Dagblað

Útgáva

Dagblað - 23.04.1925, Síða 1

Dagblað - 23.04.1925, Síða 1
Fimtudag 23. apríl Í925. I. árgangur. 68 tölublað. GLEÐILEGT SUMAR! NÚ er vetur úr bæ, og sumri er fagnað. Hefir sumardag- urinn fyrsti lengi verið há- tíðlegur haldinn hér á landi, en sá siður mun óvíða þekkjast annars staðar. Hver er þá á- stæðan til þess, að hann er há- tíðlegur haldinn hér fremur en í öðrum löndum? Sú ástæða er auðsæ. íslendingar hafa alla jafna átt í harðri baráttu við ómilda veðráttu. Eini bjargræð- istími þeirra var um langt ára- skeið hásumarið, og á þeim hey- afla, er þeir náðu þá, bygðist öll velmegun þeirra. En oftast fór svo, að sá bjargræðisfengur reyndist ónógur og að til vand- ræða horfði, þegar á leið vetur. Skepnufellir var tíður og bjarg- arskortur í búi, því að skipa- ferðir milli íslands og útlanda voru þá ekki allan árshringinn eins og nú. Var því sízt að undra, að menn þráðu sumarið og fögnuðu því, þegar það átti að hefjast samkvæmt almanak- inu — enda þótt sumarið yrði oft og tíðum á eftir áætlun. Miklar og margvíslegar breyt- ingar hafa orðið hér á landi á síðari árum. Nú er hábjarg- ræðistími þjóðarinnar ekki á sumrin, heldur á veturna. En þetta megnar ekki að draga úr sumarþrá manna, og svo segir skáldið: Sumarliug og sumarþrá sumar vakna lælur, sumar í auga, sumar á brá, sumar við bjartarætur. Enn fögnum vér sumri, og mun sá siður vonandi eigi hverfa á næstu öldum, því að hann er bæði fagur og þjóðlegur. Og enda þótt vertíðir taki nú fram heyönnum sem bjargræðis- tími, á þjóðin þó jafnan aðal- hagsæld sína undir sumrinu, bæði til lands og sjávar. t Pétur Einarsson, síðast bóndi að Felli í Biskups- tungum, lézt hér í bænúm á fimtu- dag á heimili dóttur sinnar, Guð- rúnar Jónasson, í hárri elli, eins og Dagblaðið skýrði frá áður. Hann var sá siðasti, er eftir lifði þeirra 14 manna, sem lágu úti á Mosfellsheiði hriðarnóttina milli 7. og 8. marz 1857. Fer hér á eftir stutt æflágrip þessa merka manns: Pétur er fæddur í Reykjavík 7. maí 1832. Voru foreldrar hans Einar Jónasson verslunar- stjóri og Margrét Höskuldsdóttir. Þriggja ára misti hann föður sinn. Giftist móðir hans þá aft- ur og fluttist með manni sínum að Kollafirði og síðan að Esju- bergi. Var Pétur hjá móður sinni og stjúpa, þar til hann var 10 ára gamall. Fluttist hann þá að Múla í Biskupstungum, til Egils Pálssonar er þar bjó lengi og hjá honum var hann í samfleytt 16 ár, eða þar til hann var 26 ára gamall. Fór hann þá að Auðsholti í sömu sveit og kvæntist þar Helgu Eyjólfsdótt- ur; var það rúmu ári eftir að hann komst á fætur úr kal-leg- unni miklu. Er hann haföi bú- ið i Auðsholti eitt ár, misti hann konu sina; mun sá missir hafa fengið mjög á hann, því sam- búð þeirra hjóna hafði verið hin ástúðlegasta. Prem árum síðar kvæntist hann í annað sinn og gekk að eiga Höllu Magnúsdóttur frá Bráðræði. Fluttist hann þá að Árhrauni á Skeiðum og bjó þar í 6 ár, fluttist síðan að Felli í Biskupstunguin og bjó þar í 18 ár. Árið 1886 seldi hann bú sitt á Felli og fór til Ameríku ásamt konu sinni og börnum. Var hann í Ameríku undir 20 ár og úndi hag sfnum þar all- vel. Síðasta árið sem hann var þar vestra misti hann seinni konu sína, festi hann þá ekki lengur þar yndi og kaus því helzt að hverfa heim aftur, vorið 1904, og hefir hann verið hjer í Reykjavík síðan. Pjetur eignaðist 12 börn og eru flest þeirra látin. Nokkur

x

Dagblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.