Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 29.10.1975, Side 2

Alþýðumaðurinn - 29.10.1975, Side 2
 : Útgefandi: AlþýÖuflokksfélag , tr\ VI Akureyrar. — Ritstjóri og ábm. /—1 l/yj L Hjörleifur Hallgríms. ALÞÝÐUMAÐURINN Afgreiðsla og auglýsingar: Strandgötu 9. — Sími: 1-13-99. Siðferði blaðamanna siðferði embættismanna I síðasta íslendingi birtist bráðfyndinn leiðari um bernsku- brek tveggja aldamótamanna og hugleiðingar í framhaldi af þeim um siðleysi í íslenskri blaðamennsku. Leiðara- höfundur er sannfærður um, að Morgunblaðið og Halldór Blöndal séu nú næstum ein um að halda hátt á lofti merki íslenskrar blaðamennsku og er það út af fyrir sig ekkert athugavert þótt enn sannist fornkveðið, að hverjum þyki sinn fugl fagur. Nú er það ekkert deilumál, að íslensk blöð hafa í seinni tíð orðið vægorðari — ekki tekið eins stórt upp í sig og áður tíðkaðist — bersögli þeirra er miklum mun minni en áður tíðkaðist — en þar fyrir þurfa þau ekki að vera hótinu betri í siðferði sínu eða blaðamenn nú betur siðferðir en starfsbræður þeirra fyrr á árum. I grein einni í næstsíðasta tölublaði Alþýðumannsins var bent á þann meginvanda, sem þeim er fyrir höndum, sem vill fletta ofan af misferli opinberra aðila eða mis- tökum. Vandinn er sem sé sá, að sönnunarskylda Iaganna er svo ströng, að nánast er ómögulegt að ná til opinberra embættismanna þar sem þeir sitja einir uppi með þær upplýsingar, sem nauðsynlegar eru til að hægt sé að upp- lýsa mál á hendur þeitn. Þess vegna verða blaðamenn oftast að fara þá leiðina að spyrja en vitaskuld getur spurn- ing komið miklu róti á hugi manna. Sjálfsagt eru leiðara- höfundum Islendings kunnar þær aðferðir fornra spek- inga suður við Eyjahaf, að spyrja í sífellu þar til and- stæðingarnir komust í þrot. Á sama hátt verða þeir að sætta sig við að verða spurðir og það bætir þeirra málstað ekkert þótt þeir hrópi upp um níð og rógsherferðir. For- maður Kröflunefndar er ekki lítill strákur í indíánaleik heldur opinber embættismaður á Islandi á tuttugustu öld og verður að sætta sig við að þurfa að standa almenningi skil á gerðum sínum. Alþýðumaðurinn spyr enn á ný: Liggja fyrir lokatölur um virkjunarkostnað? Hver hefur kostnaður verið við nefndarstörf? Hver er þóknun Kröflu- nefndar? Hver kostar tíðar utanferðir formanns nefndar- innar og ættingja hans? Þetta eru spurningar, sem al- menningur á heimtingu á að vita svarið við. Það er liðin tíð ,að embættismenn geti komist upp með það, sem þeim sýnist. Almenningur á heimtingu á að vita allan sann- leikann í Kröflumálinu — ekki hálfan sannleikann heldur allan sannleikann. Á alþingi komu um daginn fram mjög alvarlegar ásakanir á Kröflunefnd og þeim verður væntan- lega fylgt fram af enn meiri festu innan skamms. Það er gersamlega þýðingarlaust fyrir jábræður Jóns Sólnes að reka upp einhver ramakvein hneykslunar. Þeir verða að gera betur. Þeir verða að fara að svara þeim spurningum, sem til þeirra er beint. Það er ekki hægt að fela alþingis- menn eins og þeir væru smákrakkar, sem ekki eru færir um að tala og svara fyrir sig. — B.H. 2 — ALÞÝÐUMAÐURINN Fyrstur með íþróttafréttir helgarinnar ÍÞRÚTTIR Draumurinn úti? Síðastliðin helgi var dökk fyr- ir akureyskan handknattleik. Bæði KA og Þór töpuðu fyrir einu af þeim f jórum liðum sem fyrir fram hafa verið talin hvað sterkust í II. dei'Id. Greini legt var að bæði liðin eru ekki komin í form. KA sem nánast átti allan leikinn brást gjör- samlega á síðasta korterinu. Þór lék svo einhæfan hand- knattleik að það dugði þeim ekki þó ÍR-ingar væru einum færri. Það kom í liós á laugardag- inn, er KA mætti ÍR í hand- knattleik að bað var stórt skarð sem Geir Friðgeirs skildi eftir sig, er hann fór úr liðinu. Þegar mest á reyndi að halda því, sem unnið var, vantaði þennan trausta, rólega og reynda leikmann sem svo oft átti stærsta þátt í velgengni KA-liðsins í fyrra. Fyrsta mark leiksins skoraði Guðjón Mar- teinsson fyrir ÍR strax á fyrstu mín. Halldór R. jafnar fyrir KA strax á eftir. Á fjórðu mín. kemur Hermann Har. KA yfir með laglegu marki eftir góða sendingu frá Þorleifi „Leibba“. Helst leikurinn síðan jafn, 2:2, 2:3, 3:3 og með laglegu marki kemur Halldór KA aftur yfir. Er tuttugu mín. eru liðnar af leiknum, er staðan orðin 5:5. Næstu sjö-mín. sendu leik- rnenn KA