Dagblað - 28.05.1925, Page 2
2
DAGBLAÐ
standa yfir frá 20. júní til 4;
júlí. Verða þar eigi sýndir yngri
folar en þrevetrir og hryssur
eigi yngri en 4 vetra. Tilgangur-
inn með sýningum þessum er
sá, að finna beztu kynbótahross-
in og samdi síðasta Búnaðar-
þing reglur fyrir sýningar þessar.
Nýtt tímatal.
Nýr sólmánuður.
Eitt af því, sem þjóðbanda-
lagið befir tekið sér fyrir hend-
ur, er að breyta almanakinu.
Var skipuð alþjóðaalmanaks-
nefnd til þess að athuga þetta
mál, og hefir hún haft aðsetur
sitt í Genf í Svisslandi. Helztu
breytingarnar, sem nefndin legg-
ur til að gerðar sé, eru þessar:
Páska skal ætíð bera upp á
annan sunnudag í apríl. Árinu
skal skift eins og áður í 52
vikur, en dagur sá, sem er um-
fram, skal nefnast »ársdagur« og
fylgja síðustu viku og siðasta
mánuði ársins. Skal það vera
alþjóða-sabbatsdagur, og eins
hlaupársdagur. — Hinum 52
vikum ársins skal skifta annað-
hvort niður á ársfjórðunga,
þannig að tveir þrítugnættir
mánuðir og einn þrítugeinnættur
verði í hverjum ársfjórðungi,
eða þá að hafa 13 mánuði í
árinu og hvern 4 vikur. Mynd-
ast þá nýr mánuður af 2 siðari
vikum júní og 2 fyrri vikum
júlí og skal sá mánuður heita
»Sol« (= sólmánuður). Með
því að taka upp hina seinni
reglu vinst það, að vikudagana
ber altaf upp á sama mánaðar-
dag og hefir það marga kosti í
för með sér.
Einkennilegir hliómleíkar.
Á Istrian-ströndinni, skamt frá
Trieste eru hellar miklir. Einn
þeirra er nefndur »danzhellir«;
er hann 160 feta langur, 90 feta
breiður og 150 fet eru undir
lofthvelfingu. Er þar ákaflega
hljóðbært og kastast hvert hljóð
mörgum sinnum fram og aftur
milli veggja, lofts og gólfs. í
sumar ætla frægustu hljóðfæra-
leikarar ítala að slá sér saman
og halda þar stórkostlega hljóm-
leika. Verður þar leikið meðal
annars »Rakarinn í Sevilla«,
»Aida«, »Lohengrin«, kórinn í
»Moses« eftir Rossini og inn-
gangurinn að »Mefistofeles«.
Inst í hellinum er nokkurs kon-
ar afhellir eða útskot, sem
myndast af dropsteinasúlum, og
þar ætlar hljóðfæraflokkurinn að
vera. Búast menn við að þetta
verði hinir einkennilegustu og
fegurstu hljómleikar sem nokkru
sinni hafa verið haldnir.
Borgin.
Nætnrlæknir, Jón H. Sigurðsson,
Laugaveg 40. Sími 179.
Næturvörðnr í Laugavegs Apóteki.
6. vika sumars hefst í dag.
Tfðarfar. Hiti í morgun 3—8 stig,
heitast i Vestmannaeyjum. Vindátt
mjög breytileg. í Færeyjum var 13
st. hiti, i Angmagsalik 5 st. Á Jan
Mayen 3 st., Khöfn 15 st., Utsire 10
st., Tynemouth il st. — Útlit fyrir
allhvassa norðaustanátt með úr-
komu á Norður og Austurlandi.
Wembley-syningin, hin stóra mynd
sem Nýja Bio hefir sýnd undanfar-
in kvöld, verður sýnt í kvöld, en
eigi oftar, og vegna viðgerðar á
leikhúsinu verður par engin sýning
fyr en á annan í Hvítasunnu.
Eappreiðarnnr. Annað kvöld verð-
ur höfð æflng á Skeiðvellinum.
Verða þá um leið skráðir allir þeir
hestar, sem reyndir verða á annan
í Hvitasunnu.
Höfnin: Mons, kolaskip til Kveld-
úlfs, kom hingað í gær. — Skaft-
fellingur kom úr austurferð í gær.
— í morgun komu afveiðum: Pór-
ólfur, Skúli fógeti og Karlsefni, allir
með góðan afla.
Landkeigisbrot Pór kom hingað i
gær með þýzkan botnvörpung,
Hanseat frá Bremerhafen, er hann
hafði tekið að veiðum i landhelgi
skamt frá Eldey. Skipstjóri meðgekk
þegar, en kvaðst eigi hafa haft hug-
mynd um að hann væri innan land-
helgi. Haun var dæmdur i morgun
í 15000 isl. króna sekt; afli og veið-
arfæri upptækt.
IDagBlaé.
Arni Óla.
Ritstjórn: g. Kr. Guðmundsson.
Afg£ðsla Lækjartorg 2.
skrifstofa Sími 744.
Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síðd.
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm.
Blaðverð: 10 aura eint.
Áskriftargjald kr. 1,50 á mánuöi.
Kolum breytt í oliu.
Að undanförnu hafa tilraunir
verið gerðar um það samtímis,
bæði í Englandi og Pýzkalandi,
að fá steinkolum breytt í stein-
olíu, og hefir báðum hepnast
það. Að minsta kosti þykjast
Pjóðverjar svo vissir í sinni
sök, að þeir ætla að reisa stór-
eflis verksmiðju í þessu skyni
hjá Mannheim. Bretum hefir
tekist að ná um 40 °/o af olíu-
vökva úr kolunum, og þj'kir
það gefa góðar vonir um hver
árangur muni verða.
Olía er miklu hagkvæmara
eldsneyti heldur en kol, sérstak-
lega í skipum, eins og sézt á
því, að öll nýjustu herskip
brenna olíu. Hún tekur minna
rúm en kolin, er mikið þrifa-
legri, auðveldara að koma henni
um borð, og auk þess fara þau
skip mílu hraðara, er brenna
olíu, heldur en þau brendi kol-
um. Ef það kemur nú í Ijós,
að olía, unnín úr kolum, yrði
ódýrari heldur en sú olía, sem
flutt er langar leiðir að, þá er
hér um sýnilegan hagnað að
ræða. En þó telja Bretar hagn-
aðinn enn meiri. Peir segjast
þá munu geta starfrækt kola-
námur, sem nú borgar sig ekki
að starfrækja, og margir af þeim
150 þús. kolamanna, sem nú
eru atvinnulausir, geti þá fengið
atvinnu. Taka þeir svo djúpt í
árinni, að þeir segja, að ef þessi
uppgötvun reynist rétt, þá muni
hún valda eigi minni breytingu
í heiminum, heldur en þá er
mönnum tókst að handsama
gufuaflið.