Dagblað - 04.02.1925, Blaðsíða 2
2
DAGB LAÐ
i
Rússar og Japanar
semja með sér.
Samkvæmt erlendum sím-
fregnum hafa Rússar og Jap-
anar nýlega gert samning með
sér, er þykir næsta einkenni-
legur. Rússar hafa veitt Japön-
um sérleyfi til þess að reka
kola- og olíunámur á eynni
Sachalin, og ef til vill í Siberíu
líka. Er ekki laust við, að ýms-
ar þjóðir líti óhýru auga til
samnings þessa, því áð hér
eftir stendur Japan miklu betur
að vigi en áður í friðsamlegri
verslunarsamkepni, og eins er
þetta lyftistöng undir hernaðar-
stefnu þeirra og vigbúnað. En
um hitt þykir þó mest vert, að
í samningunum hafa hvorir
tveggja skuldbundið sig til þess
að eiga ekki í ófriði saman og
sitja hlutlausir hjá, þótt til
ófriðar drægi með öðru hvoru
ríkinu og einhverri annari þjóð.
Er sennilegt að þetta sé fyrir-
boði þess, að Japanar segi sig
úr þjóðbandalaginu, því að
samningur þessi fer í bág við~
samþyktir bandalagsins. —
Eitt rlki hefir þegar sagt sig
úr þjóðbandalaginu. Er það
Costa Rica.
Lundúnaþoka.
Laust fyrir miðjan mánuð
gerði svo sótsvarta þoku í Lund-
únaborg, að enginn man aðra
eins, og eru þó Lundúnabúar
vanir þoku. Svo var myrkrið
mikið, að ökunienn treystust
ekki til að aka um borgina, og
staðnæmdust í stórhópum, þar
sem þeir voru komnir. Blaða-
maður nokkur gerði það að
gamni sínu, að klífa upp í há-
turn Palskirkjunnar. Var hann
þá kominn upp úr þokuhafinu.
Var turninn eins og »kleltur úr
hafihu«, en svo var dimt, að
ekki sást þaðan niður á kirkju-/
þak.
Flugmaður nokkur kom frá
París þennan dag, og voru með
honum nokkrir farþegar. Segja
þeir hið sama, að glóbjart veð-
ur hafi verið í lofti, en hvergi
sáu þeir móta fyrir Lundúna-
borg, nema að merkistangir og
loftskeytaspýrur stóðu upp úr
þokunni. Var það á lendingar-
staðnum, og tókst flugmannin-
um því að ná landi slysalaust.
Pykir það merkileg hepni, því
að myrkrið var svo mikið, að
hann varð að biða langa stund
eftir hjálp til þess að finna flug-
skálann, sem þar er þó á næstu
grösum.
Skipaferðir og járnbrautaferðir
trufluðust til stórbaga, en slys
urðu þó ekki mörg.
Borgin.
Skrá yflr gjaldendur lil ellistyrkt-
arsjóös í Reykjavík, er til sýnis til
7. febr. á skrifstofu borgarstjóra.
Ranði krossiun. Margir borgar-
búar, hæði karlar og konur, hafa
nú gerst félagar íslenzku deildar-
innar. Verður árgjaldiö innheimt
næstu daga. Peir sem vilja mega
greiða árgjaldið á Endurskoðunar-
skrifstofuna i Pórshamri.
Framtöi um tekju- og eignaskatt,
verða að vera komin í hendur
skattstjóra á Laufásveg 25 í síðasta
lagi laugard. 7. þ. m. Annars verð-
ur mönnum áætlaður skattur skv.
lögum.
Fermingarbörn Dómkirkjunnar
eru beðin að koma i kirkjuna á
morgun (miðvikud.) kl 5 síðdegis.
Vetrarieg't er nú farið að gerast
hér sunnalands, en fram að þessu
heflr verið mjög snjólétt. Pó segja
sveitamenn, að gjafasamt hafl orðið
vegna stöðugra umhleypinga.
íslenzba krónan fer smáhækkandi
pótt hægt fari. Er það ekki undar-
legt þegar þess er gætt hvað út-
flufningur hefir orðið mikiil. Sterl-
ingspund er selt i bönkunum á kr.
27,30, danskar krónur á 101,64
norskar krónur á 87,31 og sænskar
krónur á 153,68.
Slgnrðnr Birkis söngvari heldur
söngskemtun i Nýja Bio í kvöld.
Peir Markús Kristjánsson, Eymund-
ur Einarsson og Gunnar Sigurgeirs-
son, verða honum til aðstoðar.
Veizlan á Sólbangnm verður leik-
in annaö kvöld. Verður barnasýn-
ing kl. 5 og alþýðusýning kl. 81/*.
Stefnir. Fundur verður haldinn
i Landsmálafélaginu Stefni i kvöld.
HbagBlað. l'áZi.
I Árni Óla.
itstj rn- \ G. Kr. Guðmundsson.
Afgloeiðslal Lækjartorg2.
skrifstofa J Sími 744.
Ritstjórn til viötals kl. 1—3 síðd.
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm.
Blaðverð: 10 aura eint.
Par tala þeir Jón Porláksson ráö-
herra og Magnús Jónsson dócent.
Höfnin. Gullfoss fer héðan i dag.
Meðal farþega eru kaupmennirnir:
Jón Björnsson, J. Vetlesen, Sv. Juei
Henningsen, Marteinn Eínarsson og
Kristinn Einarsson.
Goðafoss kemur hingað í dag að
vestan.
ísland fór héöan í gær norður
um land.
Sólarnpprás er í dag kl. 9,3 og
sólarlag kl 4,21.
Tfðarfar. Snjókoma var hér tals-'
verð af og til í gær. Frost var ekki
mikiö og líkt um alt land, nema á
Seyðisflrði var frostlaust, en 7 stig
á Grimsstöðum. Veðurathugunar-
stöðin gerir ráð fyrir vestlægri átt,
með éljagangi sunnanlands og yflr-
leitt hvikulu tíðarfari.
Sjávarföll. Siðdegisflæður kl. 1,50.
Árdegisflæður kl. 2,20.
Benin-nograr nefnist svert-
ingjaþjóðflokkur, sem á heima i
hinum frjóvsömu en óheilnæmu
vatnahéruðum vestan við Niger-
eyrar á Guinea-ströndinni. Árið
1897 þóttust Englendingar þurfa
að hegna þjóöflokk þessum og
fóru herferð inn í landið, sem
áður hafði verið »lokað«. Fundu
þeir þá margar menjar fornrar
menningar þar I landi, svo sem
margskonar listasmiði úr kopar
og fílabeini, gert af miklum hag-
leik. Er talið að smiðisgripir
þessir muni vera frá 16. og 17.
öld. Fluttu Englendingar heim
til sin kynstur af gripum þess-
um og þaðan hafa þeir dreifst
til ýmissa safna viðsvegar um
Norðurálfu. Nú ern Benin-negr-
ar eigi taldir standa öðrum svert-
ingjum framar að neinu leyti.