Alþýðumaðurinn - 29.10.1975, Blaðsíða 6
Hvað er verið að fela?
hegðun líröflunefndar vekur undrun og hneykslun
45. árgangur - Akureyri, miðvikudaginn 29. okt. 1975 - 35. tbl.
ENGAR UPPLYSINGAR
LM KRÖFLUNEFNG
í Alþýðublaðinu sl. fimmtu-
dag eru störf Kröflunefndar
tekin til meðferðar og getur
þar að líta eftirfarandi.
Það hefur vakið bæði undr-
un manna og hneykslun
hvemig hin svonefnda Kröflu
nefnd hegðar sér. Hún hefur
sent sjálfa sig ásamt fjölmenn
um sérfræðingaher út og suð-
ur í ferðalög, og nú um þess-
ar mundir er Jón Sólnes
ásamt hluta fjölskyldu sinnar
á ferðalagi í Japan á kostnað
nefndarinnar, en auk Jóns
sjálfs munu tveir synir hans
vera að meira eða minna leyti
á launaskrá nefndarinnar.
Þá er vitað að miklu fé hef-
ur verið eytt í ýmsan kostnað
annan og mun t. d. skrifstofa
sú, sem formaður nefndarinn-
ar, Jón G. Sólnes, hefur látið
innrétta fyrir sig vera með
glæsilegustu skrifstofum á
landinu. Eru sagðar sögur af
óhemjulegum kostnaði aðeins
við flutning skrifstofuhús-
gagnanna á staðinn.
HEYRT
Að sendinefnd nokkur
hafi verið á ferð í Japan
til að útvega lán fyrir
Kröfluvirkjun. Og að
sendinefndina skipi Jón
G. Sólnes og frú, Júlíus
Sólnes og frú og Jón Kr.
Sólnes og frú.
% ;7fT
SPURT
Vegurinn frá Ferðanest-
inu gegnt Akureyrarflug-
velli að Kaupangi er nán-
ast ófær til keyrslu vegna
þess hvað hann er mjög
holóttur. Hvenær skyldi
viðkomandi aðilum þókn-
ast að senda veghefil á
þennan vegarspotta.
SÉÐ
Fyrir nokkru lét verðlags-
stjóri það boð út ganga,
að verðmerkingar skyldu
viðhafðar á vörum versl-
ana, sem útstillt væri í
verslunargluggum. 'Nokk-
ur vandkvæði eru á, að
þessu sé framfylgt hér í
bæ.
Á hinn bóginn virðist næst-
um ógerningur bæði fyrir al-
menning og ríkisvaldið sjálft
að fá upplýsingar um, hversu
miklu fé nefndin eyðir með
þessu móti. Til dæmis er frá
því skýrt í nýútkominni
skýrslu fjármálaráðherra um
stjórnir, nefndir og ráð ríkis-
ins, að Kröflunefnd hafi ekki
svarað tilmælum um að gera
grein fyrir kostnaði við starfa
sinn.
Svona framferði nær auð-
vitað ekki nokkurri átt og er
furðulegt að það skuli líðast
átölulaust. Það þarf engum
getum að því að leiða, að þeir
Kröflunefndarmenn eru stórir
karlar í eigin augum, en þeir
eru samt sem áður ekki þau
stórmenni, að þeim eigi að
haldast uppi að eyða stórfé úr
sameiginlegum sjóði lands-
manna eins og nú árar, eftir-
lits- og gagnrýnislaust.
Kröflunefndin heyrir sem
Kvennafrídagurinn svonefndi
var hátíðlegur haldinn meðal
kvenna síðastliðinn föstudag.
Fjölmenn þáttaka var um allt
land og herma fregnir frá
Reykjavík að aldrei í sögu
landsins hafi annar eins fjöldi
fólks verið saman kominn á
Lækjartorgi, eða um 25 þús-
und manns.
Hér á Akureyri var mikið
um að vera, þátttaka góð og
var haft opið hús í Sjálfstæðis
húsinu, þar sem veitingar
voru fram bornar og samfelld
skemmtidagskrá frá því kl. 10
um morguninn.
