Alþýðumaðurinn - 04.07.1968, Qupperneq 7
Frétfir frá tíunda söngmóti Heklu
sambands norðlenzkra karlakóra
Hart ár en þó trú á landið
TÍUNDA söngmót Söngfélags-
ins Heklu — sambands norð-
lenzkra karlakóra, var haldið
dagana 22. og 23. júní sl.
í söngmótinu tóku þátt 9 af
11 karlakórum, sem í samband-
inu eru: Karlakór Bólstaðar-
hlíðarhrepps, söngstjórar Jón
Tryggvason og Gestur Guð-
mundsson, Karlakórinn Feykir,
söngstjóri Árni Ingimundarson,
Karlakór Akureyrar, söngstjóri
Guðmundur Jóhannsson, Karla
kór Dalvíkur, söngstjóri Gestur
Hjörleifsson, Karlakórinn Geys
ir, söngstjóri Jan Kisa, Karla-
kórinn Heimir, söngstjóri Jón
Björnsson, Karlakór Mývatns-
sveitar, söngstjóri Örn Friðriks
son, Karlakór Reykdæla, söng-
stjóri Þóroddur Jónasson og
Karlakórinn Þrymur, söng-
stjóri Sigurður Sigurjónsson.
Söngmenn í þátttökukórun-
um eru samtals um 330. Mótinu
stjórnaði Áskell Jónsson söng-
kennari, Akureyri, sem er for-
maður Söngfélagsins Heklu.
Söngmótið hófst með samsöng
í Félagsheimilinu á Húsavík kl.
14, laugardaginn 22. júní. Að
samsöngnum loknum var öllum
söngmönnum innan Vaðlaheið-
ar boðið til kvöldverðar á heim
ilum söngbræðra sinna á Húsa-
vík, í Reykjadal og Mývatns-
sveit. Kl. 21 um kvöldið var svo
samsöngur að Skjólbrekku í
Mývatnssveit. Að honum lokn-
um héldu allir söngmenn til síns
heima.
Á sunnudaginn 23. júní hófst
mótið að nýju kl. 16, með kaffi-
samsæti fyrir söngmenn og kon
ur þeirra í félagsheimilinu Mið-
garði í Skagafirði, í boði skag-
firzku kóranna Heimis og Feyk
is. Sátu hófið hátt á fjórða
hundrað manns. Kl. 21 um
kvöldið var síðan samsöngur að
Miðgarði.
Á hverjum hinna þi'iggja sam
söngva söng hver af þátttöku-
kórunum nokkur lög undir
stjórn söngstjóra sinna, og tvö
lög allir sameiginlega, eða sam-
tals yfir 300 manns, undir stjórn
Jónasar Helgasonai', Jóns
Björnssonar og Páls H. Jóns-
sonar. Auk þess söng sameinað-
ur kór Karlakórs Mývatnssveit
ar, Reykdæla og Þryms þrjú lög
undir stjórn Þórodds Jónasson-
ar og Sigurðai' Sigurjónssonar,
við undirleik séra Arnar Frið-
rikssonar. Hver samsöngur tók
nálega tvo og hálfan kl.tíma.
Heiðurssöngstjórar mótsins
voru Jónas Helgason og séra
Friði'ik A. Friðriksson, sem
ekki gat mætt vegna anna.
Aðsókn að samsöngvunum
var mjög góð, og munu hafa
sótt þá alla nokkuð á annað
þúsund áheyrendur alls. Söngn-
um var alls staðar mjög vel
fagnað.
Að morgni fyrra mótsdagsins
var alhvít jörð um allt Norður-
land, og á sunnudaginn snjóaði
í Skagafirði allan daginn, þótt
ekki festi fyrr en um kvöldið.
Söngfélagið Hekla var stofnað j
árið 1934 og var þetta 10. söng-
mót félagsins. Auk söngmót-
anna hefur Hekla beitt sér fyrir
söngkennslu á félagssvæðinu,
sem er Norðlendingafjórðung-
ur hinn forni. Þá sungu félags-
kórarnir inn á plötu sem Hljóm
plötuútgáfa Fálkans gaf út 1966
í tilefni af 30 ára afmæli Heklu.
Núverandi stjórn Söngfélags-
ins Heklu skipa: Áskell Jónsson
formaður, Þráinn Þórisson rit-
ari, Árni Jóhannesson gjaldkeri
og meðstjórnendur Guðmundur
Gunnarsson, Jón Tryggvason
og Páll H. Jónsson.
