmannaeyjar. Tíðin hefur verið slæm, og hefur af þeim sökum bátum fækkað, sem róðra stunda, og eru nú aðeins eftir 3—4 vél- bátar. Trillunum hefur einnig fækkað og eru þær nú orðriar 6, sem róðra stunda. Það' virð- ist vera sæmilegur afli, ef tíð- arfarið hamlaði ekki, þannig skauzt ein trilla (Sveinn Hjör- leifsson) út í vikunni og fékk 800 kg., mest ýsu. Tveir bátar úr Reykjavík hafa lagt á land afla sinn, Faxaborg 14 lestir um s.l. helgi og Heimaklettur í fyrra- dag 10 lestir. Grindavík. Ekki neitt neitt, allir bátar bundnir við bryggju. Skíði, sem er með línu, reri þó einn dag í vikunni og fékk 1 lest af fiski á 20 bjóð. Ægir fór út í vikunni að leita að síld, en lagði ekki, og varð hvergi var, enda hvessti, og kom við svo búið. Sandgerði. Ekkert hefur verið róið með reknet síðan á fimmtu- daginn í fyrri viku, þá fór einn bátur út, Hrönn, og fékk einar 4 tunnur og eyðilagði 30 net. 3 bátar eru enn með netin um borð. Þeir fara þó ekki út í bili, bæði er tíðin slæm og svo þora þeir ekki að leggja í bili fyrir háhyrningnum. Það er verið að taka báta upp í slipp, dytta að þeim og rífa upp vélarnar og hefja ann- an undirbúning undir vertíð- ina. Keflavík. Ekkert er um að vera, nema fáir bátar róa í Garðsjóinn, 3 15—20 lesta vélbátar með línu og 3 trillur. Hefur afli verið alveg sæmilegur þegar gefur, og gæftir hafa verið viðunanlegar, þótt úrtökur hafi verið'. Hjá vélbátunum er aflinn 1—lVo lest á 7—8 stampa. Róa þeir stundum tvisvar á dag. Aflinn er ýsa og nokkuð af smálúðu. | Aðalbjörg úr Reykjavík, sem fiskar fvrir Hafnirnar, | leggur upp afla sinn í ICefla- vík, en hun er á þorskanetum. Mestur hefur aflinn komizt upp í 4 lestir í róðri. Nú 'U alveg hreinar hend- ur með síldveiðarnar, allir bátar hættir. HafnarfjörSur. Togararnir hafa verið að koma inn í vikunni, Röðull frá Þýzkalandi, Bjarni ridd- ari af saltfiskveiðum, var hann fyrst við Grænland, en lauk veiðiferðinni hér við land, og Júní, sem kom með 307 lestir af karfa fyrir frysti- húsin. Akranes. Einn bátur er enn með rek- net um borð, er þó búinn að afskrá, en fer út, ef gott gerir. Einn bátur rær með línu og fiskar fyrir bæinn. Hefur afli verið kringum 2 lestir og rúmlega það, mest ýsa. Akurey landaði á laugar- daginn 202 lestum af karfa. ísafjörSur. Tíð hefur verið ágæt og ró- ið á hverjum degi. Á stærri línubátunum hefur áflinn ver- ið 3—4 lestir í róð'ri. Róið hefur verið 3 tíma norðvestur af Deild eða austur af Dranga- ál. Við Drangaál hefur verið góður fiskur, stór þorslcur og ýsa, en út af Deildinni hefur afli verið dálítið keiluborinn. Fiskurinn er lifrarmikill. Hjá trillubátunum hefur afli heldur glæðzt síðustu daga og verið 000—1000 kg. í róðri. Hafa trillurnar sótt inn í Djúp alla leið inn að Ogurhólmum. Botnvörpungar Togarafé- lagsins veiða báð'ir í salt, Sól- borg er við Grænland, en ís- borg var inni á þriðjudaginn með 260—270 lestir af salt- fiski og fór samdægurs til Es- bjerg. Tók hún fisk til við- bótar til að fá fullfermi. Var hún búin að vera 7 vikur að veiðum. Sögðu þeir lítinn fisk á Halamiðum, en væri þá helzt um karfa að ræða. Sami feiknaaflinn er enn hjá þeim bátum, er stunda rækjuveiðar, og fékk einn bátur 1700 kg. í einu „hali“ einn daginn. Bátur þessi heit- ir Karmoy, og er skipstjóri hans og eigandi Simon Olsen. Vegna sölutregðu og þess, hve mikið berst að af rækjum, hafa 2 bátar af ísafirði orðið að hætta veiðum. Aftur á móti er einn bátur frá Bol- ungavík nýbyrjaður á rækju- veið'um á vegum Einars Guð- íinnssonar útgerðarmanns þar. Afla sinn fá bátarnir mest við Borgarey alla leið inn hjá Reykjanesi og við Vatnsfjörðinn á sömu slóðum Öskar Halldórsson útgerð- armaðuf bendir á það í síð- asta tbl. Víðis, að mikil nauð- syn sé á því, að byggja ver- búðir á Suð'urnesjum til þess að skapá aðstöðu f'yrir fiski- báta frá Vestfjörðum og Norð- urlandi til viðlegu um vertíð- ar. Þetta er að vísu nauðsyn að nokkru marki', en vafa- laust er, að verbúðabyggingar á Suðurnesjum leysa ekki framleiðslu- og atvinnumál Vestfirð'inga. Þar þarf að ger- ast annað og meira. Einkum þarf að hlaupa undir bagga með hraðfrystihúsunum til þéss að auka verulega vinnslu- rúm og geymslurúm þeirra. Á þetta þó einkum við hrað- frystihúsin á ísafirði og í Hnífsdal. Á ísafirði þyrfti