Dagblað - 17.06.1925, Page 2
2
DAGBLAÐ
U. m. F. Afturclcllntf.
iðnsYning
fyrir Lágafellssóka verður haldin að Brúarlandi við Varmá frá 17.
til 21. þ. m., að báðum dögum meðtöldum. t* *ar verða mjög skraut-
legir og vel unnir munir og vönduð tóvinna. — Aðgangur 1 kr.
fyrir fuilorðna, 50 a. fyrir börn. — Kalfi og mjólk fæst á staðnum.
MTefndln.
ekki séð þá grein, þegar eg átti
tal við ritstjórann.
Eg fæ ekki skilið hvernig á
því stendur, að það þykir svo
miklum tíðindum sæta að eg
vil ekki kaupa Dagblaðið. Mér
var sent það óbeðið. En af vin-
semd við hr. ritstjóra Guðm.
Kr. Guðmundsson greiddi eg
blaðið þegar þess var óskað, og
mundi jafnvel hafa orðið áskrif-
andi að því framvegis, ef mér
hefði líkað sæmilega við rithátt
þess og efnisval.
Reykjavík 16. júní 1925.
Sigurbjörn Porkelsson.
§var:
Mér þótti svo miklum tíðind-
um sæta, er einn af elztu vinum
mínum tilkynnir mér í sima há-
tiðlega, en hvatlega, að hann
vilji ekki kaupa Dagblaðið fram-
vegis, en nefnir Tímann um
leið, að eg hlaut að álykta, að
hin hlutlausa grein um aðalfund
Sambandsins, sem birtist sam-
dægurs ætti sinn þátt í því, en
ekki hinar fræðandi greinar og
þarflegu hugvekjur um bæjar-
mál og önnur nauðsynjamál,
sem Dagblaðið hefir hlotið marg-
faldar þakkir fyrir, og því fleiri
kaupendur, en nokkurt annað
íslenzkt blað á jafn skömmum
tíma.
Sigurbirni líkar ekki ritháttur
blaðsins og stefna.
Vill heldur lesa Tímann.
Verði þér að góðu vinur minn.
G. Kr. G.
Minsta skipið, sem fer reglu-
bundnar ferðir yfir Atlanzhaf
heitir »The Harmony« og er að-
eins 223 smál. Skipstjórinn heit-
ir J. C. Jackson og á heima í
London. Á hverju sumri fer
hann eina ferð með vörur til
hinnar afskektu Moravia, tru-
boðsstöðvar á strönd Labrador
nyrst. Hann -er nú á leiðinni
þangað vestur í 24. sinn.
Borgin.
Sjávarföll. Siðdegisháflæður kl.
3,3. Árdegisháflæður kl. 3,25 i
nótt.
Sólarnpprás kl. 2,2. Sólsetur kl.
10,55.
Nætnrlæknir Konráð R. Konráðs-
son, Þingholtsstræti 21, sími 575.
Nætnrrörðnr í Reykjavikur Apó-
teki.
lyra, hið nýja skip Bergenska
félagsins, kom hingað i gærkvöldi.
Skipiö er rúmlega 1600 smál. Var
pað keypt í Pýzkalandi alveg ný-
lega og hét áður Eitel Friedrich.
Skipið er í alla staði mjög álitlegt
og farþegarúm mikið og gott. Eru
þar margskonar þægindi, sem ekki
eru á öðrum skipum. Kalla má, að
ekki sé nema eitt farrými; að visu
er til 3. farrými, en það er bæðí
mjóg lítið og fremur óhentugt, en
þvi verður sennilega breytt, áður
en langt um líður.
Nokkrir farþegar voru með skip-
inu hingað, þar á meðel R. Tingvold
umboðssali, Poul Smith heildsali,
Barði Guðmundsson stúd. o. fl.
í gærmáttilengisjáhnappmanna
á Lækjartorgi og voru þeir að
horfaþar á myndtökumann, sem tók
myndir og framkallaði þær á svip-
stundu. Gat þar hver er vildi feng-
ið póstkort með mynd af sjálfum
sér fyrir kr. 1,25.
Skipstjórnskifti verða á skipum
Kárafélagsins er þau koma inn næst.
Lætur Aðalsteinn Pálsson af skip-
stjórn á Kára Sölmundarsyni, sem
hann hefir haft á hendi síðan skip-
ið var keypt, en við tekur Guð-
mundur Guðmundsson, skipstjóri á
Austra. Við skipstjórn á Austra tek-
ur stýrimaðurinn, Jón B. Elíasson.
Esjn var á ísafirði í gær og mun
hafa farið þaðan um kl. 6 síðdegis.
Eins og getið var um í Dagblaðinu
áður, var eins margt af fólki með
skipinu og framast gat rúmast þar.
Átti þetta að verða hraðferð, en nú
tekur skipið margar aukahafnir og
eru margir farþegar því gramir, sem
von er.
ÍÞagSlað.
Arni Óla.
Ritstjórn: g. Kr. Guðmundsson.
Afgmðsla Lækjartorg 2.
skrifstofa Sími 744.
Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síðd.
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm.
Blaðverð: 10 aura eint.
Áskriftargjald kr. 1,50 á mánuði.
Stórhýsi mikið eru Adventistar
nú að reisa á lóð sinni við Ingólfs-
* stræti. Verður það bæði samkomu-
hús og sjúkrahús. Samkomusalur-
inn mun geta rúmað nokkur hundr-
uð manns.
Hátíðahöldin f dag. Eins og get-
ið var í Dagblaöinu i gær, ferst í-
þróttamótið fyrir að þessu sinni og
var búist við því að íþróttafélögin
mundu ekki gera sér neinn daga-
mun. En þetta breyttist á síðustu
stundu fyrir forgöngu Knattspyrnu-
félaganna. Ákváðu þau að hefja
»Knattspyrnumót íslands« í dag og
um leið er efnt til meiri mannfagn-
aðar. Kl. 31/> verður leikið á horn
á Austurvelli. Stundu siðar er geng-
ið þaðan fylktu liði suður að kirkju-
garði, blómsveigur lagður á leiði
Jóns Sigurðssonar, en síra Friðrik
Hallgrimsson flytur ræðu. Pá verð-
ur farið suður á íþróttavöll og hefst
knattspyrnan kl. ð'/a- Keppa þá K. R.
og Valur. í kvöld verður dansskemt-
un í Iðnó, en karlakór syngur nokk-
ur lög úti.
Iðnsýning verður opnuð í dag að
Brúarlandi i Mosfellssveit. Verður
þar sýnd ýmisleg handavinna úr
sveitinni og enn fremurÁlafossdúkar.
Jónsinessuhátföin i Hafnarf. verð-
ur nú haldin í dag og hefst kl. 2l/i
Kirkjngarðinnm lokað. Kirkju-
garðsyörður hefir beðið Dagblaðið
að geta þess, að kirkjugarðinum
verði lokað í dag meðan íólkstraum-
urinn fer þar fram hjá, til þess að
menn ryðjist ekki þangað inn i stór-
hópum og traðki á leiðum.
Edinhorg. Hið nýja stórhýsi versl-
unarinnar við Hafnarstræti er nú
svo langt komið, að hún fer bráð-
um að flytja þangað.
Bæjarstjórnnrfnndnr á að verða
annað kvöld. Skyldi nokkur bæjar-
fulltrúanna áræða að minnast £
byggingarhneykslið mikla — eða £
það að ganga fram óátalið af öll'
um nema Dagblaðinu?