Dagblað - 15.07.1925, Qupperneq 1
Miðuikudag ft f JÍ* I. árgangur.
15. iúlí '+JJ U MjS 136.
1925. AÉrbflfVVMV tölublað.
SÍÐAN bifreiðir fóru að tíðk-
ast hér, hefir benzíneyðsla
farið ákaflega í vöxt og
eykst með ári hverju, eins og
eðlilegt er, þar sem bifreiðum
er altaf að fjölga. Og vegna hins
mikla fiutnings hingað á benzini,
varð að gera einhverjar ráðstaf-
anir' til þess að fyrirbyggja eld-
bættu af þvi. Var það þá tekið
til ráðs að grafa stóra benzín-
geyma í jörð niður og er það í
sjálfu sér góð varkárni, en hitt
er verra og varla forsvaranlegt,
að geymar þessir skuli hafðir í
Miðbænum, einmitt þar sem
mest er umferð og mest bruna-
hætta. Getur hver maður sagt
sér það sjálfur, að stórkostlegt
slys gæti hlotist af því ef eldur |
kæmist að þessum benzinbirgð-
um. Og þótt svo sé talið, að
vandlega sé gengið frá geymun-
um, þá getur altaf viljað svo til
að eldur komist að benzíninu.
Þarf ekki annað en neisti úr
vindli eða vindlingi hrökkvi í
benzínið meðan verið er að láta
á geymana og þarf það ekki að
vera að kenna neinni óvarkárni
þeirra manna, sem að því verki
starfa. Eldneistinn getur komið
frá manni, sem er á gangi skamt
frá og hristir öskuna úr vindli
sinum eða vindurinn tætir neista
úr honum. Þá getur maður og
hugsað sér það, að svo mikili
jarðskjálfti komi hér að hús
hrynji og komi upp eldur skamt
frá benzíngeymunum og að jarð-
skjálftinn hafi um leið umturn-
að þeim. Mætti þá vel fara svo
að eldur hlypi í benzinið og yrði
af ógurleg sprenging. Þetta tvent
er aðeins tekið sem dæmi og er
vonandi að hvorugt komi fyrir,
en eigi að síður er það mjög
viðsjárvert að hafa þessa benzín-
ge'yma þarna á almannafæri.
Það er heldur eigi nauðsynlegt
að þeir sé á þessum stöðum.
Þeir mætti alveg eins vera ein-
hverstaðar utan við bæinn, t. d.
sunnan í Skólavörðuholtinu, þar
sem engin bygð er og ekki verð-
ur bygt fyrst um sinn. Er það
ekkert óhagræði fyrir bifreiða-
eigendur, eða ekki svo mikið að
orð sé á gerandi, þótt benzín-
geymarnir verði færðir þangað
og eigi getur það heldur munað
neinu á fiutningskostnaði á
benzíninu. En þetta fyrirkomu-
lag yrði miklu tryggara og alveg
í samræmi við þær aðrar var-
úðarráðstafanir, sem gerðar hafa
verið um það að hafa sem minst
af eldfimum efnum inni i sjálf-
um bænum.
Reykvíkingar hafa áður fengið
að kenna á því hvað stórbruni
er. Gamall málsháttur segir að
brent barn forðist eldinn. Revkja-
vík hefir líka reynt að forðast
eldinn síðan bruninn mikli varð,
en aldrei er of varlega farið og
því er vonandi að þessir benzín-
geymar verði fluttir burtu hið
fyrsta.
Viðsjár
með ítölam og Afgönam.
Eftir ósk stjórnarinuar í Af-
ganistan fór þangað fiokkur
ítalskra manna í fyrra til þess
að leiðbeina Afgönum i iðnaði.
Nokkru eftir að hann var kom-
inn til Bokhara, var Afgani
drepinn á götu og féll grunur á
ítali, að þeir væri verksins vald-
ir. Lá við sjálft að lýðurinn
gerði aðsúg að þeim og tæki þá
af lífi án dóms og laga. Lög-
reglan tók þá alla fasta, en einn
þeirra, Piperno að nafni, veitti
viðnám og í þeim aðgangi var
einn lögregluþjónninn skotinn
óvart. Piperno var dæmdur til
dauða, en fyrir milligöngu ítölsku
stjórnarinnar, varð það að sam-
komulagi að ítalir skyldi leysa
hann út með fé. Bjuggust allir
við því að Piperno yrði laus
látinn þegar er lausnargjaldið
var greitt, en það var þó ekki.
Leiddist honum biðin í fangels-
inu og tókst að strjúka. Komst
hann til landamæra Rússlands,
en þorði ekki yfir þau vegna
þess að hann óttaðist að Rúss-
ar mundu taka sig af lífi sem
njósnara eða Fascista. Gaf hann
sig því fram og var aftur flutt-
ur i varðhald. Voru nú gerðar
nýjar tilraunar að fá hann laus-
an, en eftir viku var hann drep-
inn í fangelsinu.
Italir urðu þessu ákaflega
reiðir og sendi Mussolini stjórn-
inni í Afganistan harðorða á-
minningu og krafðist þess: að
hún lýsti því opinberlega yfir,
að hún iðraðist þessa ódæðis,
að utanríkisráðherra Afgana og
einhver hersveit færi til ræðis-
manns ítala og sýndi ftalska
fánanum lotningu, að lausnar-
gjald Piperno væri endurgreitt
og auk þess greiddi stjórn Af-
ganistan 7000 Sterlingspund fyr-
ir yfirsjón sína.
Skilmálar þessir voru sendir
með hraðboða, þvl að engin
simaleið er til Afganistan nema
yfir Indland, og báðum máls-
aðiljum þótti ílt, að þurfa á að-
stoð og milligöngu Breta að
halda í þessu máli. Var búist
við því, að svar stjórnarinnar í
Afganistan mundi eigi koma
fyr en eftir mánuð og ætti því
að koma núna einhvern daginn.
Margir búast við því, að stjórn-
málasambandi milli ríkjanna
verði slitið og að jafnvel muni
draga til fulls fjandskapar.
ÍOO ára afmæli
eimreiða.
Þess var minst á Englandi í
byrjun þessa mánaðar, að í ár
eru liðin 100 ár frá því farþega-
lest var i fyrstu knúin fram af
eimreið. Var þessa atburðar
minst þann veg að gufuvél
George Stephensson, sú hin sama
og dró fyrstu fólkslestina, var