Alþýðumaðurinn - 08.08.1969, Blaðsíða 2
IÞROTTIR IÞROTTIR I3>JEiÓXTXH, ÍÞRÓTTIR Í3ÞHÓTT1B
I
Mikið áfall fyrir ÍBA-liðið
GESTALEIKUR KR og ÍBA í
síðustu viku varð örlagaríkur,
því að í þeim leik fótbrotnaði
Steingrímur Björnsson, er AM
telur að hafi verið sterkasti
maður ÍBA-liðsins, það sem af
er þessu keppnistímabili, og er
þetta því óbætanlegur skaði fyr
ir Akureyrarliðið. Brotnuðu
báðar pípur í vinstra fæti Stein
gríms, en sem betur fer er brot_
ið ekki slæmt að dómi lækna,
þverbrot, en eigi flaskað út úr,
en eigi að síður er það stað-
reynd, að Steingrímur er dæmd
ur úr leik vegna meiðslanna á
þessu sumri, en vonandi sjáum
við hann heilan á leikvanginum
næsta sumar.
AKUREYRINGAR! — STYÐJ-
UM STEINGRÍM OG FJÖL-
SKYLDU HANS.
Méiðsli - Steingríms - eru ekki
einungis alvarlegt áfall fyrir lið
Norðlenzk íþróttamót
RITSTJÓRI hitti formann ÍBA,
Hermann Stefánsson, nýlega og
spurði tíðinda, og sagði hann
að gott væri að koma á fram-
færi niðurröðun Norðurlands-
móta, sem fulltrúafundur úr N.-
fjórðungi hefði nýverið gert.
Væri um að ræða nokkur ný
mót, t. d. borðtennismót, hnit-
mót (badminton) og fimleika-
mót.
í A-riðli knattspyrnumótsins
(Ólafsfjörður, Húsavík, Þór og
KA) hefði Páll Jónsson form.
KRA verið skipaður „einvald-
ur“, en í B-riðli Gr.ðjón Ingi-
mundarson, form. UMS Skaga-
fjarðar. Ekki þótti ástæða til að
koma á keppni í yngri flokkun-
um með því að KSÍ hyggst setja
á laggirnar svonefnt „Svæða-
mót“ fyrii' drengina.
Skautamót var falið Skauta-
félagi Akureyrar, sundmótið
Völsungi, Húsavik og liandknatt
leiksmóti kvenna utanhúss,
íþróttabandalagi Ólafsfjarðar
skíðamótið, Körfuknattleiksráði
Akureyrar körfumótið, UMSE
glímumótið, ÍBA borðtennismót
og N.-landsriðil í handknatt-
leik og giidir hann sem N.-lands
mót, Siglfirðingum fimleika- og
hnitmót og A.-Hún. frjáls-
íþróttamótið, en formaðurinn,
Magnús Ólafsson á Sveinsstöð-
um, hefir tjáð mér, að hið nýja
íþróttasvæði á Blönduósi sé
ekki það langt á veg komið að
hægt sé að halda þar stórmót í
ár, en þeir hafi fullan hug á að
taka mótið næsta sumar. Fellur
því frjálsíþróttamótið í hlut
UMSE að þessu sinni.
Nú, ýmis mót eru í gangi eins
og allir vita, en þeirra mest er
Norræna sundkeppnin, sem lýk
ur 15. september. Framkvæmd
200 m. sundsins þótti ekki nógu
góð og ákvað stjórn ÍBA að því
ráði að fela einum manni, Jón-
asi Jónssyni, að hafa forystu í
lokasókninni og hefir hann feng
ið til liðs við sig fjóra röska
menn, þá ísak Guðmann, Hauk
Berg, Hólmstein Hólmsteinsson
og Herbert Jónsson.
Ætli við látum þetta ekki
nægja að sinni Sigurjón, en af
mörgu er að taka og þakka ég
fyrir mig og mína, sagði Her-
mann að lokum.
AM þakkar Hermanni fyrir
greinargóð svör.
■'"'TJB
ÍBA, heldur og, öllu fremur,
fyrir hann sjálfan og afkomu
fjölskyldu lians. AM veit, að
þegar er hafin fjársöfnun í bæn
um til styrktar Steingrími og
Steingrímur Björnsson, lífleg-
asti leikmaður í framlínu ÍBA.
fjölskyldu hans — og AM er
öruggur um það, að Akureyr-
ingar munu allir sem einn firra
Steingrím þeim áhyggjum, með
an hann liggur á sjúkrabeði að
hann þurfi að hafa áhyggjur af
afkomu heimilis síns og fjöl-
skyldu. — Svo sendir AM Stein
grími beztu kveðjur og óskar
honum góðs bata.
LEIKURINN.
AM rekur hér ekki gang
leiksins en eins og kunnugt er
vann ÍBA glæsilegan sigur,
skoraði 4 mörk gegn tveimur.
Mörk Akureyringa skoruðu
Rögnvaldur Reynisson, Skúli
Ágústsson, Eyjólfur Ágústsson
og Sævar Jónatansson, og var
staðan 4:0 fyrir Akureyri, þá er
um 15 mín. voru eftir af leikn-
um. En á þeim tíma skoruðu
KR-ingar 2 mörk og voru þar
að verki Ólafur Lárusson og
Ellert Schram.