boltann fimm sinn- um í mark ÍR, án þess að þeim tækist að svara fyrir sig. Fyrir leikhlé tókst þó ÍR-ingum að skora þrjú mörk, en Hörður og Ármann bættu sitt hvoru markinu við fyrir KA, þannig að staðan var 12:8 í leikhléi fyrir KA. En kálið er ekki sopið, þó í ausuna sé komið, og það átti eftir að sannast á þeim þrjá- tíu mín., sem enn voru eftir af leiknum. Fljótlega í upphafi síðari hálfleiks var Herði vísað af leikvelli í tvær mín. og Hall- dóri stuttu síðar, þannig að KA var tveimu rmönnum færri en ÍR. Tókst ÍR-ingum að minnka muninn niður í tvö mörk. Leibbi og Halldór juku hann þó aftur í 14:10. Er hálfleik- urinn var hálfnaður, skorar Gunnlaugur 14. mark ÍR, en Jóhann Einarsson svarar með Vissulega eru þetta hlutir, sem má laga; liðin hafa aðeins leikið tvo leiki I Islandsmótinu. Að lokum: Það xeiv. teljast „aðdáunarverð“ ráð- stöfun af hlutaðeigandi yfir- völdum aða senda bæði þau sunnanlið, sem talin eru sterk- ust, norður i unnhafi móts. IR um síðustu helgi og KR um aðra helgi. Þau koma vel volg úr Reykjavíkurmótinu. Snið- ugur leikur þetta. i 17. marki KA. 15. mark IR skorar Ágúst Svavars. strax á sömu mín. og á 18. mín. skor- ar Vilhjálmur Sigurgeirsson það 16. úr víti. Hörður H. skorar 18. marlc KA, en enn skorar Vilhjálmur úr víti, 18:17. Hörður skorar svo síðasta mark KA á 21. mín. 19:17. Á níu síðustu mínútun- um er það svo, sem allt hrekk- ur í baklás hjá liðinu og ÍR- ingarnir ná að jafna 19:19, Áður en þessi leikur hófst var IR búið að leggja að velli lið KA daginn áður og ætluðu margir, að Þór myndi samt taka ÍR, en raunin varð önnur og Reykjavíkur-liðið vann ör- uggan sigur sem virtist sjaldan vera í hættu. Þór byrjaði á að skora tvö fyrstu mörkin og komast í 3:1 eftir 6 mín. leik. Góð byrjun það og lofaði góðu, en það vantaði bara framhaldið og ÍR tekur góðan sprett og skorar 4 mörk í röð og kemst því í 3:5. Þórsarar jafna síðan 5:5 og liðin skiptast á að skora fram að hálfleik; þó voru ÍR- ingar alltaf fyrri til og stóðu uddí með 1 mark yfir í hléi, 9:8. Til marks um getuleysi Þórsara í hálfleiknum, þá gerði Þorbjörn 5 af 8 mörkum liðs- ins! I seinni hálfleik hélt IR á- fram að aulca forskot sitt og um miðjan hálfleik var staðan orðin 14:11 fyrir ÍR. Á næstu 7 mín. gera svo aðkomumenn út um leikinn með að gera 4 mörk í röð, án svars frá Þór. með marki Vilhjálms úr víti á 25. mín. og komast yfir þrem mín. síðar með marki Ágústar. Það var svo gamla kempan, Gunnlaugur Hjálmarsson, sem átti síðasta markið í leiknum. ÍR sigur í höfn 21:19. Mörkin: KA: Halldór, 8 (2 v.), Hörður H. 4, Leibbi og Ár- mann 2 hvor. Eitt mark skor- uðu þeir Hermann H., Jóhann Einars og Sigurður S. ÍR: Brynjólfur Markússon 5 (1 v.), Vilhjálmur Sigurgeirs- son 5 5 v.), Ágúst Svavarsson, 4, Gunnlaugur Hjálmarsson 3, Bjarni Hákonarson 2. Eitt mark skoruðu Guðjón Mar- teinsson og Sigurður Svavars- son. Markmenn: KA: Magnús Gauti var í markinu allan leik- tímann. Varði hann sæmilega, einkum í fyrri hálfleik. IR, þar stóð Jens Einarsson í markinu allan tímann. Var hann mistækur í fyrri hálfleik, en varði vel, er líða tók á leik- inn. Dómarar: Gunnar Kjartans- son og Grétar Vilmundarson. Á heildina komust þeir vel frá leiknum, mistækir sem og mannlegt er, en ekki þó svo að annað liðið hagnaðist um- fram hitt. — jeg. Síðustu 6. mín. skoraði svo hvort liðið 4 mörk. Eitt er vert að minnst á, þegar einn eða jafnvel tveir menn hjá IR voru reknir af velli, tókst Þórsurum aldrei að nýta sér það. Þeir voru stöð- ugt með hnoð og barning upp miðjuna, þar sem vörn IR var hvað þéttust, í stað þess að dreifa spilinu og nýta breidd vallarins og opna með því ÍR- vörnina. ÍR-ingar brugðu til þess ráðs, að taka ,,fallbyssu“ Þórs úr umferð, og varð sókn- arleikur þeirra mjög vandræða legur og fumkenndur fyrir vik- ið. Svo spilar annar hlutur inn í þetta, sem er markvarslan, en hún er sögð geta ráðið úrslit- um leikja. Og ekki ætla ég að deila um það, þar sem þetta er nálægt sanni, og ef ÍR hefur unnið á einhverju, þá er það einmitt á henni. Markvörður þeirra, Jens Einarsson, var svo sannarlega í „essinu“ sínu í þessum leik, ekki síst í seinni hálfleik. Hann varði yfir 20 skot — af línu, langskot, skot KA-ÍR 19:21 (12:8) Þór-ÍR 15:22 (8:9)

x

Alþýðumaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.