Dagblað - 07.04.1925, Blaðsíða 2
2
DAGBLAÐ
kerfl um aukna þekkingu á ís-
landi og Færeyjum í Noregi.
í lok fundarins var kosin ný
stjórn fyrir félagið, og var Rolf
Thommesen, ritstjóri »Tidens
Tegn« kosinn formaður. Aðrir
stjórnarmenn voru kosnir: Thor-
stein Christensen, Valtýr Alberts-
son læknir, E. Eyolfsson og E.
Berdal (sem hér hefir verið og
er kunnur íslandi og íslending-
um, vegna starfsemi sinnar fyrir
vátryggingarfélagið »Andvaka«,
sem hefir útbú hér í Reykjavík).
Varamenn í stjórn voru kosnir:
E. Breiðsvall, Gustav Indrebö
og Barði Guðmundsson. Endur-
skoðendur: stúdentarnir Vaagslid
og Molaug.
í fundarlok þakkaði Rolf
Thommesen ritstjóri, professor
Liestöl, fyrv. formanni, fyrir
starf hans í þágu félagsins með-
an hann hafði haft stjórnina á
hendi.
Erindi
send Alþingi.
Áskorun almenns stúdenta-
fundar í Reykjavík, 5. apríl, um
stúdentagarðsmálið.
Áskorun sýslunefndar Dala-
sýslu um að leyft verði að flytja
inn coopersduft til sauðfjárböð-
unar.
Álit sýslunefndar Dalasýslu
um frv. um húsmæðraskóla á
Staðarfelli.
Ásgeir prestur Ásgeirsson í
Hvammi sækir f. h. ibúanna í
Klofnings og Skarðshreppum,
um íjárveitingu til kláfFerju á
svonefnt Krosssund.
Skrifari Edisons.
Fátæknr piltur verður
miljónamæringor.
Árið 1859 fæddist í London
maður sem heitir Samuel InsuII.
Hann var af fátæku foreldri
kominn, en er hann hafði aldur
til, vann hann fyrir sér í skrif-
stofu sem hraðritari og fekk að
launum 1 sterlingspund á viku.
En er hann vár 22 ára gamall
misti hann þessa stöðu vegna
þess, að annar piltur, sem lagði
fé í fyrirtækið, bauðst til að
gera það fyrir ekki neitt. Insull
afréð þá að fara íil Ameríku.
Hann hafði ekki dvalið þar
mjög lengi, er henn fékk stöðu
sem skrifari Edisons, og áður
en langt um leið, var hann orð-
inn hægri hönd hins mikla hug-
vitsmanns. Smám saman vann
hann sig svo áfram, og er nú
forstjóri allrar rafleiðslunnar í
Chicago, allrar gasleiðslu og loft-
brauta í borginni. Hinn fátæki
piltur, sem fór til Ameríku fyrir
45 árum, er nú orðinn miljóna-
mæringur.
Fegar Bandaríkin gengu í
stríðið var honum falin yfirum-
sjón allra hermála í Illinois-ríki,
en þar er Chicago höfuðborgin.
Borgin.
Sjávarföll. Háflæöur eru kl. 4,28
í dag. Árdegisháflæður eru kl 4,45
í fyrra málið.
Nætnrlæknir er í nótt Gunnlaug-
ur Einarsson Slýrimannastíg 7
Sími 1693
Næturvörðnr er í Reykjavíkur
Apóteki.
Höfnin. Pessir botnvðrpungar
hafa komið inn núna um helgina:
Karlsefni með 95 tn., Glaður með
107 tn., Menja með 60 tn. og Hilmir
með 90 tunnur.
E s. Skald. Kolaskip til Kveldúlfs
kom í gær.
Peningar:
Sterl. pd.............. 27,05
Danskar kr............ 103,80
Norskar kr............. 89,94
Sænskar kr............ 152,69
Dollar kr............... 5,67
Brnni. Á iaugardagskvöldið kom
upp eldur i húsinu á Lindargötu
14 A. Slökkviiiðið var þegar til kvatt
og tókst þvi á skammri stundu að
kæfa eldinn, enda þótt hann væri
oröinn talsvert magnaður; í húsi
þessu býr Brynjólfur Jónsson. Místi
hann tvo sonu sina á »Leifi beppna«
fyrir skemstu. Er sjaldan ein bára
stök og sannast hér, að nú skuli
þau hjón hafa hent þessi raun.
Hentaskóiinn. Lúðvik Guðmauds-
syni stud. theol. hefir*verið falið
IÐagSIað'
{Arni Óla.
G. Kr. Guðmundsson.
Afgr0e>ðsla 1 Lækjartorg 2.
skrifstofa J Sími 744.
Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síðd.
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Auglýsingnverð: Kr. 1.50 pr. cm.
Blaöverð: 10 aura eint.
Áskriftargjald kr. 1,50 á mánuði.
að taka viö kenslu í náttúrufræði i
Mentaskólanum i stað dr. Helga
heitins Jónssonar.
Kjöttollsmálið heitir bæklingur
er gefinn hefir verið út að tilblut-
un Stjórnarráðsins. Er hann sam-
inn af Sveini Björnssyni fyrv. sendi-
herra. Er þar lýst öllum gangi þess
máls og er bæklingurinn hinn fróð-
legasti fyrir þá, sem ekki eru mál-
inu kunnugir áður.
Mercur er væntanlegur hingað i
dag.
Isiand er væntanlegt hingað i
kvöld eða nótt.
Kolaskip kom til Viðeyjar i
morgun.
Ótflntningur. Samkv. skýrslu frá
Gengisnefndinni hefir útflutniegur
ís[enzka afurða í marzmánuöi num-
ið kr. 3,386.204. Par af er andvirði
fyrir verkaðan fisk 1,355,977 og ó-
verkaðan fisk 1,446,183. Andvirði
fyrir lýsi nemur kr. 300,375 (f.
366,282 kg.) og fyrir gærur 116,766
kr. Kjöt kr. 38,920, garnir kr. 25,200,
ull kr. 41,661, graðaostur kr. 5294,
prjónles kr. 1662, rjúpur (6538 tals-
ins) 3454 kr„ hrogn 16,805 kr,, síld
16,380 kr.
Gullfoss fer til útlanda í kvöld.
Svanur kom í nótt frá Eyrar-
bakka. í fylgd með honum var
Arthur Fanney, sem líka hafði farið
þangað suður, en laskast þar eitt-
hvað. Svanur hleöur i dag til
Stykkishólms og Búöardals og fer
áleiðis þangað í kvöld.
Aflglý8ingar borga sig. Inn-
anríkisráðherra Breta, Sir Wil-
liam Joynson-Hicks, sagði ný-
lega í ræðu, sem hann hélt, að
það væri auglýsingar, er sköp-
uðu heillavænleg skifti meðaí
þjóðanna. »Heimurinn lifir á
auglýsingum«, sagði hann.