í raun og veru að koma nýtízku fiskiðjuver í stað hinna gömlu húsa, sem bæði eru illa stað- sett og að mörgu leyti úrelt. Þar hefur ekki verið fvlgzt meira með tímanum en svo, HvaS um beitusíldina? Um þessar mundir er verið að senda til PóIIands 1000 lestir af síld. Áður voru farn- ar 200 lestir til í'innlands. Og enn eru seldar, en ófarnar 500 lestir til Póllands. Það hefur verið talið, að til væru 60—70.000 tunnur af beitusíld í landinu. Ætti það að vera nóg í meðalvertíð. En það er svo með beitusíld, að' það er aklrei á vísan að róa. Notkunin er svo misjöfn. Fer þar eftir gæftunum, og svo öðru, sem hefur enn meira að segja, og það er, hvort loðn- an kemur og hve lengi hún stendur. Stundum hefur síldveiði brugðizt svo, að flytja hefur orðið inn beitusíld frá Noregi, og er skemmst að minnast þessa fyrir þrem fjórum ár- um. Eitt það' ömurlegasta, sem upp á gæti komið, væri að landið vrði beitulítið, það er ekki aðeins skaðlegt, held- ur er það skammarlegt. Beitu- nefnd hefur auglýst eftir pönt- unum á síld, en það er eins og áður segir mjög erfitt að gera. sér fulla grein fyrir þörf- inni. Getur jafnvel munað allt að' helming. Og ekki er held- ur gott að' hafa of mikið, það þykir léleg beit.a að ári, og svo er iltt að teppa geymslu- rúm í yfirfullum fryistihúsum fyrir síld, sem geyma þarf milli ára. Þetta er því mikið vandamál, en aðalatriðið er, að vera tryggur með næga beitu, eftir því sem hægt er. ★ að atvinnusldlyrði standa naumast í stað. Ef vel væri þyrftu atvinnutækin að geta veitt atvinnu vaxandi fjölda, sem svaraði að minnsta kosti til hinnar eðlilegu mannfjölg- unar. Að vísu er hér miðað við það, að' hugsað sé fyrir þ\4í, að fólkið flytjist ekki burtu til annarra staða, eins og átt hefur sér stað undan- farinn áratug, er fólkinu hef- ur verið beint til Reykjavík- ur og Suðurnesja með því að veita meginhlut rekstrarfjár- magns bankanna til atvinnu- tækja á þeim slóð'um. Ef tilætlunin er ekki sú, að tæma Vestfirði af fólki, er að því komið', að menn geri sér þessi sjónarmið Ijós og spyrni við fæti. Á ísafirði er ekki aðeins svona ástatt um hraðfrysti- húsin, heldur er einnig mjög erfið aðstaða til þess að veita viðtöku fiski til söltunar. Tog- arafélagið hyggst byggja mik- ið hús til þess að geta veitt viðtöku fiski af tveimur tog- urum sínum,.en heyrzt hefur, | að' það fái ekki fé til þess að | hefjast handa. Bæjarfélagið keypti á s.I. vori annað hrað- frýstihúsið og þarf það mik- illa endurbóta við. Leitað hef- ur verið á náðir ríkis og banka til þess að endurbaéta húsið og auka við geymslur. En eng- in bænheyrsla virðist hafa verið veitt, því ennþá hefur húsinu ekkert verið' gert. Vestra várðist mönnum enginn vafi leika á því, að heppilegra væri að veita báð- um þessum aðilum nauðsyn- leg lán til þess að bæta að- stöðuna, heldur en að byggja verbúðir á Suðurnesjum, svo að Vestfjarðabátar gætu flutt útveg sinn þangað. Það þarf enga djúphygli til þess að sjá fyrir afleiðingar þess, ef út- vegurinn væri fluttur þaöan að heiman, og er ástæðulaust að ræða það atriði frekar. Það er ekki ástæða til að saka neinn um það ástand, sem er í þessum málum á Vestfjörð'um. En mönnum er það Ijóst fyrir löngu, að Vest- firðingar, og þá einum ísfirð- ingar, hafa í allt of ríkum mæli byggt afkomu sína á síldinni. Standa loks vonir til, að breytt verði til, en til þess að það sé hægt, ber ríka nauð- syn til, að ríkisstjórn og bank- ar hlaupi undir bagga, fvrr en síðar. Fólksfækkun er orð- in svo ískyggileg vestra, að öllum hugsandi mönnum, er áhyggjuefni. Fyrsti hrepp- urinn fór í eyði á þessu hausti. Hvenær kemur röðin að hin- um hreppunum og kaupstöð- unum, ef þessu heldur áfram? HUNDESTED — aflmikil og býð — vinsælasta vél fiskiskipgflotans. StærSir 10—360 hestöfl. Undirritaður óskar eftir að gerast áslcrifandi að Víði. Nafn ........................................ Heimili ............................... Póststöð ............................ Til vikublaðsins Víðir, Reykjavík. (Sími 6661). Einfaldasta ráði(V til að stinga upp í mann, sem sífellt cr að barma sér, er að vera honum sammála. \

x

Víðir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðir
https://timarit.is/publication/600

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.