Dagblað - 14.07.1925, Page 2
2
DAGBLAÐ
hægt sé að segja að hún hafi
brugðist.
Það væri æskilegt, að veður-
spáin næði yfir sólarhring, eða
helst hálfan annan sólarhring,
en meðan engin veðurskeyti fást
af svæðinu fyrir vestan ísland,
nema einu sinni á dag veður-
skeyti frá Angmagsalík, verða
slíkar veðurpsár svo óábyggilegar
oft og einatt, að mér hefir ekki
þótt tiltækilegt að byrja á þeim
ennþá, en í haust, þegar farið
verður að senda reglulega veður-
skeyti frá 4 stöðvum á Græn-
landi, verður það að sjálfsögðu
athugað, hvort eigi sje hægt að
láta veðurspárnar ná lengra fram
í tímann en nú á sér stað.
Porkell Porkelsson.
Borgin.
SjáTarföll. Síðdegisháflæður kl.
12,37 í dag og kl. 1,15 í nótt.
Nætnrlæknir Ólafur Porsteinsson
Skólabrú 2. Simi 181.
Nætnrrörðnr í Reykjavikur Apó-
teki.
Peningar í
Sterl. pd............... 26,25
Danskar kr............. 110,67
Norskar kr.............. 94,81
Sænskar kr............... 145,15
Dollar kr............... 5,41'/«
Tíðarfar. Suðlæg átt allsstaðar
nema í ísafirði (Na 6). Hvassast í
Raufarhöfn og á Hólsfjöllum (7).
Hiti mestur á Akureyri 16 st., minst-
ur i Vestmannaeyjum 9 st. Rigning
sunnan- og austanlands, en þurkur
fyrir norðan. Úrkoma hér síðasta
sólarhring 6,4 mm. Suðlæg átt verð-
ur í dag um alt land og úrkoma
víða.
Dönskn stúdentarnir sungu i Hafn-
arfirði í gærkvöidi.
ÍI»róttamót Borgfirðinga, sem hafa
átti hjá Ferjukoti, á sunnudaginn,
fórst fyrir vegna illviðris.
Tryggvi Pórhallsson alþingismað-
ur kom heim i fyrrinótt úr þing-
málafunda ferðalagi um Stranda-
sýslu.
Kofa nokknrn, likastan hænsa-
húsi, er nú búið að reisa á Lækj-
artorgi. Er það sjálfsagt gert tii
þess að setja fallegri svip á torgið
en áður var, enda mun þetta verða
talin mesta bæjarprýði. Var það
vel gert að reka Söluturninn burtu
af torginu og setja þar niður annað
eins hús og þetta.
Þjóðminningardagur Frakka er í
dag. Hefir franski ræðismaðurinn
boð inni fyrir stjórn Alliance Fran-
caise og fleiri.
Bsja fór frá Norðfirði i gærmorg-
un, og mun hafa náð til Fáskrúðs-
fjarðar í gærkvöldi.
Jarðarför séra Brynjólfs Jónsson-
ar fór fram í gær. Var hann jarð-
settur í grafreit ættarinnar við hlið
föður sins.
Ný bók, um meðferð og tamningu
hesta o. fl. kemur á markaðinn
bráðlega. Eru höfundar hennar
Daníel Daníelsson og Einar E.
Sæmundsen. Er þar margs konar
fróðleikur og leiðbeiningar, sem
hverjum hestamanni eru nauðsyn-
legar. í bókinni eru margar mynd-
ir, efninu til skýringar. Má búast
við þvi, að bók þessi fljúgi út, enda
á hún það skilið.
Helgidagavinna. Bærinn hefir nú
leigt slægjurnar í Fossvogi og mátti
sjá menn þar við slátt á sunnudag-
inn, þrátt fyrir helgina og illviðrið.
Snðurland fór til Borgarness í gær,
áætlunarferð, og kemur aftur í dag.
Lyra kom hingað í nótt. Með
henni komu nokkrir útlendingar.
Goðafoss kom norðan um land I
gær og fer í dag sömu leið til baka
til útlanda. Farþegar verða dönsku
stúdentasöngvararnir, Sigfús Blön-
dahl konsúll og frú, Davíð Sch.
Thorsteinsson læknir og frú, séra
Kristinn Daníelsson, Morten Otte-
sen útgerðarmaður, Árni Sighvats-
son verslunarmaður, Ólafur G. Eyj-
ólfsson umboðssali og mesti fjöldi
fólks, sem fer í síldarvinnu.
Gnðspekifélagið ætlaði skemtiför
til Pingvalla s. 1. sunnudag, en það
fórst fyrir vegna illviðris. Ef gott
verður veður á sunnudaginn kem-
ur, er í ráði að fara þessa skemti-
för.
Ný gosdrykkjaverksmiðja, sem
heitir »Gosdrykkja og aldinsafagerð-
in Hekla« er komin á fót hér í
bænum og eru eigendur hennar
Gils Sigurðsson og Porsteinn Por-
steinsson. Verksmiðjan er í Templ-
arasundi og framleiðir allar teg-
undir gosdrykkja og einnig »Polo«,
sem auglýst hefir verið hér í blaðinu.
Dóra og Haraldur Signrðsson komu
hingað með Lyra. Ætlar frúin að
skemta bæjarbúum með söng ann-
að kvöld og leikur Haraldur undir
á piano. Á föstudaginn ætlar Har-
aldur að hafa hljómleika.
ÍDaaðíaÓ.
I Arni Óla.
Ritstjórn: | q. Kr. Guömundsson.
Afgreiðslaj Lækjartorg z
skrifstofa J Sími 744.
Ritstjórn til viðtals kl. 1—3 síðd.
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Auglýsingaverð: Kr. 1.50 pr. cm,
Blaðverð: 10 aura eint.
Áskriftargjald kr. 1,50 á mánuði.
R»bara8tofa Einars J.
Jónssonar er á Laugaveg 20 B
Inngangur frá Klapparstíg.
Uppreist á Samos.
Tveir bræður taka eyna.
Á grísku eynni Samos, sem
er skamt frá ströndum Litlu-
Asíu, geröu tveir bræður upp-
reist fyrir skemstu og tóku eyna
herskildi. Höfðu þeir ekki nema
nokkra menn með sér, en bæltu
við sig liði með því að hleypa
út öllum þeim, sem í varðhaldi
voru. Tóku þeir nú allar opin-
berar byggingar og drógu þar
upp ítalska fánann og lýstu yfir
því, að eyjan tæri sjálfstæð.
ítalir vissu þó ekkert um þetta.
Þá náðu þeir og í alla sjóði á
eynni og opinbert fé.
Grikkir sendu þegar herskip
til eyjarinnar og varð þá lítið
um vörn af hálfu uppreistar-
manna. Voru þeir allir teknir
höndum.
Pað er ætlun manna, að þeir
bræður muni aðeins hafa ætlað
sér að ná í hið opinbera fé á
eynni og hverfa svo burtu.
Þeir heita Yaya og hafa oft áður
átt i höggi við hið opinbera og
oft verið dæmdir til dauða, en
altaf sloppið þangað til nú. Hafa
þeir hafst við á »Eyjunum tolf«
eða Dodecanese, en þær eyjar
hafa verið undir eftirliti Itala,
Tyrkja og Grikkja um mörg ár.
Saga þessi minnir óneitanlega
á sögu Jörundar hundadaga-
kóngs hér á landi og hafa þeir
bræður í mörgu farið svipað að
og hann.
Á eynni Samos eru 50 þús.
íbúar.