Dagblað - 10.03.1925, Side 3
DAGBLAÐ
3
Halldór Sigurðsson, háseti, frá Akranesi.
Óiafur Erlendsson, háseti, Hafnarfirði.
ól. Bjarni Indriðason, háseti, frá Patreksfirði.
Árni Jónsson ísfjörð, háseti, Þingholtsst. 15.
Jón E. ólafsson, hás., frá Keflavik, Barðastrs.
Einar Hallgrímsson, háseli, Hafnarfirði.
Magnús Jónsson, loftskm., frá Flatey.
Jón Magnússon, háseti, Grettisgötu 53 A.
Vigfús Elisson, háseti, Hafnarfirði.
Óli Sigurðsson, háseti, frá Norðfirði.
Egill Jónsson, háseti, Hafnarfirði.
Óskar V. Einarsson, háseti, Vesturgötu 30.
Kr. Karvel Friðriksson, hás., Litla Seli. Rvik.
Jóhannes Helgason, hjálparmatsv., Hafnarf.
Auk þess voru á skipinu 6 Englendingar.
Enski skipstjórinn hét C. Beard.
Sorgarathöfn.
Pögn! — Hið svarta sorgarskg,
er svifið hefir norðri í,
nj\ byrgir alla útsýn vona
um afturheimt landsins góðu sona;
og reiðarslagsins dómsorð dynur:
Dáinn er faðir, bróðir, vinur!
Og harmi lostin hnípir þjóð,
til himins siíga andvörp hljóð.
Við hjarta íslands hneit
sá hjör er hvassast beit.
Sorgarathöfn fer fram hér i bænum i dag
eins og skýrt var frá í Dagblaðinu á sunnu-
daginn. Gengst bæjarstjórn fyrir þvi og full-
trúar útgerðarmanna og sjómanna í samein-
ingu. Verður athöfnin með svo miklum há-
tíðleikablæ, að slíkt hefir ekki þekst hér á
landi áður. Parf ekki að efa, að hver einasti
maður hér í bæ verði vel við þeim tilmæl-
um, er fram komu i tilkynningu borgarstjóra,
því að svo hefir þessi sorgaratburður altekið
hugi manna.
Öll vinna og öll umferð á sjó og landi á
að stöðvast kl. 2 stundvíslega og fullkomin
kyrð að haldast i 5 minútur. Sérhver maður
á að staðnæmast þar sem hann er þá, og
allar samræður eiga að falla niður bæði úti
og inni um allan bæ. Sérstaklega má ekki
heyrast véla og vagnaskrölt, eða hljóðfæra-
sláttur af neinu tagi. Hver minsti hávaði sem
er, truflar þá samstilling sem hugir manna
eiga að/ná á þessari alvörustund.
Minningarguðsþjónustur verða siðan haldn-
ar bæði í Dómkirkjunni og Fríkirkjunni kl.
3 og verður reynt, eftir mætti, að sjá svo
um, að ástvinir hinna látnu komist þar að
á undan öðrum.
í Dómkirkjunni talar sira Bjarni Jónsson
og í Frikirkjunni sira Árni Sigurðsson.
Að sjálfsögðu eiga allar skemtanir, hverju
nafni sem nefnast, að falla niður í dag og
ennfremur ætti öll veitingahús að vera lokuð
og aðrir samkomustaðir.
Á Alþingi verða engir fundir í dag, en for-
seti sameinaðs þings og formenn sjávarút-
vegsnefnda beggja deilda taka þátt í sorgar-
athöfninni i Dómkirkjunni.
Skeyti írá
II. II. líoilllllgillllixi.
Prins Knud viðstaddur
sorgaratliöfnina.
Svolátandi skeyti barst forsætisráðherra í
gær frá konungi:
„Drotningin og feg vottum aÖ-
standendum hjartanlega hluttekningu.
Sonur minn verður fyrir mina
hönd viðstaddur sorgaralhöfninaCí.
í Hafnarfirði
fer fram sorgarathöfn með líku sniði og hér.
Verður timinn þar gefinn til kynna með
klukknahringingum, þá er athöfnin skal
hefjast.
Öllum búðum og skrifstofum verður lokað
þar á timabilinu kl. 1—5.
Samkoma
veröur haldin í Góðtemplarahúsinu í Reykja-
vík í kvöld, 10. marz, kl. 8^/a. Aðstandendur
og Templarar velkomnir og beðnir að hafa
með sér sálmabækur.
Sira Árni prófastur Björnsson talar.