(Frá stjórn Söngfélagsins
Heklu.)
AÐ er kunnara en frá þurfi
að segja, að á undanförnum
árum hafa hlotizt mörg slys við
notkun dráttarvéla, og má
áreiðanlega rekja mörg slys-
anna til vankunnáttu í notkun
þeirra.
Nú hefur Framkvæmdanefnd
hægri umferðar í samvinnu við
Slysavarnafélag íslands gefið út
bækling, þar sem á skýran og
einfaldan hátt er bent á helztu
atriði, sem hafa þarf í huga við
notkun dráttarvéla. Bæklinginn
prýða 14 litmyndir, til skýring-
ar, og hefur Leifur Þorsteins-
son tekið þær allar af dráttar-
vélum af hinum ýmsu tegund-
um í vinnu.
Bæklingi þessum verður nú
á næstunni dreift til allra sveita
býla á landinu, en nú fer ein-
mitt sá tími í hönd, þegar drátt-
Nýkomið
ÓDÝRAR DÖMU-
GOLFTREYJIJR
6 LITIR
STUTTERMA
DÖMUPEYSUR
í MJÖG FJÖL-
BREYTTU ÚRVALI
VERZLUNIN DRÍFA
Sími 1-15-21
Á ER AM fer í sumarleyfi er
útlit ískyggilegt til lands og
sjávar, grasleysi í sveitum og
óvissa um síldveiðar á þessu
sumri, og þar við bætist verð-
fall á mörkuðum erlendis. En þó
óvissa sé framundan um afkomu-
þjóðarinnar mun íslenzk þjóð
eigi glata trú sinni á landið. í
svip hins seintekna bónda og
- 6. landsmót SÍL
(Framhald af blaðsíðu 2).
Rvík, ritari Jónas Magnússon,
Selfossi og gjaldkeri Ragnar
Eðvaldsson, Rvík.
Bæjarstjórn Siglufjarðar bauð
þátttakendum til kaffidrykkju
að Hótel Höfn. Þar ávarpaði
Stefán Friðbjarnarson, bæjarstj.
gestina og síðan fluttu margir
ávörp og hamingjuóskir til Siglu
fjarðarbæjai' og-þakkir, og einn
ig var Lúðrasveit Siglufjarðar
þökkuð skipulagning mótsins og
henni færðar skilnaðargjafir.
Að síðustu mælti Stígur Her-
lufsen nok'kur ávarpsorð og
sagði 6. landsmóti SÍL slitið.
Veðrið vai' svo gott sem helzt
varð á kosið föstud. og laugard.
en hvessti og rigndi á sunnud.
Almannarómur er að þetta
hafi verið mjög .skeinmtilegt og
velheppnað mót, lúðrasvéitirnar
fluttu mörg og fjölbreytt verk-
efni af vandvirkni og gpðum
leik.
arvélar eru mest notaðar, og
mai'gir nýliðai' byrja að stjórna
þeim. Ættu allir stjórnendur
dráttarvóla að kynna sér efni
bæklingsins „Dráttarvélar og
ökutæki".
sagnfáa verkamanns og sjó-
mannsins er nú aflar björg í bú
ríkir alvara og festa, en engin
uppgjöf. Engin mun hyggja á
flótta úr landi þótt mótbyrs
kenni, svo sem staðreynd var á
harðindaárunum fyrir síðustut
aldamót. Þjóðin hefur öðlazt trú
á land sitt og mun eigi hopa af
hólmi þótt svalan blási. f þeirri
vissu sendir AM öllum þeim er
nú vinna hörðum höndum til
sjávar og sveita í trú á landið,
sínar beztu velfarnaðaróskir.
AM veit að allir munu verða
samtaka um að afsanna að ís-
landsóhamingju- verði allt að
vopni. Því vill AM segja, heilir
hildar til og heilir hildi frá.
- AM árnar lieilla
(Framhald af blaðsíðu 1).
1942 með hæstu einkunn sem
þar hefur verið gefin á verzl-
unarprófi. Síðan vann hún skrif
stofustörf í Reykjavík nokkur
ár, þangað til hún giftist.
