Dagblað - 10.03.1925, Page 4
4
DAGBLAÐ
Mb. Sólveig.
Á hann hefir verið minst hér í blaðinu
áður og sagt frá því hverjir menn voru á
honum. Eins og kunnugt er af frásögn Dag-
blaðsins voru sex menn á þeim bát og fórst
hann í sama rokinu og botnvörpungarnir.
Samskot.
Bæjarstjórnir Reykjavikur og Hafnarfjarðar
gangast, í samráði við fulltrúa útgerðarmanna
og sjómanna, fyrir samskotum til aðstand-
enda sjómannanna, er fórust 7.—8 febr. Sam-
kotin hefjast kl. 47a síðd. í dag, og verður
þeim veitt viðtaka í báðum bönkunum og í
Sparisjóði Hafnarfjarðar kl. 4V2—7. Verður
þessum peningastofnunum haldið opnum í
þessu skyni einu. Innstæðueigendur eiga kost
á að taka út fé til samskotanna á þessum
tíma, en að öðru leyti fer ekki nein af-
greiðsla fram.
Þess er fastlega vænst, að allir, sem það
geta, leggi skerf sinn fram þegar í dag.
Ýmisleg-t um skipin.
Af skipshöfninni á »Leifi heppna« voru 12
menn kvæntir og láta eftir sig 31 barn.
Helgi Andrésson var faðir 1. stýrimanns.
Hann var gamall þilskipsformaður að vestan.
Fyrir mörgum árum hvolfdi undir honum
hákarlaskipi; velti skipið sér um kjöl og
reisti sig aftur á hinn bóginn, og misti Helgi
engan mann. Mun slikt eins dæmi hér á
landi og þótt víðar sé leitað. — Magnús
Brynjólfsson og Ólafur Brynjólfsson voru
bræður. Ólafur Gíslason var bróðir Guðm.
G. Hagalíns skálds.
Flestir af þessum mönnum voru á bezta
aldri. Frír bræður frá Móum á Kjalarnesi
voru á »Robertson«, Björn, Sigurður og
Bjarni Árnasynir. Hinn siðastnefndi lætur
eftir sig konu og 7 börn ung. Erlendur Jóns-
son lætur eftir sig konu og 5 börn, Fórður
Fórðarson konu og 10 börn. Jón Magnússon
konu og 3 börn, Egill Jónsson konu og 6
börn, Bjarni Eiríksson konu og barn, Kr.
Karvel Friðriksson konu og barn, Árni Jóns-
son ísfjörð 3 börn, en tvö þeirra eru upp-
komin. Einar Magnússon skipstjóri lætur
eftir sig ekkju og 2 börn. Bróðir hans, Gunn-
laugur, var á skipi með honum. Bjarna Ei-
ríksson tók út af »Kára Sölmundarsyni« í
fyrra, og var það sérstakt lán, að hann náð-
ist þá lifandi. — Jón Ólafsson var bróðir
Guðbjarts Ólafssonar skipstjóra.
Það er eftirtektarvert, hve margir af þeim,
sem farist hafa, áttu heima á Vestfjörðum eða
voru ættaðir þaðan. Sá landsfjórðungur mun
að visu hafa lagt drýgstan skerf í mannafla
botnvörpunganna, en manni hrýs hugur við
að minnast þessa og samtímis þess inann-
tjóns, er þar hefir orðið siðan í haust.
»Leifur heppni« var smíðaður í Selby hjá
Cochrane & Sön, er smiðað hefir marga
hinna íslenzku botnvörpunga. Skipið var 140
feta iangt og 24 feta breitt, og var að rúm-
máli 333 smál.
Þegar góður og gegn maður deyr, er það
venja að rita um hann eftirmæli. Nú eru
þess engin tök, þar sem svo margir góðir
menn, er ætti hver að fá sitt eftirmæli, falla
frá i senn. En væri það ekki vel við eigandi,
að sjómannafélagið og útgerðarmannafélagið
gæfi út minningarrit um menn þessa og yrði
þar getið helztu æfiatriða þeirra?
íslands ógœfu
uerðr alt að uopni.
Hrynja í ual
hraustir drengir.
En minning lija
lengi skal.
— Farið heilir
í friði Drottins!
Ritstjóri: Árni Óla.
Prentsmiðjan Gutenberg.