Dagblað - 13.05.1925, Qupperneq 2
2
DAGBLAÐ
Ég sagði, að þessi opinbera
skyldusamfræðsla hafi komið
of undirbúningslaust. Aðrir munu
segja, að nú hafi um langan
aldur i öllum löndum verið
samfræðsla á svo mörgum svið-
um, bæði gagnfræðaskólar,
mentaskólar, háskólar og sér-
skólar fyrir ýmsar atvinnu-
greinir. Reynslan fyrir sam-
fræðslu í skólaformi hefði þvi
átt að vera fengin. Barnaskólar
hafa og lengi tíðkast og gefist
vel með góðri stjórn.
Þetta er rétt. En í hverju er
þá hið nýja erfiði skyldufræðsl-
unnar fólgið?.
í fyrsta lagi í því, að hún
leiðir af sér skylduskóla, sem
sóttir eru með alt öðrum hug
en frjálsir skólar.
í öðru lagi hefir landið tekist
á hendur að fræða alla jafnt,
sem er óvinnandi verk, og hlýt-
ur að lama getu skólanna og
veikja sjálfstraust þeirra á þann,
hátt, er ekki verður með tölum
talið.
t*að þarf ekki langrar útskýr-
ingar við, að skólar, sem menn
sækja í alveg ákveðnum til-
gangi, til þess að skapa sér
hæfiieika til að ná 1 betri að-
stöðu í þjóðfélaginu, þeir standa
ólíkt betur að vígi en þeir skól-
ar, sem allir eru jafnt skyldaðir
til að sækja, án alls tillits til
námsvilja og námshæfileika.
Þegar þetta er alt athugað,
verður útkoman sfzt verri en
við mátti búast. Fjöldi manna,
sem sendir nú börn sín í skóla
vegna skyldunnar, hefir ekki
ennþá fengið tækifæri til að
skilja hvers virði fræðsla er,
eða bvað bún er. Enginn föð-
urlegur áhugi fylgir börnunum
i skólann, á því að nota sér
sem bezt þessi nýju hlunnindi,
heldur yfirgnæfir hugur aðfinsl-
unnar, sem alla tfð og æfinlega
mætir óverðskulduðum gæðum.
Foreldrarnir taka það svo, sem
að af þeim sé létt miklum hluta
uppeldisskyldunnar.
Heimtufrekja manna í þessu
efni er oft alveg gegndarlaus,
þótt mönnum ætti að geta skil-
ist, að skólarnir geta ekki og
eiga ekki að ganga börnunum
i foreldra stað; þeir gera vel, ef
þeim tekst að sjá um þá fræðslu,
sem þeir eiga að inna af hendi,
— og það er þeim lika gert
ókleijt, ef foreldrar og forráða-
menn barnanna standa skyn-
lausir gagnvart skólunum og
því verki, sem þar á að vinna!
Þar sem svo er ástatt að menn
vanmeta og vanþakka þær end-
urbætur sem samyrkjan hefir í
för með sér^ þar er húh ekki
tfmabær, því að hún spillir þá
líka fyrir sjálfri hugsjóninni.
Ef skólaskyldan hefði færst
minna f fang í byrjuninni —
hefði hún verið takmörkð að-
eins við lestur, skrift og reikn-
ing, þá hefði betur farið. Fá
hefði verkefnið verið betur at-
markað fyrir alla hlutaðeigend-
ur, og verkið hægt að vinna á
heilbrigðari grundvelli. Enda
mátti jafnhliða þessu gefa öllum
tækifæri til frekara lærdóms eftir
frjálsu vali. H. J.
Borgin.
Sjávarföll. Síðdegisháflæður eru
kl. 9,35 í kvöld. Árdegisháflæður eru
kl. 10,10 á morgun.
Nætnrlæknir í nótt er Jón Hj. Sig-
urðsson Laugaveg 40. Simi 179.
Nætnrvörðnr er í Laugavegs-
Apóteki.
Franskar flskiskntnr hafa nokkrar
komið hér inn undanfarna daga og
liggja hér ennþá.
Rcykvískn þilskipin eru nú komin
inn, heflr afli þeirra verið nokkuð
misjafn á vertíðinni. Seagull heflr
flskað 33 þúsund Björgvin 29 þús.
Keflavikin 25 þúsund.
Botnvörpnngarnir. t gær komu af
veiðum Jón forseti með 64 tn. og
Gulltoppur með 91 tn. lifrar.
Esja var á Sauðárkrók í morgun
á vesturleið.
Margt nðkomumanna er nú í bæn-
um. Hafa öll gistihús verið yfirfull
undanfarnar nætur, og mun mörg-
um hafa veizt erfitt að fá einhver-
staðar inni.
Dr Jón Helgnson bisknp átti 30 ára
prestvigsluafmæli í gær.
Húsnæðisekla er hér töluverð og
mikil eftirspurn að húsnæði. Eitt-
hvað mun samt rætast úr henni
um og eftir krossmessuna, því
*ú)acjBlaé.
I Arni Óla.
Ritstjórn: | g. Kr. Guðmundsson.
Af^ðsla I Lækjartorg 2.
skrifstofa J Sími 744.
Ritstjórn til viðtals ki. 1—3 síðd.
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Augiýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm.
Blaðverð: 10 aura eint.
Áskriftargjald kr. 1,50 á mánuði.
Stúlkan í
selinu
sýnd í kvöld kl. 9.
Aðgöngumiðar seldir frá
kl. 5.
mörgum íbúðum er haldið lausum
ennþá, i húsum sem eiga að seljast.
Sagan getur ekki komið i blaðinu
í dag.
Ping’tíðindi.
í gær voru langir fundir í
báðum deildum, og fundir í
sameinuðu þingi fyrir og eftir
deildafundi.
í Ed. voru samþykt lög um
breyting á lögum um kosningar
til Alþingis, lög um sérleyfi til
að reka útvarp, og breytinga-
og viðaukalög um tekju- og
eignaskatt.
í Nd. voru lögin um seðla-
útgáfu samþykt, og einnig var
frv. til laga um Ræktunarsjóð
íslands samþykt, og er þar með
orðið að lögum.
Frv. til laga um verslunar-
atvinnu var til 3. umræðu og
afgreitt til efri deildar. Nokkr-
um málum var frestað, þar á
meðal húsaleigulögunum og van-
trauststillögu Jóns Baidvinsson-
ar á stjórninni.
— Steinolíumálið var til um-
ræðu á fundi í sameinuðu þingi,
og var einkasalan feld eftir.
snarpar deilur, og er steinolíu-
verslunin þar með gefin frjáls
frá næstu áramótum.