Dagblað - 15.04.1925, Page 2
2
DAGB LAÐ
jafnaðarmenn, miðflokkurinn og
lýðveldismenn muni sameinast
um einn mann, til þess að
sporna við því að Dr. Jarres
komist að, en hann veröur þá
studdur af þjóðflokknum, Luden-
dortssinnum og júnkurum. Við
endurkosningu þarf ekki helm-
ing greiddra atkvæða til þess að
ná kosningu, heldur nægir þá
einfaldur meiri hluti.
Nú hefir það frézt, að Hind-
enburg muni verða í kjöri við
næstu kosningar.
„Einu e»inni
var“ —
Eins og flestir bæjarbúar vita,
er kominn hingað til bæjarins
einn af þektustu og beztu leik-
urum Dana, Adam Poulsen leik-
hússtjóri. Pessa viku las hann
upp í Nýja Bio, en í næstu
viku byrjar hann að leika með
Leikfélagi Reykjavíkur í hinu
þekta leikriti H. Drachmanns:
»Einu sinni var« — (»Der var
engang«). Leikur þessi er ein-
hver sá vinsælasti, sem sýndur
heflr verið í Danmörku, og enda
öllum Norðurlöndum. Árlega er
hann sýndur í kgl. leikhúsinu
í Khöfn, og má segja, að hvert
mannsbarn þar þekki hann og
hafi jafnan ánægju af að sjá
hann. Að hið sama verði upp
á teningnum hér, er alveg vafa-
laust.
Hugðnæmara og skemtilegra
leikrit er naumast til. Gullinn
æfintýrablær hvílir yfir því öllu,
og mikið dauðyfli má sá mað-
ur vera, sem ekki hlær sig mátt-
lausan að því. Pó er ótalið það
fegursta, og það er músik
Lange-Mullers. Pó hann hefði
aldrei samið annað en þetta,
væri það nægilegt til að halda
nafni hans á loft um aldur og
æfi, enda talið eitt hans bezta
verk. Allir Islendingar þekkja
kvæði Porst. Erlingssonar: »Pú
ert móðir vor kær«. Pað er til
orðið á þann hátt, að hann var
í kgl. leikhúsinu i Khöfn og sá
»Einu sinni var« —, og varð
svo hrifinn, að hann fór beint
heim og orti í »stemningunni«
þetta fagra kvæði við eitt af
lögunum úr leiknum (Jóns-
messuljóðið). í leiksýningunni
spilar hljómsveit undir stjórn
Sigf. Einarssonar og með Pór-
arinn Guðmundsson fiðluleikara,
tvíefldan úr utanför sinni, í
broddi fylkingar. Söngur er þar
einnig mikill, einsöngvar, kvenna-
kór, karlakór og blandað kór,
og er það alt sungið af úrvali
af söngfólki bæjarins.
Aðalhlulverkið, prinsinn af
Danmörku, leikur Adam Poul-
sen, og þó ekkert væri annað,
ætti það að vera nægilegt til að
fylla húsið kvöld eftir kvöld.
Hann hefir einnig með fádæma
atorku og dugnaði leiðbeint
(»instruerað«) hinum leikend-
unum og ekki unnað sér nokk-
urrar hvíldar frá því hann sté
á land. Alla búninga í leiknum
hefir hann komið með frá
Kaupm.höfn, og öll tjöld eru
eins vönduð og mögulegt er hér.
Einn galli er þó á þessu, og
hann er sá, að ekki helmingur
bæjabúa, sem langar að sjá
leikinn, getur komist að. Vegna
þess að Adam Poulsen dvelur
hér aðeins skamma stund, verð-
ur leikurinn aðeins sýndur í
rúma viku. Pað er því vissara
að tryggja sér aðgöngumiða í
tíma, því að áreiðanlega verður
um þá rifist, þótt verð þeirra sé
nokkru hærra en venjulega.
V.
Borgin.
Sjárnrföll. Háflæður eru kl. 11,3
i kvöld. Árdegisháflæður eru kl.
11,45 á morgun.
Nætnrlæknir er i nótt Ólafur
Porsteinsson, Skólabrú 8. Sími 181.
Nœturvörðnr er í Laugavegs
Apóteki.
Mr. Mnnsfleld, enski kvikmyndar-
inn, og Stefán Stefánsson kennari,
voru meðal farþega með íslandi
norður um núna siðast.
Var ferðinni fyrst heitið til Akur-
eyrar og ætlar mr. Mansfield að
taka þar kvikmyndir og annars
staðar á leið sinni. Stefán Stefáns-
son verður leiðsögumaður hans
meðan hann dvelur hér á landi.
HbagBlað.
{Arni Óla.
G. Kr. Guðmundsson.
Afgreiðsla t Lækjartorg 2.
skrifstofa J 744.
Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síðd,
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm.
Blaðverð: 10 aura eint.
Áskriftargjald kr. 1,50 á mánuði.
Böddin úr
turninum.
Sjónleikur í 7 þáttum,
tekinn á kvikmynd af
ameríska félaginu First
National.
Aðalhlutverkið leikur:
Norma Talmagde.
Sýning í kvöld kl. 9i
Trúlofnn sína opinberuðu á laug-
ardaginn þau ungfrú Kristrún Ey-
vindsdóttir frá Kjóastöðum í Bisk-
upstungum og vegagerðarstj. Jónas
Magnússon bóndi í Stardal á Kjal-
arnesi.
Snorri goði kom af veiðum í gær
með 110 tunnur lifrar. Jón forseti .
kom líka í gærkvöldi. Peir fóru
báðir aftur út á veiðar i nótt.
Ms. Srannr fer til Breiðafjarðar í
dag kl. 5. Pessi ferð kemur í stað
áætlunarferðar 19. þ. m sem fellur
niður.
Esja kom úr hringferð í gær meö
fjölda farþega.
Snðurland fór, til Borgarness í
morgun.
La Cliampagne, franskur botn-
vörpungur, er hingað kom til þess
að fá sér kol, fór héðan í morg-
un. Er þetta einn með hinum
stærstu botnvörpungum er hingað
hafa komið. Var það áður skemti-
skip, en var svo breytt í botnvörp-
ung. — Skip þetta heflr verið aö
veiðum hér við land í nokkur ár
og var einu sinni tekið og sektað
fyrir veiðar i landhelgi.
Ágætnr afii er nú á báta er róa
héðan á handfæri. Aftur á móti er
lítill eða enginn afli á línu, því að
fiskrinn tekur ekki agn. — Sumir
hafa fengið flsk í net hér skaint
nndan.