Alþýðumaðurinn - 28.06.1977, Qupperneq 4
Blandaður kór frá Sjá-
landi í söngferð hér
Haslev Gymnasium kór. Kórfélagar eru á aldrinum 15—32 ára. Kórinn tók þátt í alþjóðlegri
kórakeppni í Vín á síðasta sumri.
Blandaður kór frá skólabæn-
um Haslev í Danmörku hefur
undanfarna daga verið á söng
ferðalagi um landið, og syngur
á Ólafsfirði annað kvöld og á
Alkureyri á fimmtudagskvöld.
Kórfélagar eru 34 á aldrin-
um 15—32 ára og stunda nám
eða hafa þegar lokið námi við
menntaskólann í Haslev. Kór
inn hefuir farið víða, m.a. hald
ið tónleika í Austurríki, Pól-
landi og Sovétríkjunum. Kór-
inn tók þátt í alþjóðlegri kóra
keppni í Vín á síðasta sumri,
og hlaut þar mjög góða dóma.
Danska sjónvarpið fékk kór-
inn til að flytja ndfckur lög í
sjónvarpsdagskrá á síðasta
gamlárskvöldi vegna ágætrar
frammistÖSu'í söngkeppninni.
Söngskrá kórsins fyrir fslands
ferðina eru þjóðlög, negra-
söngvar, og lög eftir Bach,
Bellman, Mozart, Nielsen,
Gunnar R. Sveinsson o.fl.
Kórinn söng syðra um sið-
ustu helgi, í gærkvöldi í Mý-
vatnssveit og í kvöld á Húsa-
vík, en annað kvöld klukkan 9
erða tónleikar í Tjarnarborg í
Ólafsfirði og fimmtudagskvöld
ið 30. júní kl. 20.30 syngur
kórinn í Akureyrarkirkju. Fé
lagar úr Passíukórnum og
Tónlistarskólanum á Akureyri
annast móttöku og skipulagn-
ingu ferðarinnar á Narður-
landi.
Til sölu
Kenwood plötuspilari og
Ijósashow ásamt kösturum.
Upplýsingar I síma 2-30-59
Reiðhjól óskast
Kvenreiðhjól óskast keypt.
Sím 19834.
Benidorm
Vinsælasti dvalarstaður Spán
arfara er tvímælalaust BENI
DORM.
Ekki að ástæðulausu.
M.ar er boðið upp á frítt flug-
far Ak. —Rvík.—Ak.
Leitið upplýsinga á skrifstof
unni Hafnarstræt 100, sími
19970.
UR
VMSLM
ÁTTIilM
Othafsrækjutogarinn Dal-
borg er kominn til Dalvík
ur, en þetta mun vera fyrsti
togari sinnar tegundar hér
á landi.
ibúð i haust
Hjón með 4ra ára gamalt barn
óska eftir að taka á Ieigu á
Akureyri 2—3 herbergja íbúð
frá 1. október næstkomandi.
Upplýsingar veittar í síma
19995 öll kvöld.
Prentara vantar íbúð nú þegar
fyrirframgreiðsla ef óskað er
Upplýsingar í Skjaldborg hf.
Sími 1-10-24.
Topoð
Bíllyklar töpuðust á föstudags
nóttina í miðbænum.
Finnandi vinsamlegast skili.
þeim álögreglustöðina.
Allmargir nýjir áskrifendur
hafa orðið að Alþýðublað
inu hér á Akureyri að und
anförnu. Útbreiðslu blaðs-
ins, meðan á söfnun áskrif
enda stendur, annast Stefán
Snælaugsson, Lækjargötu
4. Sími hans er 2-16-64, og
eru þeir, sem vilja gerast á-
skrifendur beðnir að hafa
samband við hann.
Alþýðumaðurinn vill vekja
athygli lesenda og auglýs-
enda á því, að fastur síma
tími er á ritstjórnarskrif-
stofu blaðsins að Strand-
götu 9, annari hæð. Það er
frá kl. 9 — 11 fyrir hádegi
og klukkan 1 — 3 síðdegis.
Á flestum öðrum tímum má
ná ritstjóra í skrifstofusíma
SUND
Sundlaug Akureyrar verður
opin í sumar sem hér segir:
Alla virka daga frá klukkan
7 árdegis til kl. 9 að kvöldi.
Laugardaga fná kl. 8 árdegis
til kl. 6 síðdegis. Sunnudaga
frá klukkan 8—11 fyrir há-
degi. Sé veður mjög gött er þó
haft opið til kl. 4 síðdegis á
sunnudögum.
11399, en annars í heima
síma, 19997 eða í prént-
smiðju, síma 1-10-24.
,,Það er óhætt að segja að
hheyskapartíðin verði mán
uði á eftir áætlun í sum-
ar,‘ sagði Þórhallur bóndi
Jónasson á Stórahamri er
blaðið ræddi við hann í
gær. Það hafa ýmist verið
þurrir hlýindakaflar og rök
kuldaskeið og hamlað allri
sprettu.
