Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 29.10.1975, Blaðsíða 1

Alþýðumaðurinn - 29.10.1975, Blaðsíða 1
ALÞYÐUmAÐURINN jQQfr = Verður flugbrautin lengd næsta sumar? eðo eiga framkvæmdÍr að stranda á 25 milljónum króna? 45. árgangur - Akureyri, miðvikudaginn 29. okt. 1975 - 35. tbl. Alþýðumaðurinn fregnaði það fyrir nokkru, að til stæði leng ing flugbrautarinnar á Akur- eyrarflugvelli næsta sumar. Af þessu tilefni hafði blaðið samband við Agnar Kofoed ■s HÚSBRUIMI AÐ ILLUGASTÖÐUM Aðfaranótt síðastliðins sunnu Fnjóskadal og brann það til dags kviknaði í einu af orlofs kaldra kola. húsunum að Illugastöðum í Slökkviliðið á Akureyri sendi einn bíl á staðinn, en ekkert fékk hann að gert þar sem á annan klukkutíma var VIETAFLI Á GREINiEVIK % Mikið hefur verið að gera í Frystihúsinu á Grenivík að undanförnu og hefur verið þar stanslaus törn í 5 vikur og unnið bæði á kvöldin og um helgar. Bátar hafa róið með línu og aflað vel, að meðal- tali með 3 til 5 tonn í róðri. Október ætlar að verða met- mánuður hjá Frystihúsinu, því allar líkur eru á að aflinn ætli að ná 300 tonnum, sem þangað berst og verður það þá það mesta, sem borist hef- ur þangað á einum mánuði eins og fyrr segir. Rækjuvinnslan gengur vel, tekið er á móti af einum bát og hefur afli glæðst hjá hon- um upp á síðkastið, og síðustu róðrar verið ágætir. í Frystihúsinu á Grenivík vinna um 40 manns þar af 24 stúlkur. Þá er mikið um bygginga- framkvæmdir á Grenivík og eru þar 5 einbýlishús í smíð- um, sem byrjað var á síðast- liðið vor og öll eru orðin fok- held, einnig er verið að gera við akvegi bæði í kauptúninu og sveitinni. Þá má geta þess, að í sambandi við könnun þá, sem gerð var á byggðaþróun- inni var Grenivíkur sérstak- lega getið og vakin athygli á þenslunni þar. að fara og húsið brunnið að mestu þegar að var komið. Þarna var mildi að ekki fór ver, því að í næsta húsi sprungu rúður og þó stóð vind ur frá húsunum sem næst standa. í samtali við Slökkviliðs- stjóra kom það fram, að vafa- samt er hvort nægilega langt er á milli orlofshúsanna, sem þarna standa, en í brunamála samþykkt stendur að eigi megi vera styttra en 12% meter á milli óvarinna timbur húsa. Þá sagði slökkviliðsstjóri einnig, að telja mætti það til tíðinda að ekki hefði borist útkall til slökkviliðsins nú á annan mánuð, eða frá 18. sept. sl., gagnstætt því, sem hefði verið fyrrihluta þessa árs, en þá léti nærri að brunaútköll hefðu verið að meðaltali 2 á viku. Hansen flugmálastjóra og spurði hann hvað hæft væri í þessari frétt. „Það er með þetta eins og byrinn fyrir kónginn sem vill sigla,“ sagði flugmálastjóri. „Þetta er í annað skipti, sem Akureyrar- völlur er settur á áætlun en fjárveiting til flugvallarmála er ekki nema rúmar 200 millj. og það rétt nægir til að ljúka einu verki á Sauðárkróki, svo ekki eru miklar líkur á að af lengingu brautarinnar verði næsta sumar. Til fram- kvæmda á Akureyrarflugvelli eru til 10 milljónir króna svo það varla borgar sig að byrja með það, en dælan sem notuð var á Sauðárkróksvelli verður flutt til Akureyrar að vori. „Hugmyndin er að koma Ak- ureyrarflugvelli upp í 2000 metra,“ sagði flugmálastjóri, „og hefði þurft að vera fyrir mörgum árum.“ „Hann hefur verið varavöllur fram að þessu, en nú tekur Sauðár- króksvöllur við þó malarvöll- ur sé, því hann er kominn í 2000 metra lengd.“ Það liggur því ljóst fyrir að 25 milljónir króna vantar til að Akureyrarflugvöllur geti þjónað sínu fyrra hlutverki og er hér um verðugt verkefni að ræða fyrir ráðamenn stað- arins að knýja á með fjárveit- ingu til þessara mála. S Gerð nýju hafnar- innar gengur vel Nýja hafnarmannvirkið við Strandgötu. Ljósmynd: Páll I viðtali við Hafnarstjóra kom það fram að unnið er af full- um krafti að gerð nýju hafn- arinnar sunnan Strandgötu og er verið að ljúka við að reka niður 140 metra langt stálþil og með því er náð ákveðnum áfanga í gerð hafnarinnar. Dýpi við hafnargarðinn er um 9 metrar. Haldið verður áfram að vinna við að ganga frá festingum á þilinu í vetur, en 22 metra langir stálboltar eru festir í öfluga bita efst á stálþilinu og eru síðan festir í stórar steyptar akkerisplötur í landi. Áætlað er, að lokið verði við þennan áfanga um mitt næsta sumar og geta þá skip farið að athafna sig við hafnargarðinn. Einnig verður í vetur unnið við frekari dýpkun við garð- inn og er efni það sem þannig fæst notað til uppfyllingar innan við stálþilið. Verk þetta hefur gengið ágætlega í haust og hefur Ak- ureyrarbær tryggt fjármagn með lántöku hjá Hambros- banka í London og þar1 * * * * * * * 9 með er séð fyrir endann á þessari mannvirkjagerð, enda tími til kominn. Ertu að byggja? Þarftu að bæta? Viltu breyta? ÍBÚÐIN Strandgötu 13. — Sími: 2-24-74. Alltaf eitthvað nýtt! FASTEIGNASALA - LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA Nýjar vörur í viku hverri! KJÖLAR OG PILS 1 ÚRVALI. Steindór Gunnarsson, lögfræðingur. KLEOPATRA Strandgötu 23. — Sími: 2-14-09. Ráðhústorgi 1. — Sími: 2-22-60.

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.