Dagblað - 06.02.1925, Blaðsíða 2
2
DAGB LAÐ
Ný mynt.
Krónuseðlarnir hyerfa.
Það mun hafa vakið mikla
ánægju, er fréttist, að nú væri
þó svo langt komið, að stjórn
íslands væri uppgefin á krónu-
seðlunum alræmdu og ætlaði nú
að bæta úr skák og láta okkur
fá málm-mynt.
Þegar fyrst var farið að prenta
krónuseðlana, var það gert út
úr neyð. Austurríkismenn byrj-
uðu vist á því að nota svo
smáa bréfpeninga, að slikt hefði
þótt undravert fyrir stríð, en
svo tóku þjóðverjar við, svo
Danir (»kafíirótarseðlarnir«) og
svo koll af kolli, þangað til
röðin kom að íslendingum. Þá
var því fyrst hreyft, hvort ekki
mundi farsælla, að hafa ódýra
málm-mynt í umferð. Því var
ekki trúað, vegna þess vist, að
aðrar þjóðir höfðu ekki byrjað
á slíku. Krónuseðlarnir komu
— og þeir hafa reynst einhver
sá versíi gjaldmiðill, sem til er,
Veldur þar margt um. í fáum
orðum sagt eru ókostir þeirra
þessir:
1. Dýr framleiðsla.
2. Endingarleysi, bæði fyrir
handhafa og ríkissjóð.
3. Smitunarhætta fyrir allan
almenning.
Það er því þakkarvert, að fá
nýrri og betri gjaldmiðil, þótt
seint sé. Dagblaðið veit enn ekki
hvernig myntin verður úr garði
ger — en ekki myndi úr vegi
að »dependera« þar af útlend-
ingum og hafa gat á hverjum
pening og þræða þá upp á
snúru. Yrði það öllum gjald-
kerum til mikils verkléttis —
bæði þeim, er vinna í þágu
hins opinbera og hinna, er
starfa hjá hlutafélögum eða ein-
stökum mönnum.
Yilhjfilmur fyrverandi ríkis-
erfingi í Þýzkalandi, hefir ný-
lega fengið sér til dæmdan
eignarrétt á óðali nokkru í Sle-
síu, sem afi hans átti áður.
Eign þessi er metin á 20—30
miljónir króna.
JjOÍtÍS.
Enski skipstjórinn Loftis, sem
getið var um í blaðinu um dag-
inn, hefir nú skrifað Morgun-
blaðinu afsökunarbréf, vegna
þess að það blað varð fyrst til
þess að birta fregnir af róg-
burði enskra blaða um fanga-
vist hans.
Þar segir svo:
y>Enskir blaðamenn virðast haja
komist y/ir ýmsar frásögur um
hegningaihússvist mína i Reykja-
vik, sem ern ósannar.----------
Frásagnirnar eru að minsta
kosti ekki eftir mér hafðar, því
að sannarlega hefir verið vel
með mig farið«.
Hvaðan kemur nú missögnin?
Skipstjóra þykir líklegast, að
hún sé komin frá skipshöfninni
á enska botnvörpungnum »Vena-
tor«. —
En hvað sem þessu máli við-
víkur ■— mundi eigi rétt, íslands
vegna, að reyna að varna því,
að menn, er taka út begningu
hér, í stað þess að greiða sekt,
geti sent út úr hegningarhúsinu
til útlanda rógburð um oss og
mál sitt, gert þar með íslenzk-
um stjórnarvöldum mikinn ó-
greiða og unnið landinu sjálfu
meir eður minna til miska.
Borgin.
Sjévarföll. Síðdegisflæöur kl. 3,40.
Ardegisflæöur kl. 2,50.
Tfðarfar. Hér var í gær 5 stiga
frost, jafnt í Seyðisfirði, en hvergi
meira á landinu, nema i Grindavik
og á Grimsstöðum. í Grindavík var
9 stiga frost og á Giimsstöðum (á
Hólsfjöllum) 10 stiga frost. Sam-
bandslaust var við Vestmannaeyjar.
Norðlæg átt allsstaðar og allhvöss
á sumum stöðum. Hrið á Norður-
landi. Búist við óstöðugu veðri enn
um hríð.
Heiðnrsmerki. Hinn 4. janúar voru
þeir Chr. Iversen Mondrup aðal-
fulltrúi og Oluf Cecilius Hollnagel-
Jensen fulltrúi, báðir í póststjórn-
inni dönsku, sæmdir stórriddara-
krossi Fálkaorðunnar.
Einknleyflsbeiðiii. Norskur lyfsali,
Dorotheus Andrcas Hansen, hefir
gffi HðagGlað.
( Árni Óta.
Ritstjórn: | g. Kr. Guðmundsson.
Afgreiðslal Lækjartorg 2.
skrifstofa j 5>ími 744.
Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síðd_ v
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm.
Blaðverð: 10 aura eint.
sólt um einkaleyfi hér i landi um
aðferð við framleiðslu og með-
höndlan á fisklýsi eða öðrum olí-
um úr sævardýrum. Umsóknin er
til sýnis á skrifstofu atvinnu- og
samgöngumálaráðuneytisins.
Es. Jón Forseti, sem legið hefir
til viðgerðar hér, fór á saltfiskveið-
ar i gær.
Bánaðnrþlngið var sett í fyrradag.,
Fulltrúar eru 12 auk ráðunauta og
stjórnarnefndar. Fyrsti fundur var
háður í fyrradag. Sama dag skilaði
nefnd sú, er hefir haft landbúnað-
arlánamálin til athugunar, tillögum
sinum. — Af öðrum málum sem
fyrir þinginu liggja má nefna: fyrir-
komulag búpeningssýninga, tillögur
um vátryggingar búpenings o. fl.
Jnrðnrför Ólafar Þorsteinsdóttir,.
konu Benonýs Benonýssonar, en
systur hinna góðkunnu Bakkabúðar-
bræðra, fer fram á morgun frá frí-
kirkjunni. Húskveðja hefst kl. 1, á
heimili hinnar látnu, Vesturgötu 22.
Goðnfoss fer héðan í dag kl. 2:
vestur og norður um land til
Kaupm.hafnar.
Viðkomustaðir: ísafjörður, Sauð-
árkrókur, Sigtufjörður, Akureyri,
Húsavík, Pórshöfn og Seyðisfjörður.
Leikhúsin. Gamta Bio. Konuhefnd.
Sjónleikur í 5 páttum, eftir Robert
Dinesen. Aðalhlutverkið leikur Lya
de Putti.
Nýja Bio. Hvalveiðarinn fr á
Nýja Englandi. Kvikmynd i 9 þátt-
um. Hún gerist árið 1850 i New
Betford, og fara viðburöirnir að
mestu fram á sjónum. Eiga menn
þar kost á að sjá, hvernig hvalveið-
ar voru stundaðar um miðja öld-
ina sem leið við Austurströnd
Afriku.
Hnnstrigningnr verða leiknar í
k\»öld.
Breiðbolt. Bæjarstjórnin hefir aug-
lýst jörðina Breiðhoit lausa til á-
búðar frá næstu fardögum. Sjö
menn sóttu um ábúð, en því hefir
verið frestað, að taka ákvörðun í
málinu, þangað til athugað hefir
verið, hvernig bærinn ætlar að hag-
nýta sér jörðina.