Dagblað - 25.02.1925, Blaðsíða 2
2
DAGBLAÐ
er flytur slíkar auglýsingar, skal
sæta 100—1000 kr. sekt fyrir
hverja auglýsingu, en sé enginn
ábyrgðarmaður, skal ábyrgð beint
gegn prentsmiðju þeirri, erprent-
ar blaðið. Frv. er komið fram
eftir ósk Stórstúkunnar.
Komið er fram í Nd. frv. er
bannar mönnum að flytjast úr
einu framfærsluhéraði í annáð,
nema með samþykki sveitar-
stjórnar eða bæjarstjórnar þar
sem hinn nýi dvalarstaður á að
vera. Undanþegnir þessum á-
. kvæðum eru þó starfsmenn
ríkisins, menn sem eiga 5000 kr.
skuldfa’usa' eign, og vistráðin
ársbjú. í fyrra var samskonar
frv. borið fram, en varð þá eigi
útrætt.
. Tryggvi Þórhallsson ber fram
frv. í Nd. um það að á tíma-
bilinu 1926—1930, að báðum
árum meðtöldum, annist ríkis-
stjórnin eða láti annast, í sam-
ráði við Búnaðarfélag íslands,
útvegun á tilbúnum áburði fyrir
hreppa- bæjarfélög, búnaðarfé-
lög og samvinnufélög bænda.
Meðan ríkisstjórnin annast út-
vegun tilbúins áburðar, skulu
skip ríkisins annast flutning
hans endurgjaldslaust bæði frá
útlöndum og milli og til allra
þeirra hafna, sem þau annars
koma við á.
Sé verð hins keypta áburðar
greitt við móttöku, selst varan
álagningarlaust á öllum við-
komustöðum skipanna. Heimilt
er að lána vöruna í alt að 6
mánuði, Mg má þá leggja á 5%.
Rekstrarfé til verslunar þess-
arar og allan kostnað við fram-
kvæmd laga þessara greiðir
ríkissjóður.
í greinargerð segir: Frv. þetta
er nú á sínu sviði, alveg hlið-
stætt gaddavírslögunum, eins og
þá var ástatt. — Þá var nýlega
farið að nota það ágæta og ó-
dýra girðingarefni (gaddavirinn),
og einhver mesta nauðsyn land-
• búnaðarins auknar girðingar.
Gaddavírslögin áttu áreiðanlega
mjög mikinn þátt í því, hversu
stórmiklar breytingar urðu í þvf
efni á næstu árum. Hlunnindi
þau, sem lögin veittu bændum,
voru á engan hátt misnotuð. —
Nú er það lýðum Ijóst, að aðal-
verkefni bændastéttariúnar á
þessum árum og næstu er að
auka túnræktina. En meðan
bændur hafa engan annan áburð
en búfjáráburð, eru túnræktinni
settar mjög þröngar skorður.
Hinsvegar hafa nú um allmörg
ár verið framkvæmdar rækileg-
ar tilraunir um notkun tilbúins
áburðar, og einstakir bændur,
fáir þó, hafa fengið allmikla
reynslu í þessu efni.
Búnaðarþingið hafði málið til
athugunar og samþ. frv. þetta.
Borgin.
Sjávarföll. Árdegisflæöur: kl. 7,0.
Síðdegisflæöur kl. 7,17.
Loknnartimi sölabúða. Bjarni frá
Vogi heflr komið með breytingar-
tillögu við það frv., og gengur hún
í pá átt, að konfektbúöir skuli und-
anþegnar lokunarskyldu.
Styrk til skálda og listamanna
héfir nýlega verið úthlutað. Þessir
hafa fundið iiáð fyrir augum stjórn-
arinnar: Guðmundur Friðjónsson
1200 kr,, Jakob Thorarensen, Davíð
Stefánsson, Páll ísólfssbn, Sigvaldi
Kaldalóns 500 kr. hver, Stefán frá
Hvítadal, Benedikt Elfar, Einar Ein-
arsson, Jón Ásgeirsson, Guðm.
Kristjánsson, Pórður Kristleifsson,
Ásm. Sveinsson, Fjnnur Jónsson,
Guðm. Einarsson, Leifur Kaldal,
Kristinn Andrésson og Hjálmar
Lárusson 300 kr. hver, Sig. Skag-
feldt, Nina Sæmundsen og Gunnl.
Blöndal 400 kr. hvort. Alls er út-
hlutað 8000 kr.
Mercnr kom hingað í fyrri nótt.
Með skipinu komu þeir Krejns
vindlakaupmaður og Henriksen sild-
arkaupmaður frá Seyðisfirði.
Hávarðnr ísllrðingnr, hinn nýi
botnvörpungur ísfirðinga, kom hing-
að í gær frá Englandi.
Nætnrlæknir i nótt Jón Hj. Sig-
urðsson. Vörður í Reykjavíkur
Apóteki.
Leikliúsið. Á morgun verður sýnd-
ur þar nýr leikur: Candida, eftir
írska skáldiö Bernhard Shaw.
Jarðarför Björns Gunnlaugssonar
gullsmiðs fer fram á morgun.
Eriudi til Fjárveitinganefndar
neöri deildar Alþingis eiga aö vera
komin nefndinni í hendur fyrir
1. marz.
Miðuikud. tf) — A 1' árg.
25. febr. 2í. tölubl.
) Arni Óla.
Ritstjórn: j g. Kr. Guðmundsson.
Afgreiðslaj Lækjartorg 2.
skrifstofa j Sími 744.
Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síðd.
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm.
Blaðverö: 10 aura eint.
Pegar stórborgin sefur
eða
Þegar skyldan kallar.
Mjög fallegur sjónleikur í
6 þáttum.
Aðalhlutverk leika:
Ralph Lewis og
Claire Me. Dowell.
Tfðarfar. í gær var hiti um alt
land 1—5 stig. Sambandslaust var
þó við ísafjörð, svo að ekkert
skeyti kom þaðan. Loftvægislægð
suður af íslandi og búist við suð-
lægri átt allhvassri fyrir sunnan
land og úrkomu á Suður- og Aust-
urlandi.
íslenzkum matreiðslukennurum
hefir verið boðið að sitja á fundi
sem haldinn verður í Helsingfors í
öndverðum ágúst í sumar. Verða
þar saman komnar konur frá öllum
Norðurlöndum, þær, er hafa kent
matreiðslu og hússtjórn.
Læknarnir Jón Kristjánsson og
Magnús Pétursson hafa legið veikir
undanfariö.
Dánarfregn. Frú Guðrún Porláks-
dóttir, ekkja Sigjarðar heit. frá Gröf
Guðmundssonar, lézt í fyrradag hjá
dóttur sinni Guðrúnu, sem býr á
Leynimýri hér utan við bæinn. Var
Guðrún heitin komin á tíræðis ald-
ur, mesta sómakona og margra
barna móðir. Synir hennar hér í
Rvík eru þeir Sigurjón og FIosi Sig-
urðssynir og Guðmundur á Lög-
bergi.
Karlsefni, Jón forseti og Otur eru
nýkovnnir af veiðum, allir með lít-
inn afla.
tingTÍsa.
Petta er ekkert yfirvarp
undir kaldan vetur,
þó að rjúpur safni i sarp,
— sama gerir Pétur.
Sálarrannóknarfélagið hefir fund
annað kvöld. Par flytur Jakob J.
Smári fyrirlestur um frægan þýzkan
miðil.