Að sögn hefur aldrei fleira
fólk verið saman komið í Sjálf
stæðishúsinu en þennan dag
og meðal annars kom hópur
kvenna frá Ólafsfirði.
Atvinnulíf var lamað, því
sumar verslanir voru lokaðar
og einnig einstaka iðnfyrir-
tæki, en annars staðar var
unnið með hálfum eða þaðan
af minni afköstum. Þessi dag-
ur virðist hafa náð tilgangi sín
um og vakið heimsathygli því
slík undir Gunnar Thorodd-
sen, iðnaðarráðherra. Það á
því að koma í hans hlut að
halda í spottann. Því verki
hpfur ráðherrann ekki sinnt
og er leitt til þess að vita, því
Gunnar ætti að hafa þá
reynslu, sem fyrrverandi fjár-
málaráðherra að svona nokk-
uð getur alls ekki gengið. —
(Kannski er Gunnar að launa
Sólnes gamlan greiða, þegar
Sólnes gekk berserksgang til
að reyna að fá Gunnar kos-
inn sem forseta íslands á sín-
um tíma.) Innskot A.M.
Eyðslulag Kröflunefndar er
enn eitt dæmið um hið algera
stjórnleysi í fjármálum á ís-
landi. Frekjan og ágengnin
ein virðast nægja mönnum til
halds og trausts hvað sem
öllu öðru líður. Slíkt háttalag
er bæði fráleitt og forkastan-
legt — hversu stórt sem menn
kunna að líta á sjálfa sig. Hér
Framhald á bls. 5.
nú berast fréttir um það, að
kvenfólk í hinni stóru Ame-
ríku ætli að hafa svipaðar að-
gerðir uppi áður en langt um
líður.
Kröflunefnd starfar af mikl-
um móð og sér um miklar
framkvæmdir er kosta millj-
arða króna. En það virðist
ekki hafa tekist að komast á
snoðir um hvað nefnd þessi
greiðir sér í laun.
í skýrslu fjármálaráðuneyt-
isins um nefndir segir orðrétt:
KRÖFLUNEFND. „Skipuð
með bréfi ráðuneytisins, dags.
21. júní 1974. Til að undirbúa
jarðgufuvirkjun við Kröflu
eða Námafjall í Suður-Þing-
eyjarsýslu í samræmi við lög
nr. 21, 10. apríl 1974.
Páll Lúðvíksson, verkfræð-
ingur, formaður, Jón G. Sól-
nes, bankastjóri, Ingvar Gísla-
son, alþingismaður, Bragi Þor
steinsson, verkfræðingur.
Hinn 5. nóvember 1974 var
Páll Lúðvíksson, sem starfar
áfram í nefndinni, leystur frá
formennsku í nefndinni, að
eigin ósk, en Jón G. Sólnes
skipaður formaður í hans stað.
ÞÓKNUN: Engar upplýsing
ar fengist.“
Það er rétt að taka fram, að
þetta er eina nefndin sem ekki
hefur tekist að fá upplýsingar
um launagreiðslur til.
Gáfu endur-
skinsmerki
í tilefni þess að 8. október er
alþjóðlegur þjónustudagur
Lionsklúbba um allan heim,
hefur Lionsklúbburinn Hæng
ur sent endurskinsmerki, öll-
um þeim 6 ára börnum sem
nú eru að hefja skólagöngu
hér á Akureyri. Vill klúbbur-
inn með þessu framlagi stuðla
að auknu öryggi barna í um-
ferðinni.
Lionsklúbburinn Hængur
gaf samskonar gjöf til allra 6
ára barna er hófu skólagöngu
hér í bæ á sl. ári, og stefnir
klúbburinn að því að þetta
verði árlegur viðburður.
Aðstaða er orðin slæm við Torfunefsbryggjuna. Ljósmynd: Páll
f1
Velheppnaður
kvennafrídagur
Auglýsið í Alþýðumanninum > Askriffarsími Alþýðumannsins
S'iminn er /-73-99 er 1-13-99