Fréttir um að sláttur sé
að fara að hefjast geta því
vart átt við annað en gras
grasið er slegið hálfvaxið,
kögglverksmiðjur, þar sem
fjórum fimm sinnum á
sumri.
Karlatímar eru á sunnudög-
um meðan laugin er opin, en
mánudögum, miðvikudögum
og föstudögum frá klukkan
1—9 siðdegis.
Kvennatímar eru frá klukk
an 1—9 síðdegis á þriðjudög-
um og fimmtudögum, en á
laugardögum meðan laugin er
opin.
Upplýsingar um afnot af tenp
isvelli eru veittar í afgreiðslu
sundlaugarinnar.
ÓKEYPIS
smáauglýsingar
lesenda -
þjönusta
Gufubaðið er opið sem hér
segir:
Margvíslegt félagsstarf
aldraðra nú í sumar
Þó nokkur starfsemi verður
fyrir aldraða í sumar á vegum
Félagsmálastofnunar Akur-
eyrar. Fólki gefst kostur á 10
daga sumardvöl að Löngumýri
í Skagafirði, þá verður opið
hús og stutt ferðalög.
Sumardvölin á Löngumýri
verður dagana 8.—19. ágúet
og verður farið þaðan í dags-
ferðir um Skagafjörð. Fæði og
ferðir til og frá Löngumýri og
einnig um Skagafjörð eru
innifaldar í verði, en þátttak-
endur greiða kr. 20.000. Kostn
að umfram þá upþhæð greiðir
Félagsmálastofnunin. Fólk
þarf að taka með sér rúmfatn
að. Fararötjóri verður sr. Pét-
ur Sigurgeirsson. Þeir, sem
álhuga hafa á sumardvöl að
Löngumýri eru beðnir að
snúa sér til Félagsmálastofn-
unarinnar sem fyrst.
Opið hús verður annað slag
ið í sumar í húsakymnum
skóladagheimilisins að Brekku
götu 8. Verður það 6. og 20.
júlí og einnig 3. og 24. ágúst
kl. 3—6. Verður þar selt kaffi
og spil og töfl liggja frammi.
Hengd hefur verið upp aug
lýsingatafla í afgreiðslu
Tryggimgastofnunar ríkisins,
þar sem sjá .má hvað er á döf
irnni í félagsstarfi aldraðra.
Þriðjudaginn 28. júní 1977
Auglýst var að prestar í
Reykjavíkurprófastsdæmi
myndu í messum sl. sunnu
dag þakka máttarvöldum
fyrir vinnufrið, og má þar
með álykta að almættið
hafi lagt blessun sína yfir
sólstöðusamningana.
Ekki var blekið orðið
þurrt í undirskriftum er
launagreiðendur höfðu knú
ið dyra hjá verðlagsyfir-
völdum til að beiðast þess
að mega náðarsamlegast
velta greiðslubyrðinni
beint út í verðlagið. Eru
ýmsar upphæðir nefndar
og prósentutölur, og sem
dæmi má nefna að gert er
ráð fyrir að prentkostnað-
ur hækki um 20% og ann-
að eftir því.
Er af öllu Ijóst, að láti
ríkisstjórnin eftir hækkana
beiðnum launagreiðenda,
en geri þeim ekki að mæta
auknum launakostnaði
með hagræðingu í rekstri,
þá er allra veðra von í
haust.
Nú stendur prestastefna
fyrir dyrum. Og úr því
prestar, láta sér jarðneska
stundarvelferð þjóðarinnar
svo miklu skipta, þá væri
ekki úr vegi að biðja þá að
helga einn bænardag virkj
un náttúruafla og velferð
þeirra manna, sem þeim
störfum sinna,
Við óskum þess nú heit-
ast að skrattinn láti af því
að hrekkja Kröflunefnd og
leggjast á sveif með óláni
hennar og máttarvöld hætti
að refsa þjóðinni fyrir
frumhlaup nefndarinnar.
En máske er þjóðkirkjan
klofin í afstöðu sinni til
starfs hins gagnmerka vís-
indamanns, Francis Kay
Farrelli, sem hingað kom á
vegum Sálarrannsóknarfé
lags íslands og Iðnaðarráðu
neytisins með galdraprik
sitt, og ekki vildum við að ‘
nýjar „skálholtsdeilur" risu
með klerkastétt.
Heyrst hefur að KA hafi
verið neitað um að fá að
halda útihátíð í Kjarna-
skógi um verzlunarmanna-
helgina. Vildu forráðamenn
félagsins með þessu reyna
áð fá einhvem ferðamanna
straum inn til bæjarins um
þessa mestu ferðahelgi árs
ins, en engin meiriháttar
útihátíð er haldin hér né í
næsta nágrenni. Ferðafólk
leitar því á flesta . aðra
staði, og Akureyringar fara
sjálfir út úr bæhum, allir
sem vettlingi geta valdið.