Börn þeirra Halldóru og
Kristjáns eru fjögur: Ólöf 21 árs
stúdent, gift Stefáni Erni Stef-
ánssyni stúdent, Þórarinn 18
ára í 5. bekk menntaskóla, Sig-
rún 14 ára í unglingaskóla og
Ingólfur 7 ára í barnaskóla.
- ÆskuLleiðtogavika
(Framhald af blaðsíðu 8).
voru til fyrii'myndar og gest-
gjöfum okkai' eigum við mikla
skuld að gjalda. Samferðafólki
mínu þakka ég mjög ánægjulegt
samstarf og að lokum skila ég
hér með kveðju frá Vasterás til
Akureyrar og sérstakri kveðju
frá því fólki sem hér var á æsku
lýðsleiðtogamótinu 1966 og eign
aðist þá kunningja hér í bænum.
Tryggvi Þorsteinsson.
Mikið og failegt úrval af
handa konum á öllum aldri.
VERZLUN BERNHARÐS LAXDAL
Ú. K. E. - DALVÍK
VEITINGASTOFA: Sími 61208
Kaffi og smurt brauð, kökur, öl, tóbak o. fl.
Hægt að fá mat, ef pantað er með fyrirvara.
BIFREIÐ A VERKSTÆÐI:
Allar viðgerðir, smyr, hleður og bætir.
Til félagsmanna KEA
Vinsamlegast skilið arðmiðum fyrir það sem af er
þessu ári hið fyrsta, annað hvort í aðalskrifstofu vora
eða í eitthvert af verzlunarútibúunum í bænúm.
Arðmiðunum ber að skila í lokuðu umslagi, er sé
greinilega merkt félagsnúmeri viðkomandi félags-
manns og heimilisfangi.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
AÐVÖRUN
til sauðfjáreigenda á Akureyri!
Skv. 60. grein lögreglusamþykktar Akureyrar eru all-
ir, sem sauðfé eiga skyldir til að reka það á afrétt eigi
síðar en 15. júní ár hvert, nema fjallskilastjórn geri
þar undantekningu á.
LÖGREGLUSTJÓRINN.
- ÞJÓÐIN VALDI KRISTJÁN...
(Franlhald af blaðsíðu 1).
SUÐURLANDSKJÖRDÆMI:
Gunnar Thoroddsen..........3161 atkv. eða 34.9%
Kristján Eldjárn .......... 5820 atkv. eða 64.3%
Á kjörskrá voru 9787. Af þeim greiddu atkvæði 9056 eða 92.5%,
Auðir seðlar voru 54 og ógildir 21.
I
AUSTURLANDSKJÖRDÆMI:
Gunnar Thoroddsen.......... 1099 atkv. eða 19.0%
Kristján Eldjárn........... 4655 atkv. eða 80.5%
Á kjörskrá voru 6288. Af þeim greiddu atkvæði 5782 eða 92%.
Auðir seðlar voru 20 og ógildir 8.
I
NORÐURLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA:
Gunnar Thoroddsen.......... 2697 atkv. eða 23.9%
Kristján Eldjárn........... 8528 atkv. eða 75.5%
Á kjörskrá voru 12160. Af þeim greiddu atkvæði 11299 eða 92.9%.
Auðir seðlar voru 48 og ógildir 26.
:|
NORÐURL ANDSKJÖRDÆMI VESTRA:
Gunnar Thoroddsen.......... 1709 atkv. eða 32.7%
Kristján Eldjárn........... 3486 atkv. eðá 66.6%
Á kjörskrá voru 5754. Af þeim greiddu atkvæði 5231 eða 90.9%.
Auðir seðlar voru 33 og ógildir 3.
VESTFJARÐAKJÖRDÆMI:
Gunnar Thoroddsen.......... 1796 atkv. eða 35.1v%
Kristján Eldjárn........... 3284 atkv. eða 64.2%
Á kjörskrá voru 5622. Af þeim greiddu atkvæði 5118 eða 91%.
Auðir seðlar voru 25 og ógildir 13.
I
VESTURLANDSKJÖRDÆMI:
Gunnar Thoroddsen.......... 2168 atkv. eða 32.5%
Kristján Eldjárn........... 4455 atkv. eða 66.8%
Á kjörskrá voru 7177. Af iþeim greiddu atkvæði 6668 eða 92.9%.
Auðir seðlar voru 27 og ógildir 18.
Dráffarvélar eru