Alþýðumaðurinn - 05.12.1968, Síða 8
Góðborgari! Gakktu að kvöldi um aðalgötur skólabæjarins Akureyrar!
Þar ráfar um skólaæskan f leit
að tómstundasfamni
Mundi eigi diskótek á Hótel Akurevri vera þeim
hollari samastaður en gatan? - Diskótekið á
Hótel Akureyri verður að veruleika nú í kvöld
PYRIR stuttu síðan birtist í
Degi frásögn af innliti tveggja
sveitakvenna inn á kvennasnyrt
ingu bæjarsalernanna undir
kirkjutröppunum og undirritað-
ur veit að þær hafa eigi hallað
máli. Þetta er ekki sagt þeim
góðu hjónum til hnjóðs er þar
ráða húsum, þau eiga við erfið-
leika að stríða sökum ásóknar
æskunnar á þennan stað. Og þá
er þú hefur gengið góðborgari
um Hafnarstræti um siðkvöld,
hver er sú mynd, er fylgir þér
'heim á eftir. Jú, ég veit svar þitt.
Ég sá unglinga híma hér og þar
í portum og innskotum klædd
afkáralegum stælfötum, mörg
voru reykjandi og sum kannski
undir áhrifum annarra nautna-
lyfja. Jú, jú, þetta er svo sem
staðreynd, en bættu því ekki við
með hneysklunarsvip á vörum:
„Að þetta sé úrhrakið, hin glat-
aða æska, sem ekkert er hægt
fyrir að gera“ eins og einn betri
borgari sagði við mig um dag-
inn og tók þar með málið út af
dagskrá með hofmannlegum
virðuleikasvip, hann hafði kveð
ið upp sinn „Salómonsdóm“ og
þar með basta. Hann dæmdi án
nokkurs efa þá 30—40 unglinga
er hann leit í innskotum Hafnar
strætis sem glataða æsku — og
hann hlustaði ekki einu sinni á
mig, þá er ég maldaði í móinn.
Hann hafði kveðið upp sinn
dóm, er fullnæing hans eigins
sjálfsálits hafði skapað honum.
En minn dómur yfir slíkum
broddborgarahugsunarhætti er
VEI YÐUR FARISEAR ÞÉR
HRÆSNARAR. ísland getur átt
nýjan Davíð Stefánsson í hópi
þess æskufólks er nú ráfar eirð-
arlaust um Hafnarstræti í leit að
útrás fyrir athafna- og ævin-
týraþrá, án eftirlits skólaforráða
manna, það vill tjá sig frjálst án
þess að rannsóknaraugu fylgist
með hverju spori þeirra, það vill
geta hlegið frjálst, stigið dans-
spor frjálst, lifað tómstundir sín
ar frjálst — og átt sig frjálst, þó
eigi sé um annað að velja en
berangur Hafnarstrætis okkar.
Ég vil leyfa mér að minnast á
þátt ýmsra virðulegra fulltrúa
minnar kynslóðar, í því lífi sem
lifað er á götum Hafnarstrætis
á síðkvöldum. Þeim leiðist ef-
laust lífið heima og ungmeyjar
í hópi hinnar „glötuðu æsku“ er
tipla eftir Hafnarstræti í stæl-
fötum virðast á stundum vera
lostæt veiðibráð „góðborgara"
sem þó hafa SALÓMONSDÓM
á vörunum, þá er þeir dæma í
sínum hópi veiðibráð sína. Góð-
ir hálsar, virðulegir borgarar.
Hver veitir hinni „glötuðu
æsku“ vínið? Hverjir eiga luxus
bílana er staldra við hjá ung-
meyjahópi og bjóða uppí. Götu-
æskan á þá ekki, fátæklingar úr
minni kynslóð eiga þá ekki —
og því bið ég marga hverja þá
sem leiðast heima á síðkvöldum
að hætta að berja sér á bi'jóst
að hætti hins „réttláta".
DISKÓTEK A HÓTEL
AKUREYRI.
Ég frétti af tilviljun að hótel-
stjórinn á Hótel Akureyri hefði
áhuga fyrir að koma á fót það
sem nefnt hefur verið diskótek,
ég fagnaði þessarri frétt og leit-
aði staðfestingar hennar hjá
hótelst j óranum.
Er það rétt hermt Einar, að
þú viljir koma á fót „diskótek“
á H. A.?
Já, það er rétt. En því miður
er það ekki útkljáð ennþá, og
endanleg svör hafa ekki fengizt
af hálfu ráðamanna.
En fyrirgefðu lieimskulega
spurningu. Hvað er annars
„diskótek“?
Jú, það eru dansleikir, þar
sem stiginn er dans, eftir plötu-
spilara, þar sem nýjustu dægur
lögin eru spiluð og hljómburður
aukinn með góðu magnarakerfi.
En í þessu tilfelli einungis fyrir
unglinga.
