Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 15.04.1975, Blaðsíða 8

Alþýðumaðurinn - 15.04.1975, Blaðsíða 8
 *s Útflutningsverðmæti minka- skinna 80—90 millj. kr. í ár Sl. sunnudag var haldin að Hótel Varðborg skinnasýning og keppni um bestu minka- skinnin frá íslenskum minka- búum. Að sýningunni stóðu Búnaðarfélag íslands í sam- starfi við Hudson’s Bay and Anning LTD í London, sem sér um fjármögnun sýningar- innar, og í samráði við stjórn Sambands íslenskra loðdýra- ræktenda. Mikið af glæsileg- um skinnum var þarna til sýn- is, og fannst venjulegum leik- manni þau vera öll jafnfalleg, en dómarar sýningarinnar voru á öðru máli, en þeir voru Sig- urjón Bláfeld, ráðunautur frá Búnaðarfélagi íslands, og Barrie Phipps frá Hudson’s Bay and Anning LTD. Viðurkenningu fyrir besta skinnabúnt sýningarinnar hlaut Loðdýr hf. á Kjalarnesi fyrir svört kvendýraskinn. Loð feldur hf. á Sauðárkróki hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir best verkaða skinnabúntið, brún kvendýraskinn, Grávara hf. á Grenivík hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir besta ein- staka skinnið, hvítt kvendýra- skinn, og Loðfeldur hf. á Sauð árkróki hlaut viðurkenningu fyrir besta staka karldýraskinn ið, sem var villiminkaskinn. Starfandi eru nú 7 minkabú á landinu með um 11 þúsund læður, og var útflutningsverð- mæti skinna á fyrra ári 30 — 40 milljónir króna, en þá voru flutt út um 20 þúsund skinn. Árið 1975 er áætlaður útflutn- ingur 30 — 35 þúsund skinn að verðmæti 80 — 90 milljónir króna, og búist er við batn- andi markaðshorfum. 90% af fóðri því, sem not- að er til að fóðra minkana, er innlent og miklu ódýrara en það innflutta, og telja erlendir aðilar, að hvergi séu betri skil- yrði í Evrópu til að rækta mink en á íslandi. Minkarækt er arðsamasta grein landbún- aðar og skapar mestan gjald- eyri án styrkja. Á Norðurlandi eru 3 minkabú, á Grenivík, Dalvík og Sauðárkróki. ALÞYÐUMAÐURINN ---- 45. árgangur - Akureyri, þriðjudaginn 15. apríl 1975 - 14. tbl. Stofnun félags Frímerkjasafnara Laugardaginn 19. apríl n. k. boðar Landssamband ís- lenskra frímrekjasafnara til stofnfundar um félag frí- merkjasafnara á Akureyri í Hótel Varðborg. Verður stofn- fundurinn haldinn kl. 14. Til fundarins eru boðnir allir frí- merkjasafnarar á Akureyri og nágrenni, 15 ára og eldri. Landssambandið var stofnað árið 1968 og hefir m. a. á stefnu sinni, að stofna til fé- laga frímerkjasafnara um land jið. Eru þegar nokkur slík starf andi, og verið að stofna önnur. LandSsambandið hefir gengist fyrir frímerkjasýningum og þátttöku frímerkjasafnara héð s SNJALLAR STELPUR Þessar þrjár ungu blómarósir á meðfylgjandi mynd sátu ekki iðjulausar um síðustu helgi. — Þær höfðu fyrir helgina safn- að saman ýmsum munum og dóti í verslunum og heimahús- um hér í bæ, og héldu síðan heilmikla hlutaveltu í leikvall- arhúsinu við Löngumýri, á sunnudaginn. Mikil aðsólcn var eins og sést einnig á mynd inni, og varð innkoman á hlutaveltunni 3.684 krónur, sem þær örkuðu með út á Sól- borg, og færðu vistheimilinu peningana að gjöf. Þetta er lofsvert framtak hjá þessum ungu stúlkum, og eiga þær þakkir skildar fyrir. an á erlendum sýningum, m. a. alþjóðlegum sýningum. Hinn 23. janúar var stofnað félag í Hafnarfirði og Garða- hreppi, 21. apríl er boðið til stofnfundar á Suðurnesjum og eins og áður segir, á Akureyri 19. apríl. Eru safnarar á Akur- eyri eindregið hvattir til að mæta á þennan fund, til að geta haft sín áhrif á gang mál- anna þegar í upphafi og verið með að móta félag sitt. Á fundinum verður fyrst tekin fyrir tillaga Landssam- bandsins til stofnunar félags- ins. Verði hún samþykkt, verð ur lagt fram frumvarp að lög- um félagsins og síðan gengið til venjulegra aðalfundar- starfa. Þá verður auk þess stutt erindi flutt á fundinum og fleira gert sér til gamans. Þá verða kosnir fulltrúar fé- lagsins á Landsþing L. í. F., sem haldið verður í Reykja- vík, laugardaginn 14. júní. Um þá helgi, eða 13.