Dagblað

Tölublað

Dagblað - 22.03.1925, Blaðsíða 2

Dagblað - 22.03.1925, Blaðsíða 2
2 DAGBLAÐ „Konungsríki“ líöni* undir lok. Allir ibúarnir á Bardsey eyju í Cardigan-ílóa hafa ásamt »kon- ungi« sinum, Love Pritchard, ákveðið að yfirgefa eyna og flytjast til meginlandsins. Var þessi ákvörðun tekin á »ríkis- ráðsfundi«. Konungurinn er nú 83 ára gamall og elzti maður á eynni. Fyrir 30 árum voru 100 íbú- ar á Bardsey, en nú eru þeir ekki nema 45. Atvinnuvegir þeirra hafa verið akuryrkja og fiskveiðar. það eru aðeins 2 enskar míl- ur milli eyjar og meginlands, en bátar, sem fara í milli, verða að fara 5 mílur, því að straum- ar eru þar afarmiklir, og stund- um komast eyjarbúar ekki til lands vikum saman, ef hvast er. Er oft svo ilt í sjóinn, að jafnvel vélbátur konungs getur ekki farið yfir sundið. Þessar erfiðu samgöngur eru þess vald- andi, að eyjarskeggjar hafa nú ákveðið að flytjast til lands. Grestalxeimiliö Keykjavík. Hafnarstræti 20. 1. fl. hótel. - Miöstöövarhitun. — Bað. — Kaífisalurinn opinn frá kl. 7.te árd. — Heimabakaö kaffibrauö og pönnukökur. Sigfússon á Kornsá. Jón H. Þorbergsson ritar grein er heitir: Ræktun og þjóðmenning. Og fleira er í hefti þessu. 2. Brotnir geislar, ljóðabók eftir Stein Sigurðsson er samdi leikritið Storma, sem flestir kannast nú við. Ljóðabók þessi er 11 arkir að stærð, og mun það dómur margra að hún hefði mátt vera miklu minni. Þó lýsir öll bókin góðum manni og vel- viljuðum, og margt er þar frem- ur iaglega sagt, en sórlýti eru að öllum hinum mörgu þanka- strykum sem þar eru; hefði vel mátt komast af án þeirra. Ann- ars er bókin læsileg og frágang- ur hinn bezti. Góð mynd af höfundinum fylgir henni. Sunnud. 22. marz. ÍDagðíað. 1. árg. 43. tölubl. Ritstjórn: Afgreiöslat Lækjartorg 2. skrifstofa J Sími 744. Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síöd. Prentsmiöjan Gutenberg hf. Auglýsingaverö: Kr. 1.50 pr. cm. Blaðverð: 10 aura eint. Áskriftargjald kr. 1,50 á mánuði. Arni Óla. G. Kr. Guðmundsson. NYJA BIO Ást og æfintýr, Ljómandi fallegur sjón- leikur í 5 þáttum eftir Gustav Molander Aðalhlutverk leika: Vera Schmitterlöv og Nils Ahren Sænskir ágætisleikendur. Sýningar kl. 6, 7V2 og 9. Börn fá aðgang hl. 6. Bækur. Þessar bækur hafa Dagblað- inu verið sendar: 1. Búnaðarrit 39. árg. 1—2. Er þetta hið fróðlegasta og skemtilegasta rit og hefir blaðið þegar áður gefið lesendum sín- um smá sýnishorn þess. Fyrsta greinin er um Jónas heit. Ei- riksson skólastjóra á Eiðum, önnur grein um Skeiðaáveituna. Pá ritar Kristleifur bóndi Þor- steinsson á Stóra-Kroppi í Borg- arfirði mjög merkilega grein um viðarkolagerð, eins og hún tíðkað- ist í ungdæmi hans. Viðarkola- gerð er nú horfin með öllu hér á landi, og er það því hinn mesti fengur að fá ritgerð um þessa atvinnugrein, ritaða af jafn glöggvum manni. Og ekki trúir blaðið öðru, en að þeir sem safna orðum og hugtökum ís- lenzkrar tungu finni þar ýmislegt sem þeir ekki vissu um áður. — Þá er smágrein eftir Björn Borgin. SjáYarföll. Síðdegisháflæður kl. 4,18. Ardegisháflæður kl. 4,40 i fyrra- máliö. Nætnrlæknir er í nótt Daníel Fjeldsted, Laugav. 31. Sími 1561. NætnrYÖrðnr í Reykjavíkur Apó- teki. Höfnin. Snorri goði kom af veið- um í gær með 95 tn. lifrar. Nord- polen fór til Englands í gærkvöldi. Clementina fór út á veiðar i nótt. Es. Diana fer héðan vestut og norður um land til Noregs næstk. priöjudag. Klrkjnhljómleika heldur Frið- þjófur M. Jónasson kl. 9. Spilar lög eftir frægustu tónsnillinga. Illjómleikar á Skjaldbreið í dag kl. 3—4‘/« og kl. 9-11. Aðalfandur Kaupfélags Reykjavik- ur veröur haldinn í dag í Good- templarahúsinu kl. 5]/t siöd. InnheimtuLStofa Islands Eimskipafél.húsinu 3. hæð. Semur sérstaklega um alla mánaðarinnheimtu fyrir versl- anir. Tekur einnig einstaka víxla og aðrar skuldakröfur til innheimtu kl. 10—1 á daginn. Óli Ásmundsson múrari tekur að sér allskonar múr- verk, gerir kostnaðaráætlanir, sem hann stendur við, sér um allsk. húsabyggingar. Margra ára reynsla á öllu sem bakarí- um og bakaraotnum við kem- ur. Útvegar allskonar bakara- ofna uppsetta eftir pöntun. Eiigiun veit — fyr en reynir hve hagkvæmt er að versla við Ólaf Jóhannessoo, Spítalastíg 2.

x

Dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.