Hver er áætlun þín um þitt
„diskótek“?
Ég hugsaði mér að það yrði
tvisvar í viku og dansað yrði
frá 9 til hálf tólf gegn aðgangs-
eyri og aðgangur yrði eigi leyfð
ur nema aldursflokkunum frá
16—20 ára. En ef samkomulag
næðist er húsið opið yngri ald-
(Framhald á blaðsíðu 5)
XXXVHI. árg. — Akureyri, fimmtudaginn 5. des. 1968 —
Myndina tók Páll A. Pálsson við afhendingu verðlaunanna á Hótel KEA sl. þriðjudagskvöld. — Frá
vinstri: Hermann Stefánsson formaður ÍBA, Kári Arnason með verðlaunaskjöldinn og Reynir Hjart-
arson íþróttaritstjóri AM, er afhenti verðlaunin, en eins og AM gat um í síðasta blaði voru verðlaunin
gefin af Olíusöludeild KEA og færir AM deildarstjóranum beztu þakkir fyrir vinsemd hans — og svo
í lokin til hamingju Kári.
Kári Árnason kosinn knattspyrnumað-
ur ársins
Á ÞRIÐ JUD AGSKV ÖLDIÐ
var, afhenti Hermann Stefáns-
son formaður ÍBA, Kára Árna-
syni verðlaun sem hann hlaut
í kosningu AM um Bezta knatt-
spyrnumann ársins 1968, og fór
afhending verðlauna frain að
Hótel KEA.
Kára Árnason þekkja allir
íþróttaunnendur á landinu, fyrst
og fremst sem miðhérja' ÍB'A-
En úrslit urðu þá sem hér
segir, að eins og áður er talið
þá sigraði Kári Árnason með
74 atkvæðum, annar var Gunn-
ar Austfjörð með 62 atkvæði og
þriðji Magnús Jónatansson sem
fékk 54 atkvæði, og voru þessir
þrír menn lang efstir, en sam-
liðsins, og einhvern haéftulég- táls voru greidd 203 atkvæði,
Blásarakvintett á tónleikum TA
AÐRIR tónleikar Tónlistarfé-
lags Akureyrar, verða í Borgar-
bíói þriðjudaginn 10. desember
kl. 21.
Blásarakvintett Tónlistarskól
ans i Reykjavík, með undirleik
Guðrúnar A. Kristinsdóttur
mun flytja þar verk eftir
Mozart, Paul Hindemith, Ibert
og Beethoven.
Það er von Tónlistarfélagsins,
að þarna sé á ferðinni tónlist,
sem marga fýsir að heyra.
Líkt og strokkvartett er blás- ásamt samtíða tónskáldum hafa
arakvinkett hyrningarsteinn skrifað gullkorn fyrir þessa
kammertónlistar allra menning hljóðfæraskipan, sem sjaldan
arlanda. Síðari alda meistarar, eða aldrei heyrist hér á landi.
N
ENGBNN AKUREYRINGUR I LANDSLIÐINU?
BLAÐIÐ hefur fregnað að eng-
inn Akureyringur né Vest-
mannáeyingur verði valinn til
landsliðsæfinga í vetur. Má
furðulega kallast slíkar ráðstaf-
anir.
asta sóknarmann á láridinu, 'éii
Kári hefur einnig léikið ' riiéð
unglingalandsliði okkáf, á sín-
um tíma, og síðan í lándsliðinu,
og óhætt er að segja það að
marga leikina hefir hann bók-
staflega unnið fyrir okkur Akúr
eyringa, og er það ekki ofrnælt
að segja að í hverjurri leik sem
Akureyrarliðið spilar, þá sé það
mesti höfuðverkur andstæðinga
þess að gæta Kára, enda eins ’
gott að þar sé röskur maður að
verki, og eru þeir fáir varnar-
mennirnir sem stöðva Kára,
þegar hann er kominn á fulla
ferð með knöttinn.
Kári er íþróttakennari.
Kári er fæddur árið 1944 og
því 24 ára. Hann hefir leikið
með liði KA frá því hann hafði
aldur til að spila með í 4. flokki
og alltaf síðan, og er nú uppi-
staðan í meistaraflokki KA.
Er Kári lærður íþróttakennari
og kennir við Barnaskóla Akur
eyrar.
og dreifðust hin á fimm menn,
og óskar íþróttasíðan Kára,
Gunnari og Mágnúsi til ham-
ingju með þær vinsældir sem
þeir hafa aflað sér meðal áhorf-
enda og er, ég þess fullviss að
þeir eru vel að þeim komnir.
okkurgóður
SL. NÓVEMBER var sá næst-
hlýjasti er komið hefur á þessari
öld. Meðalhitinn á Akureyri var
2.9 stig, en hlýjasti nóvember á
Akureyri var árið 1956, en þá
var meðalhitinn 4.8 stig.