—15. júní, mun L. í. F. halda frímerkja- sýningu í Hagaskólanum, und- ir nafninu FRÍMERKI - 75. Á sama stað mun Myntsafnara félag íslands auk þess gangast fyrir myntsýningu þessa sömu daga. Öllum er það ljóst, að væn- legar er til árangurs að starfa að öllum málum í félagsskap við aðra og er svo ekki síður um frímerkjasafnara en aðra. Er það því von okkar, að sem flestir sjái sér fært að taka þátt í tsofnun þessa félags. (Frétt frá Landssambandi íslenskra frímerkjasafnara). /------ Kraftaverk að halda flugvélunum í lagi S Talið frá vinstri: Bjarnveig Stef ánsdóttir, Sigríður K. Þorbjörnsdóttir og Bergþóra Pálsdóttir. í nýútkomnum Flugfréttum segir, að árið 1974 hafi farþega tala á flugleiðum milli landa lækkað nokkuð frá árinu 1973, en farþegatala innanlands hafi aftur á móti hækkað um að meðaltali 10%. Þá er ákveðið, að Loftleiðir noti eingöngu flugvélar af gerðinni DC-8-63 í utanlandsfluginu næsta sum- ar, en DC-8-61 hafa verið not aðar að hluta, að undanförnu. Einnig eiga að fara fram gagn gerðar endurbætur á farþega- rými BOEING 727, verður allt áklæði endurnýjað, svo og teppi á gólfum. Að sögn tækni manna mun farþegarýmið líta út sem nýtt væri, eftir þessar gagngerðu breytingar. Þá er haft eftir Einari Helgasyni, framkvæmdastjóra innanlands flugs, að við margvíslegan vanda hafi verið að glíma, eft- ir eldsvoðann á Reykjavíkur- flugvelli, 13. janúar s. 1., en þeir hefðu verið heppnir og lítið um bilanir. Reynslan hefur sýnt, að mest er urn bilanir á fiugflota ixman landsflugsins á vorin, en rætt hefur verið við Flugmála- stjórn, og þeir tekið mjög vel í það, að gera ráðstafanir til þess, að halda flugvöllunum eins góðum og mögulegt er. Einnig er haft eftir Einari, að það nálgaðist kraftaverk, að tæknideildarmönnum skyldi hafa tekist að halda flugvélunum í lagi í vetur, þrátt fyrir varahlutaskort og mjög erfiða vinnuaðstöðu. Eftir upplýsingum, sem við fengum hjá Erni Baldurssyni á Akureyrarflugvelli, tekur sumaráætlun F. í. á innan- landsleiðum, gildi 1. maí n. k., og mun að venju verða um verulega aukningu á flugi inn anlands að ræða. Verða pólsku togararnir seldir til Rússlands? Skuttogararnir pólsku, sem keyptir voru til landsins nú á síðustu „gullaldarárum11 tog- arainnflutningsins, eru aiiir komnir á söluskrá. Rússneski aðstoðarsj ávarútvegsráðherr- ann var nýlega í heimsókn hér á landi, í sambandi við 25 ára afmæli MÍR, og er talið að þá hafi þessi mál borið á góma. Rússneski ráðherrann mun hafa sýnt áhuga á togarakaup- unum til ákveðins lands aust- an tjalds, og er talið að það sé Rússland. Þá munu íslending- ar ekki eiga að fá að vera sjálf ráðir gerða sinna í þessum við skiptum, því það mun eiga að slcikka okkur tii að kaupa jafn marga skuttogara af pólverjum í staðinn, af rninni gerð, tog- ara, sem ekki er hægt að sýna jafn milcið bókhaldslegt tap á og gert er á stóru skuttogurun- um. Frétt þessi hefur ekki feng- ist staðfest hjá viðkomandi ráöuneyti, en henni hefur ekki verið neitað. Ef þetta reynist rétt, sem ástæða er til að ætla, er hér aðeins um að ræða lítið brbt af „afrekaskrá" Lúðvíks Jósepssonar.

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.