ÍBA - FRAM
KLUKKAN 16.0» Á SUNNUDAGINN
Á SUNNUDAGINN kenuut
verður keppninni í 1. deild í
knattspyrnu haldið áfram
eftir nokkurt hlé. Að þessu
sinni eru það Framarar sem
koma norður, en þetta verð-
ur þá þriðji leikur þessara
liða í sumar. í þeim tveimur
leikjum sem liðin hafa leikið
saman hefur koniið í ljós að
þau eru einhver jöfnustu
liðin í 1. deild og er ekki að
efa að um jafnan og spenn-
andi leik verður að ræða.
- Heyrt, spurt...
(Framhald af blaðsíðu 4)
enda sinna, og einnig höfðar til
samvizku þeirra um leið. AM
hefur einnig krafizt þess að op-
inber tilkynning verði gefin út
varðandi þjófnaðarmálið á
Gefjun, svo að eigi líði saklaus-
ir þar fyrir seka, en þaðan er
aðeins þögnina eina enn að
finna. s. j.
SVARTI STAFNINN
f HAFNARSTRÆTI.
Síðasti fslendingur-ísafold
minnist á svarta stafninn á hús-
inu Hafnarstræti 20 — og þakk
KA þarf á sjálfboða-
liðum að halda
FRAMKVÆMDIR við KA-
svæðið eru nú í fullu fjöri og
er óskað eftir sjálfboðaliðum
þegar þess gerist þörf.
Um þessa helgi er meiningin
að rista þökur ofan af væntan-
legum æfingavelli, og er þörf á
mannskap til að vefja upp og
flytja til þökurnar.
Félagar, mætið vel og sýnið
áhuga fyrir félagi ykkar.
Munið 200 metrana.
Ljósmynd: H. T.
LANDSMOT ISLENZKRA UNGTEMLARA
AÐ STAÐARHRAUNI í MÝRASÝSLU
(Framhald af blaðsíðu 8).
sunnudagsmorgun gátu þátttak
endur valið milli tveggja ferða:
Veiðiferð í Hítarvatn eða göngu
ferð um nágrennið, en í þeirri
ferð átti m. a. að skoða Grettis-
bæli. Seinnihluta sunnudagsins
voru eingöngu íþróttir á dag-
skrá, en þæi' eru snar þáttur í
starfsemi ungtemplarafélag-
anna. Keppt var í fjölmörgu,
svo sem handknattleik karla og
kvenna, knattspyrnu karla og
kvenna, og 100 og 1000 m. hlaup
um. Keppni var mjög tvísýn í
mörgum greinum, t. d. í 100 m.
hlaupinu, en þar var aðeins
sjónarmunur á milli fyrstu
manna, svo ekki sé minnst á
knattspyrnu kvenna, en þar
mátti aldrei á milli sjá.
Mótinu var slitið kl. 18.00 á
sunnudag.
Þess má geta, að flest ung-
templarafélögin í landinu höfðu
eitthvert verkefni til að sjá um
á þessu móti. Undirbúningur og
framkvæmd lenti ekki á örfá-
um mönnum eins og oft vill
verða, heldur á stórum hóp af
vinnuglöðum æskulýð. Sem
dæmi má nefna að utf. Hrönn í
Reykjavík sá um öll skemmti-
atriði, utf. Árvakur í Keflavík
sá um allar íþróttir og utf. Fönn
á Akureyri sá um og skipulagði
mótssetningu, sem allir þátttak-
endur tóku þátt í. Á þennan
hátt verður mótið mun fjöl-
breyttara og stórt og vanda-
samt verk verður auðvelt, þeg-
ar margir leggja hönd á plóg-
inn.
Halldór Jónsson.
ar AM blaðinu fyrir stuðning-
inn, því AM hefur áður drepið
á það að stafninn sá sé ekkert
augnayndi þeim gestum er
koma til bæjarins frá Akur-I
eyrarflugvelli. Úr því að AM er
farinn að minnast á hússtafna
vill blaðið minna á annan stafn,
sem það hefur að vísu áður
minnst á líka en það er norður-1
stafninn á húsi því er Amts-
bókasafnið var áður til húsa í,
en það hús ku vera í eigu bæjar
ins sjálfs — og er vissulega ekki
til fyrirmyndar fyrir bæinn.
v,
PERLA AKUREYRAR.
Það má næstum segja að Ak-
ureyri hafi verið auður bær um
Verzlunarmannahelgina — og
óvanalega fáir gestir voru í
heimsókn í Lystigarði Akureyr
ar þá er undirritaður heimsótti
hann all miður sín af veikind-
um og þunglyndi þennan dag.
En ef til er Paradís á jörð þá
held ég að Lystigarður Akur-
eyrar sé það. Og ef nokkur frið
laus sál getur hlotið hvíld og
frið á annað borð þá lilýtur hún
að hljóta hana í garðinum þeim,
griðland, afslöppun á öld vél-
menningar, þar sem sálarlaus
tölva, án tilfinningar og sálar
matar þjóðarleiðtoga, þar sem
af kaldrænni rökhyggju vél-
heilans, er skýri frá hagkvæni-
ara muni vera að myrða með
sprengju eða eiturgasi. En þetta
er víst útúrdúr, en ég vil full-
yrða að Lystigarðurinn sé perla
Akureyrar, og sá er þangað
komi fari þaðan betri maður.
En af gefnu tilefni vil ég beina
þeim tilmælum til foreldra að
þau láti ekki hörn ung að aldri
fara ein síns liðs í garðinn, þau
geta í barnslegri forvitni sinni
slitið upp fallegt blóm eða brot-
ið legg þess. s, j.
Karlmannaskór
Strigaskór
Gúmmískór
LEÐURVÖRUR H.F.
Strandgötu 5 . Sími 1-27-94